32018L0725

Commission Directive (EU) 2018/725 of 16 May 2018 amending, for the purpose of adaptation to technical and scientific developments, point 13 of part III of Annex II to Directive 2009/48/EC of the European Parliament and of the Council on the safety of toys, as regards chromium VI


iceland-flag
Tilskipun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/725 frá 16. maí 2018 um breytingu á 13. lið í III. hluta II. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/48/EB um öryggi leikfanga, að því er varðar króm VI, í því skyni að laga viðaukann að þróun á sviði tækni og vísinda
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.23 Leikföng
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 190/2018
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Viðauki II í reglugerð nr. 944/2014 um öryggi leikfanga og markaðssetningu þeirra á Evrópska efnahagssvæðinu tekur breytingum. Breytingarnar lúta að töflu í 13. tölul. 3. hluta viðaukans, þar sem flæðimörk hvað varðar frumefnið „Króm (VI)“, mega samkvæmt tilskipuninni að hámarki vera 0,053 mg/kg í leikfangaefni sem skafið er af. Í núverandi reglugerð má magnið vera 0,2 mg/kg í leikfangaefni sem skafið er af.

Nánari efnisumfjöllun

Í tilskipun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/725 er lögð fram breyting að því er varðar viðmiðunarmörk fyrir efnið, Króm VI (e. Chromium) í leikföngum. Vegna þess þarf að gera breytingu á 13. tölul. 3. hluta viðauka II við reglugerð nr. 944/2014, um öryggi leikfanga og markaðssetningu þeirra á Evrópska efnahagssvæðinu.

Í viðauka II reglugerðar nr. 944/2014 er mælt fyrir um sérstakar kröfur sem gerðar eru til leikfanga. Í 3. hluta viðaukans er mælt fyrir um efnafræðilega eiginleika. Í 13. tölul. 3. hluta viðauka II, segir að með fyrirvara um 3., 4. og 5. lið skuli ekki fara yfir eftirfarandi flæðimörk að því er varðar leikföng eða hluta leikfanga hvað varðar tiltekin frumefni.

Eitt þessara frumefna er „Króm (VI)“, en tilskipunin breytir heimiluðu flæðimarki í mg/kg, í leikfangaefni sem skafið er af.

Með innleiðingu tilskipunarinnar mun núverandi tafla núgildandi 13. tölul. 3. hluta II. viðauka taka breytingum.

Með tilskipuninni breytist talan „0,2“ í dálkinum "mg/kg í leikfangaefni sem er skafið af í dálkinum" fyrir frumefnið Króm (VI) „“ í „0,053".

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Breyta þarf töflu í 13. tölul. 3. hluta Viðauka II, reglugerðar nr. 944/2014 um öryggi leikfanga og markaðssetningu þeirra á Evrópska efnahagssvæðinu. Reglugerðin á sér stoð í lögum nr. 134/1995 um öryggi vöru og opinbera markaðsgæslu.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Ekki vitað

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Menningar- og viðskiptaráðuneytið
Ábyrg stofnun Neytendastofa

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32018L0725
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 122, 17.5.2018, p. 29
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
C/D numer D054736/01
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 15, 4.3.2021, p. 25
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L 75, 4.3.2021, p. 26