32017R2311

Commission Implementing Regulation (EU) 2017/2311 of 13 December 2017 setting the weighted average of maximum mobile termination rates across the Union and repealing Implementing Regulation (EU) 2016/2292


iceland-flag
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/2311 frá 13. desember 2017 um vegið meðaltal hæsta verðs fyrir lúkningu símtala í farsíma í Sambandinu og um niðurfellingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2016/2292
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn en er ekki lengur í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 11 Rafræn fjarskipti, hljóð- og myndmiðlun og upplýsingasamfélagið, 11.01 Fjarskiptaþjónusta
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 151/2018
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu Nei

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Innleiðingarreglugerðin er sett í framhaldi af þeim breytingum sem gerðar voru á reikireglugerðinni, nr. 531/2012/EB, með hinni svo kölluðu Telecom Single Market reglugerð, nr. 2015/2120/EB. Þar var boðað að framkvæmdastjórnin myndi setja nánari reglur um Roam Like Home, þ.e. að reikigjöld skyldu miðast við heimaverðskrá notandans. Enn fremur að hámark á álagi sem leggja má á símtöl sem tekið er á móti við reikinotkun, umfram viðmið um sanngjörn not, skuli vera vegið meðaltal slíks verðs innan EES-svæðisin. Verðið skal reiknað út og uppfært einu sinni á ári. Í þessari tilteknu reglugerð er gert ráð fyrir enn einu lækkunarþrepi reikigjalda. Nú er verið að uppfæra útreiknað vegið meðaltal lúkningarverðs í farsíma. Það skal nú vera 0,0091 evrusent fyrir hverja mínútu. Engar kvaðir eru fylgjandi en af hlýst mikil hagsbót fyrir neytendur.

Nánari efnisumfjöllun

Innleiðingarreglugerðin er sett í framhaldi af þeim breytingum sem gerðar voru á reikireglugerðinni, nr. 531/2012/EB, með hinni svo kölluðu Telecom Single Market reglugerð, nr. 2015/2120/EB. Þar var boðað að framkvæmdastjórnin myndi setja nánari reglur um Roam Like Home, þ.e. að reikigjöld skyldu miðast við heimaverðskrá notandans. Enn fremur að hámark á álagi sem leggja má á símtöl sem tekið er á móti við reikinotkun, umfram viðmið um sanngjörn not, skuli vera vegið meðaltal slíks verðs innan EES-svæðisin. Það verð skal reiknað út og uppfært einu sinni á ári. Reikireglugerðin, nr. 531/2012/EB, ásamt þeim breytingum sem gerð var á henni með TSM reglugerðinni hafa verið innleiddar hér á landi.
Í samræmi við ofangreindar reglugerðir hafa reikigjöld, þ.e. lúkningarverðið, verið lækkuð með því að setja á þau hámark á undanförnum árum. Í þessari tilteknu reglugerð er gert ráð fyrir enn einu lækkunarþrepi reikigjalda. Nú er verið að uppfæra útreiknað vegið meðaltal lúkningarverðs í farsíma. Það skal nú vera 0,0091 evrusent fyrir hverja mínútu. Með lúkningarverði er átt við það gjald sem fjarskiptafyrirtæki í því landi sem símtal á sér stað í má leggja á gjaldanda frá öðru ríki til viðbótar þeirri gjaldskrá sem þar gildir. Gjaldið er síðan innheimt af þeim sem hringir fyrir milligöngu þess fjarskiptafyrirtækis sem hann á viðskipti við í sínu heimalandi. Lúkningarverð hafa verið nefnd reikigjöld í almennu tali.
Að áliti Póst- og fjarskiptastofnunar er mikilvægt að innleiðing fari fram sem fyrst. Þá mun Póst- og fjarskiptastofnun taka að sér að upplýsa fjarskiptafyrirtækin um þær verðbreytingar sem eru í vændum.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Lagastoð fyrir innleiðingu reglugerðarinnar er í 2. mgr. 35. gr. laga um fjarskipti nr. 81/2003. Innleiðing fer fram með breytingu á reglugerð nr. 1174/2012 um alþjóðlegt reiki á almennum farsímanetum innan Evrópska efnahagssvæðisins
Staða innleiðingarvinnu Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar

Samráð

Samráð Nei
Hvaða hagsmunaaðilar póst og fjarskiptastofnun

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Innan fjárhagsáætlunar

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið
Ábyrg stofnun Fjarskiptastofa

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32017R2311
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 331, 14.12.2017, p. 39
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
C/D numer D054096/01
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 13, 25.2.2021, p. 47
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L 67, 25.2.2021, p. 44