32017R0378

Commission Regulation (EU) 2017/378 of 3 March 2017 amending Annex I to Regulation (EC) No 1334/2008 of the European Parliament and of the Council as regards certain flavouring substances

  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.12 Matvæli
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 125/2017
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Reglugerðin varðar breytingu á viðauka I við reglugerð (EB) nr. 1334/2008, með síðari breytingum, sem hefur að geyma skrá bandalagsins yfir bragðefni og notkunarskilyrði þeirra. Breytingin tekur til notkunarskilyrða fyrir 20 bragðefni á þessum lista.

Nánari efnisumfjöllun

Breytingarnar varða eftirfarandi bragðefni:
deka-2,4-dien-1-ol (FL-nr.02.139), hepta-2,4-dien-1-ol (FL-nr. 02.153), heksa-2,4-dien-1-ol (FL-nr. 02.162), nona-2,4-dien-1-ol (FL-nr. 02.188),heks-2-trans,4-trans-dienal (FL-nr. 05.057), trideka-2-trans,4-cis,7-cis-trienal (FL-nr. 05.064), nona-2,4-dienal (FL-nr. 05.071), 2,4-dekadienal (FL-nr. 05.081), hepta-2,4-dienal (FL-nr. 05.084), penta- 2,4-dienal (FL-nr. 05.101), undeka-2,4-dienal (FL-nr. 05.108), dodeka-2,4-dienal (FL-nr. 05.125), okta-2-trans,4- trans-dienal (FL-nr. 05.127), deka-2-trans,4-trans-dienal (FL-nr. 05.140), deka-2,4,7-trienal (FL-nr. 05.141), nona- 2,4,6-trienal (FL-nr. 05.173), 2,4-oktadienal (FL-nr. 05.186), tr-2,tr-4-nonadienal (FL-nr. 05.194), tr-2,tr-4- undekadienal (FL-nr. 05.196) og heksa-2,4-dienylacetat (FL-nr. 09.573).

Notkunarskilyrðum efnanna er breytt vegna ályktunar Matvælaöryggisstofnunar Evrópu (EFSA) um hugsanleg áhrif efnanna á erfðaefni lífvera. EFSA hefur ályktað um tvö lykilefni sem þykja einkennandi fyrir önnur efni í þessum flokki og telur þau hugsanlega skaða erfðaefni.
Þar til frekari upplýsingar liggja fyrir um áhrif efnanna eru notkun þeirra takmörkuð. Framleiðendur efnanna hafa sent nýjar upplýsingar til framkvæmdastjórnar EB. EFSA mun meta þessar upplýsingar. Þar til ályktun EFSA liggur fyrir er notkunarskilyrðum efnanna breytt.

Bráðabirgðaákvæði: Matvæli sem innihalda þessi 20 braðgefni og eru lögleg á markaði áður en reglugerðin tekur gildi, en eru ekki í samræmi við ákvæði hennar, mega vera á markaði þar til geymsluþol þeirra er útrunnið.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Reglugerðin verður innleidd sem breytingarreglugerð við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1334/2008 um bragðefni í matvælum og með stoð í lögum um matvæli nr. 93/1995.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Enginn

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Matvælaráðuneytið
Ábyrg stofnun Matvælastofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32017R0378
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 58, 4.3.2017, p. 14
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 40, 16.5.2019, p. 16
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L 128, 16.5.2019, p. 16