32017R1440

Commission Implementing Regulation (EU) 2017/1440 of 8 August 2017 amending Implementing Regulation (EU) 2016/480 establishing common rules concerning the interconnection of national electronic registers on road transport undertakings


iceland-flag
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/1440 frá 8. ágúst 2017 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2016/480 um sameiginlegar reglur varðandi samtengingu rafrænna landsskráa yfir flutningafyrirtæki á vegum
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 13 Flutningar, 13.02 Flutningar á vegum
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 065/2018
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Markmiðið með reglugerðinni er að bæta úr göllum sem komið hafa upp við notkun á European Registers of Road Transport Undertakings, ERRU. ERRU er skilaboðakerfi rafrænu landsskrárinnar sem komið var á fót með rg 1071/2009. Hún er yfir alla hafa leyfi til að stunda flutninga á vegum. Allar upplýsingar úr skrá hvers lands skulu vera aðgengilegar stjórnvöldum hinna aðildarríkjanna. Til þess var sett reglugerð 1213/2010 en með henni átti að greiða fyrir samtengingunni með ERRU kerfinu. Með reglugerð (ESB) 2016/480 var felld úr gildi reglugerð ESB nr. 1213/2010. Ástæðan er sú að það kerfi sem sett var upp með reglugerð ESB nr. 1213/2010 hefur ekki virkað sem skyldi. Í reglugerð ESB nr. 2016/480 er aðildarríkjunum gefið val um hvort skilaboð á önnur aðildarríki séu send í gegnum ERRU eða eingöngu á milli þessara tveggja aðildarríkja. Með þeirri reglugerð sem hér er til umfjöllunar er gert að skyldu að skilaboð fari um ERRU. Ekki eraukinn kostnaður sérstaklega vegna þessara gerðar.

Nánari efnisumfjöllun

Almennt: Markmiðið með reglugerðinni er að bæta úr þeim annmörkum sem komið hafa upp við notkun á European Registers of Road Transport Undertakings, ERRU. ERRU er rafrænt skilaboðakerfi rafrænu landsskrárinnar sem komið var á fót með reglugerð 1071/2009.
Reglugerð EB nr. 1071/2009, um sameiginlegar reglur varðandi skilyrði sem uppfylla þarf til þess að mega starfa sem flutningsaðili á vegum og um niðurfellingu á tilskipun ráðsins 96/26/EB, er m.a. um skyldu aðildarríkjanna að halda rafræna skrá yfir þá sem fengið hafa leyfi yfirvalda til að stunda flutninga á vegum í atvinnuskyni. Um það fjallar 1. mgr. 16. gr. reglugerðarinnar. Allar upplýsingar úr skrá hvers lands skulu vera aðgengilegar stjórnvöldum hinna aðildarríkjanna. Í 5. og 6. mgr. 16. gr. er sett fram krafa um að landskrár aðildarríkjanna séu samtengdar og að settar verði sameiginlegar reglur um samtengingu.
Í þessum tilgangi var sett reglugerð ESB nr. 1213/2010 um sameiginlegar reglur varðandi samtengingu rafrænna landsskráa yfir flutningafyrirtæki á vegum. Hún átti að greiða fyrir samtengingunni með tilteknu skilaboðakerfi ERRU, eða European Registers of Road Transport Undertakings.
Með reglugerð (ESB) 2016/480 er felld úr gildi reglugerð ESB nr. 1213/2010. Ástæðan er sú að það kerfi sem sett var upp með reglugerð ESB nr. 1213/2010 hefur ekki virkað sem skyldi og fjöldi annmarka komið fram. Því þótti ástæða til að setja nýjar reglur til að bæta úr annmörkum. Þannig á að tryggja samræmda notkun og fylgja þeirri þróun sem hefur orðið undanfarin ár.
Í reglugerð ESB nr. 2016/480 er aðildarríkjunum gefið val um hvort skilaboð sem eiga að fara á önnur aðildarríki séu send í gegnum miðlægt kerfi framkvæmdastjórnarinnar eða eingöngu á milli þessara tveggja aðildarríkja, e. peer-to-peer. Með þeirri reglugerð sem hér er til umfjöllunar er gert að skyldu að öll skilaboð fari í gegnum miðlægt kerfi. Auk þess eru gerðar minniháttar breytingar í því skyni að gera texta reglugerðarinnar nákvæmari og skýrari.
Efnisútdráttur: Reglugerðin inniheldur eftirfarandi 3. ákvæði:
1. gr. - Nýrri málsgrein er bætt við 3. gr. í reglugerð nr. 2016/480/ESB um tengingu aðildarríkis við ERRU, European Registers of Road Transport Undertakings. Tilteknar prófanir þarf að gera áður en af tengingu verður. Framkvæmdastjórninni eru veittar heimildir til aðgerða ef annmarkar eru taldir hafa verið á prófunum.
2. gr. - Viðaukum I, III, VI, VII og VIII við reglugerð nr. 2016/480/ESB er breytt í samræmi við viðauka þessarar reglugerðar en aðallega er um að ræða minniháttar orðalagsbreytingar.
3. gr. – Gildistökuákvæði.
Umsögn: Samkvæmt umsögn um reglugerð (ESB) 2016/480 sem send var ráðuneytinu var gert ráð fyrir að kostnaður við kerfið yrði umtalsverður líklega um 30 m.kr. við að koma upp skránni og tengingu milli landa auk um 10 m.kr. í rekstrarkostnað. Þessi tiltekna gerð ætti ekki að valda frekari kostnaði við uppsetningu kerfisins í heild sinni.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB

Innleiðing

Innleiðing Engar laga- eða reglugerðabreytingar
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Lagastoð er að finna í 34. gr. laga um farþegaflutninga og farmflutninga á landi nr. 28/2017. Reglugerðin verður innleidd með breytingu á reglugerð um leyfi til að stunda farþegaflutninga og farmflutninga á landi nr. 474/2017.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Nánari útskýring á kostnaði, þ.á.m. á hvern hann fellur Gera má ráð fyrir að kostnaður verði umtalsverður líklega um 30 m.kr. við að koma upp skánni og tengingu milli landa auk um 10 m.kr. í rekstrarkostnað.
Áætlaður kostnaður hins opinbera Aukakostnaður

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Innviðaráðuneytið
Ábyrg stofnun Samgöngustofa

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32017R1440
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 206, 9.8.2017, p. 3
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 6, 30.1.2020, p. 53
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L 26, 30.1.2020, p. 62