32017R1271

Commission Regulation (EU) 2017/1271 of 14 July 2017 amending Annex III to Regulation (EC) No 1333/2008 of the European Parliament and of the Council as regards the use of use of silicon dioxide (E 551) in potassium nitrate (E 252)


iceland-flag
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/1271 frá 14. júlí 2017 um breytingu á III. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1333/2008 að því er varðar notkun á kísildíoxíði (E 551) í kalíumnítrat (E 252)
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.12 Matvæli
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 163/2017
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) 2017/1271 um breytingu á III. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1333/2008 að því er varðar notkun á kísildíoxíði (E 551) í kalíumnítrat (E 252)

Nánari efnisumfjöllun

Í viðauka III við reglugerð (ESB) nr. 1333/2008 er að finna lista sambandsins yfir aukefni sem leyfð eru í aukefni, ensím, bragðefni, næringarefni og skilyrði fyrir notkun þeirra.

Listann má uppfæra í samræmi við sameiginlega málsmeðferðina sem um getur í 1. mgr. 3. gr. Reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1331/2008, annaðhvort að frumkvæði framkvæmdastjórnarinnar eða með umsókn.

Sótt var um leyfi fyrir notkun á kísildíoxíði (E 551) sem kekkjavarnarefni í kalíumnítrat (E252). Við geymslu hefur kalíumnítrat tilhneigingu til að mynda kekki eða köggla. Þetta hefur áhrif á notkun þess í matvælavinnslu, þar sem erfiðara er að tryggja flæði og rétta skömmtun á efninu. Umsækjandi hefur sýnt fram á að þau kekkjavarnarefni sem leyfð eru í kalíumnítrat (E252) eru ekki nægilega virk og geta haft áhrif á sýrustig matvæla og þar með vinnslueiginleika. Kalíumdíoxíð hefur ekki slík áhrif.

Vísindanefnd um matvæli(Scientific Committee for Food) setti hópgildi fyrir ásættanlega daglega neyslu fyrir kísildíoxíð og nokkur sílíköt (natríum, kalíum, kalsíum og magnesíum sílíköt) vegna notkunar sem kekkjavarnarefna. Samkvæmt því telst kísildíoxíð ekki vera hættulegt heilsu í því magni sem þarf til að ná tæknilegum tilgangi. Notkun á kísildíoxíði veldur því takmörkuðum váhrifum þegar það er notað sem kekkjavarnarefni.

Samkvæmt gr. 3(2) í reglugerð (EB) nr. 1331/2008, þarf Framkvæmdastjórnin að leita álits EFSA þegar listi Bandalagsins í viðauka III við reglugerð 1333/2008 er uppfærður, nema þegar tallið er að breytingin sé ekki líkleg til að hafa áhrif á heilsu.

Þar sem leyfi til notkunar á kísildíoxíði í kalíumnítrat telst vera breyting á listanum sem ekki er líklegt að hafi áhrif á heilsu, er ekki nauðsynlegt að leita álits EFSA.

Því er lagt til að leyft verði að nota kísildíoxíð (E551) sem kekkjavarnarefni í kalíumnítrat (E 252).
Viðauka III við reglugerð (ESB) nr. 1333/2008 er því breyta í samræmi við það.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Reglugerðin verður innleidd sem breytingarreglugerð við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1333/2008 um aukefni í matvælum og með stoð í lögum um matvæli nr. 93/1995.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Enginn

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Matvælaráðuneytið
Ábyrg stofnun Matvælastofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32017R1271
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 184, 15.7.2017, p. 3
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
C/D numer D050364/02
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 52, 27.6.2019, p. 27
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L 174, 27.6.2019, p. 21