32018D0853
Decision (EU) 2018/853 of the European Parliament and of the Council of 30 May 2018 amending Regulation (EU) No 1257/2013 and Directives 94/63/EC and 2009/31/EC of the European Parliament and of the Council and Council Directives 86/278/EEC and 87/217/EEC as regards procedural rules in the field of environmental reporting and repealing Council Directive 91/692/EEC
Ákvörðun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/853 frá 30. maí 2018 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 1257/2013 og tilskipunum Evrópuþingsins og ráðsins 94/63/EB og 2009/31/EB og tilskipunum ráðsins 86/278/EBE og 87/217/EBE að því er varðar reglur um málsmeðferð á sviði skýrslugjafar um umhverfismál og um niðurfellingu á tilskipun ráðsins 91/692/EBE
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
Staða tillögu/gerðar | ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi |
---|---|
Svið (EES-samningur, viðauki) | 20 Umhverfismál |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) | 040/2020 |
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu | |
Staðfestur gildistökudagur | |
Í gildi á EES-svæðinu | Já |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Ákvörðun Evrópuþingsins og ráðsins 2018/853 um breytingu reglugerðar 87/217/EEC ráðsins, reglugerðar 2003/87/EC Evrópuþingins og ráðsins, reglugerðar 2009/31/EC Evrópuþingins og ráðsins, reglugerðar (EB) No 1257/2013 Evrópuþingsins og ráðsins, reglugerð ráðsins 86/278/EEC og reglugerð ráðsins 94/63/EC samkvæmt málsmeðferðarreglum á sviði gagnaskila umhverfismála og niðurfelling reglugerð ráðsins 91/692/EEC
Ákvörðunin er lögð fram í samræmi við REFIT aðgerðaráætlunina og er ætlað að fella úr gildi úreld ákvæði og lagasetningar er varða staðlaðar skýrslur á sviði umhverfismála.

Nánari efnisumfjöllun
Tilskipun 86/278/EBE
Sett er heimild fyrir framkvæmdastjórn ESB til að taka upp framseldar gerðir er varða tæknilegar og vísindalegar framfarir við sýnatöku og greiningar á seyru, sbr. viðauka II C. Um leið er ákvæði um sérstaka nefnd, um tæknilegar og vísindalegar framfarir, fellt brott.
Bætt er við ákvæði um að yfirlitsskýrslur aðildarlandanna um notkun seyru skuli vera gerðar á grundvelli leiðbeininga sem framvæmdastjórnin setur með sérstakri gerð.
Tilskipun 87/217/EBE
Felld eru brott ákvæði um að framkvæmdastjórn ESB skuli reglulega gera samanburðarmat á framkvæmd tilskipunarinnar í aðildarríkjunum.
Tilskipun 2003/87/EB og tilskipun 2009/31/EB
Í tilskipun 2003/87/EB og tilskipun 2009/31/EB er kveðið á um skyldu aðildarríkja til að leggja fram skýrslu um framkvæmd viðkomandi gerðar í viðkomandi ríki á grundvelli spurningalista og sniðmáta sem útbúin eru af hálfu framkvæmdastjórnarinnar í samræmi við málsmeðferðarreglur sem kveðið er á um í tilskipun 91/692/EBE. Til þess að koma í veg fyrir lagalegt tómarúm þegar tilskipun 91/692/EBE er felld úr gildi. Þá er í gerðinni sem hér er til greiningar lagt til að í stað þess framkvæmdastjórnin útbúi spurningalista og sniðmát í samræmi við þær málsmeðferðarreglur sem fram komu í tilskipun 91/692/EBE þá skuli það gert í samræmi við viðeigandi málsmeðferðarreglur sem vísað er til í hvorri tilskipun um sig sbr. 1. gr. og 1. tl. 1. mgr. 2. gr.
Þá er lagt til að málsmeðferðarreglum um breytingu á viðaukum við tilskipun 2009/31/EB verði breytt þannig að framkvæmdastjórnin hafi nú heimild til að samþykkja (e. adopt) framseldar gerðir (e. delegated acts) í samræmi við ákvæði 290. gr. sáttmálans um starfshætti Evrópusambandsins (e. Treaty on the Functioning of the European Union (TFEU)) og fyrri ákvæði um málsmeðferðarreglur vegna breytinga á viðaukum við tilskipunina felld á brott.
* Rétt er að benda á tilskipun 2009/31/EB um geymslu koldíoxíðs í jörðu hefur ekki verið að fullu innleidd hér á landi. Í ákvæði 32. gr. a í lögum nr. 70/2012 um loftslagsmál er lagt tímabundið bann við geymslu koldísoxíðs í jarðlögum á þann hátt sem tilskipunin mælir fyrir um. Bannið tekur þó ekki til verkefna í rannsóknar-, þróunar- eða prófunarskyni ef um er að ræða verkefni þar sem ætlunin er að geyma minna en samtals 100 kílótonn koldíoxíðs. Bannið átti því ekki að hafa áhrif á þau tilraunaverkefni sem hafa verið í gangi á þessu sviði á Hellisheiði sem kölluð er CarbFix Eða SulFix. Ákvæðið skyldi svo endurskoðað ekki seinna en árið 2020 og skipaði Umhverfis- og auðlindaráðuneytið nefnd sem ætlað var að vinna drög að regluverki sem mundi gilda til lengri tíma. Nefndin komst að þeirri niðurstöðu að ekki væri þörf að svo stöddu á setningu laga sem kveða á um niðurdælingu og geymslu CO2 í jarðlögum sem taka mið af ákvæðum tilskipunar 2009/31/EB. Þá benti nefndin á að teldi stjórnvöld þörf á setningu reglna um bindingu CO2 í jarðlögum (líkt og gert er í fyrr nefndum tilraunaverkefnum) sé hægt að horfa til laga nr. 57/1998 um rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu, þar sem um margt sambærilegar aðstæður er að ræða.
Reglugerð (ESB) nr. 1257/2013
Breytingar eru gerðar á orðalagi ákvæða sem varða reglubundnar skýrslur sem aðildarlöndin eiga að senda framkvæmdastjórn ESB um þau skip sem eru á leiðinni í endurvinnslu, um endurvinnslu skipa sem er lokið og þegar ólögleg endurvinnsla skipa hefur farið fram.
Tilskipun 94/63/EC
Felldur er út texti tilskipunarinnar þar sem sérstaklega er vísað til þess að skýrslugjöf um framkvæmd hennar skuli vera í samræmi við málsmeðferðina sem mælt er fyrir um í 5. gr. tilskipunar ráðsins 91/692/EBE. Umræddar vísanir voru ekki innleiddar sérstaklega við innleiðingu ákvæða 94/63/EB í reglugerð nr. 252/1999 um varnir við losun rokgjarnra lífrænna efnasambanda (VOC), við geymslu á bensíni og dreifingu þess frá birgðastöðvum til bensínstöðva.
Vakin er athygli á að reglugerð (ESB) nr. 1257/2013 hefur ekki verið tekin inn í EES-samninginn, sbr. staðalskjal. (Adopted act under scrutiny by EEA EFTA).

Staða innan stjórnsýslunnar
Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
---|---|
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Já |
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Já |
Innleiðing
Innleiðing | Reglugerð - breyting eða ný |
---|---|
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta | Breyta þarf m.a. reglugerð nr. 777/2019 um endurvinnslu skipa. Lagastoð í lögum um meðhöndlun úrgangs. |
Staða innleiðingarvinnu | Innleiðing ekki hafin |
Áhrif
Áætlaður kostnaður hins opinbera | Ekki vitað |
---|
Ábyrgðaraðilar
Ábyrgt ráðuneyti | Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið |
---|---|
Ábyrg stofnun | Umhverfisstofnun |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
CELEX-númer | 32018D0853 |
---|---|
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L 150, 14.6.2018, p. 155 |
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
COM numer | COM(2016) 789 |
---|---|
Dagsetning tillögu ESB | |
Dagsetning tillögu | |
Samþykktardagur i ESB |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar | |
---|---|
Staðfestur gildistökudagur | |
Tilvísun í EES-viðbæti | EEA Supplement No 16, 23.2.2023, p. 19 |
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB | OJ L 57, 23.2.2023, p. 19 |