32017R0335

Commission Regulation (EU) 2017/335 of 27 February 2017 amending Annex II to Regulation (EC) No 1333/2008 of the European Parliament and of the Council as regards the use of steviol glycosides (E 960) as a sweetener in certain energy-reduced confectionery products


iceland-flag
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/335 frá 27. febrúar 2017 um breytingu á II. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1333/2008 að því er varðar notkun á stevíólglýkósíðum (E 960) sem sætuefni í tiltekið orkuskert sælgæti
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.12 Matvæli
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 124/2017
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Í viðauka II við reglugerð (ESB) nr. 1333/2008 er listi sambandsins yfir aukefni sem leyfð eru í matvæli og skilyrði fyrir notkun þeirra.

Nánari efnisumfjöllun

Í maí 2015 var sótt um leyfi fyrir notkun á stevíól glýkósíðum (E 960) sem sætuefni í nokkrar tegundir af orkuskertu sælgæti.
Umsóknin var kynnt aðildarríkjum í samræmi við ákvæði 4. gr. reglugerðar (EB) nr. 1331/2008.
Stevíól glýkósíð eru sætuefni án hitaeininga sem má nota í stað sykurs í ýmsar tegundir sælgætis sem geta þannig gefið neytendum orkuskertan valkost við hefðbundið sælgæti.
Ef stevíól glýkósíð eru notuð ásamt sykri fæst sætt bragð sem gefur betri bragðupplifun en ef stevíól glýkósíð er notað eingöngu, þar sem sykur felur eftirbragð stevíól glýkósíða.

Framkvæmdastjórnin skal leita álits Matvælaöryggisstofnunar Evrópu (EFSA) þegar uppfæra á lista sambandsins yfir aukefni í viðauka II við reglugerðina. Stofnunin ályktaði um áðurnefnda viðbót við notkun á sætuefninu myndi ekki hafa í för með sér hættu fyrir neytendur.
Því hefur verið samþykkt af hálfu Framkvæmdastjórnarinnar að leyfa notkun á stevíól glýkósíðum (E 960) sem sætuefni í nokkrar tegundir af orkuskertu sælgæti í matvælaflokki 05.2. "Annað sælgæti, þ.m.t. smátöflur sem gefa frískandi andardrátt".

Viðauka II við reglugerð (ESB) nr. 1333/2008 er því breytt í samræmi við það.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Reglugerðin verður innleidd sem breytingarreglugerð við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1333/2008 um aukefni í matvælum og með stoð í lögum um matvæli nr. 93/1995.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Enginn

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Matvælaráðuneytið
Ábyrg stofnun Matvælastofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32017R0335
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 50, 28.2.2017, p. 15
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
C/D numer D048351/02
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 40, 16.5.2019, p. 14
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L 128, 16.5.2019, p. 14