32016R2072

Commission Delegated Regulation (EU) 2016/2072 of 22 September 2016 on the verification activities and accreditation of verifiers pursuant to Regulation (EU) 2015/757 of the European Parliament and of the Council on the monitoring, reporting and verification of carbon dioxide emissions from maritime transport


iceland-flag
Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/2072 frá 22. september 2016 um sannprófunarstörf og faggildingu sannprófenda samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/757 um vöktun, skýrslugjöf og sannprófun á losun koltvísýrings frá sjóflutningum
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 20 Umhverfismál, 20.03 Loft
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 205/2017
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/2072 frá 22. september 2016 um vottun og faggildingu vottunaraðila samkvæmt reglugerð (ESB) 2015/757 Evrópuþingsins og ráðsins um vöktun, skýrsluskil og vottun losunar losunar á koldíoxíði frá sjóflutningum
Með reglugerð (ESB) 2015/757 um vöktun, skýrslugjöf og vottun losunar á koldíoxíði frá sjóflutningum var sett á fót kerfi til að vakta losun á koldíoxíði (CO2) frá sjóflutningum. Reglugerðin tekur til losunar frá skipum sem eru yfir 5000 brúttótonn að stærð, á ferðum þeirra til og frá höfnum innan ESB sem og innan hafna ESB.

Nánari efnisumfjöllun

Í 5. mgr. 15. gr. og 3. mgr. 16. gr. reglugerðar (ESB) 2015/757 er gert ráð fyrir að framkvæmdastjórnin samþykki framseldar gerðir til að útfæra nánar reglur um starfsemi vottunaraðila (e. verification activities) sem og aðferðir við faggildingu vottunaraðila. Með þeirri framseldu reglugerð framkvæmdastjórnarinnar sem hér er til greiningar er einmitt verið að setja þessar nánari reglur um starfsemi vottunaraðila og faggildingu vottunaraðila sem reglugerð ESB 2015/757 gerði ráð fyrir. Í reglugerðinni er m.a. kveðið á um hvaða gögn og upplýsingar fyrirtæki skuli láta vottunaraðilum í té, meginreglur sem vottunaraðilum ber að fara eftir við vottun, aðferðafræði við vottun, efni vottunarskýrslu, kröfur um hæfi og hlutleysi vottunaraðila. Einnig eru þar settar fram kröfur um framkvæmd faggildingar, skilyrði og málsmeðferðarreglur í tengslum við faggildingu og hvaðan faggilding skuli stafa, gildistíma faggildingar, eftirlit með vottunaraðila, varðveislu gagna og þagnarskyldu.

Þar sem í reglugerðinni er fjallað um hver og hvernig skuli annast faggildingu vottunaraðila sem hyggjast votta losunarskýrslur sem og hvernig eftirliti með þeim er háttað sbr. IV kafli framseldrar reglugerððar ESB C(2016)5904, sbr. 36. - 41. gr. reglugerðiar ESB 2015/757, en það eru faggildingarstofur (e. national accreditation bodies), sem útnefndar hafa verið í samræmi við 1. mgr. 4. gr. reglugerðar (EB) nr. 765/2008 um kröfur varðandi faggildingu og markaðseftirlit í tengslum við markaðssetningu vöru, sbr. 1. og 2. mgr. 16. gr. reglugerðar (ESB) 2015/757, sem annast faggildinguna og eftirlit með henni. Það er því mat Umhverfisstofnunar að rétt væri að greining á reglugerð (ESB) C(2016)/5904 færi einnig fram hjá faggildingarsviði Einkaleyfastofu. þar sem faggildingarsviðið er sá aðili sem ber ábyrgð á faggildingum hér á landi. og er þ.a.l. hin íslenska faggildingarstofa í skilningi reglnanna.

Vert er að benda á að eins og fram kom í upplýsingablaði sem var unnið hjá Umhverfisstofnun á haustmánuðum 2015 um reglugerð (ESB) 2015/757, þá eru engin skip yfir 5000 brúttótonnum skráð hér á landi og þ.a.l. fellur ekkert íslenskt skip undir reglugerð (ESB) 2015/57 að svo stöddu.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Lagastoð í lögum nr. 70/2012 um loftslagsmál, setja þarf nýja reglugerð.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Ekki vitað

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Ábyrg stofnun Umhverfisstofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32016R2072
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 320, 26.11.2016, p. 5
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
C/D numer C(2016)5904
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 68, 22.8.2019, p. 20
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L 219, 22.8.2019, p. 18