32017L1009

Commission Delegated Directive (EU) 2017/1009 of 13 March 2017 amending, for the purposes of adapting to technical progress, Annex III to Directive 2011/65/EU of the European Parliament and of the Council as regards an exemption for cadmium and lead in filter glasses and glasses used for reflectance standards


iceland-flag
Framseld tilskipun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/1009 frá 13. mars 2017 um breytingu á III. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2011/65/ESB, að því er varðar undanþágu fyrir kadmíum og blý í glersíum og glerjum sem eru notuð í endurvarpsstöðlum, í því skyni að laga viðaukann að tækniframförum
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.15 Hættuleg efni
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 168/2017
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Framseld tilskipun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/1009 frá 13. mars 2017 um breytingu á III. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2011/65/ESB, að því er varðar undanþágu fyrir kadmíum og blý í glersíum og glerjum sem eru notuð í endurvarpsstöðlum, í því skyni að aðlaga viðaukann að tækniframförum.

Nánari efnisumfjöllun

Tillagan varðar breytingu á lið 13(b) í III. viðauka tilskipunar 2011/65/ESB sem hefur að geyma upplýsingar um undanþágur frá bönnum 4. gr. tilskipunarinnar.

Breytingin lýtur að því að endurnýja, með vissum skilyrðum, undanþáguákvæði varðandi notkun kadmíums og blýs í glersíum og glerjum sem eru notuð í endurvarpsstöðlum. Ástæða þykir til að undanþágan gildi áfram tímabundið fyrir ákveðin notkunarsvið. Bætt er við þremur undirliðum, 13(b)-(I), 13(b)-(II) og 13(b)-(III), um notkun í ákveðnum sértækum undirgerðum glerjanna sem undanþágan tekur til og nýir gildistímar settir. Eftir breytinguna er staðan eftirfarandi:
• Almenn undanþága er fyrir notkun málmanna í glersíum og glerjum sem eru notuð í endurvarpsstöðlum fyrir eftirtalin notkunarsvið.
o Í in vitro lækningatækjum til greininga (vöruflokkur 8) þar til 21. júlí 2023.
o Í vöktunar- og eftirlitstækjum til iðnaðarnota (vöruflokkur 9) og í raf- og rafeindabúnaði, sem fellur ekki undir flokka 1-10 (vöruflokkur 11) til 21. júlí 2024.
o Í öðrum undirflokkum vöruflokka 8 og 9 til 21. júlí 2021.
• Sértækar undanþágur fyrir notkun í ákveðnum undirgerðum glerja í vörum í flokkum 1-7 og 10 eru veittar til 21. júlí 2021.

Aðildarríkin hafa 12 mánuði frá því tilskipunin tekur gildi til að færa ákvæði hennar í lög. Téð ákvæði skulu gilda frá því 12 mánuðum eftir að tilskipunin tekur gildi.

Tilskipunin tekur gildi á 20. degi eftir birtingu hennar í Sjórnartíðindum Evrópusambandins.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Breyta þarf reglugerð nr. 630/2014 þar sem ákvæði 2011/65/ESB eru innleidd. Lagastoð er að finna í efnalögum nr. 61/2013.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Ekki vitað

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Ábyrg stofnun Umhverfisstofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32017L1009
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 153, 16.6.2017, p. 21
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
C/D numer C(2017)1518
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 52, 27.6.2019, p. 37
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L 174, 27.6.2019, p. 29