32018L0850

Directive (EU) 2018/850 of the European Parliament and of the Council of 30 May 2018 amending Directive 1999/31/EC on the landfill of waste

  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 20 Umhverfismál, 20.05 Úrgangur
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 084/2022
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Tilskipunin er ein fjögurra tilskipana sem breyta sex eldri úrgangstilskipunum sem þegar eru í gildi. Því er um að ræða yfirgripsmikla endurskoðun á Evrópulöggjöfinni er varðar úrgang og er megintilgangurinn sá að innleiða hringrásarhagkerfi (e. circular economy) og slíta þannig tengslin á milli hagvaxtar og myndunar úrgangs. Með því verði Evrópa í fararbroddi í úrgangsmálum í heiminum. Lagt er upp með að gera framleiðslu og neyslu í álfunni sjálfbæra, að draga úr myndun úrgangs og að varðveita auðlindir með því að halda hráefni í hringrás. Markmið gerðarinnar er að draga úr urðun úrgangs, einkum úrgangs sem hentar til endurvinnslu eða annarrar endurnýtingar, og styðja þannig við innleiðingu hringrásarhagkerfis. Jafnframt er aukin áhersla lögð á gerð tölulegra upplýsinga um urðun úrgangs, m.a. til að fylgjast með innleiðingu gerðarinnar.

Nánari efnisumfjöllun

Efni gerðarinnar – Helstu breytingar sem felast í gerðinni
Skilgreiningar tólf hugtaka eru samræmdar við þær skilgreiningar sem er að finna í rammatilskipun 2008/98/EB um úrgang. Þessi hugtök eru meðal annars úrgangur, heimilisúrgangur, spilliefni, sérstök söfnun, endurnýting, endurvinnsla og förgun. Skilgreiningu hugtaksins afskekkt byggð er breytt en sú breyting á einungis við tilteknar byggðir undir frönskum, portúgölskum og spænskum yfirráðum.

Gildissviði tilskipunarinnar er breytt með þeim hætti að meðhöndlun úrgangs sem fellur til við námuiðnað á landi, þ.e. við leit, nám, meðhöndlun og geymslu verðmætra jarðefna svo og við starfrækslu grjótnáma stendur nú utan gildissviðsins, að því marki sem hún fellur undir aðra löggjöf ESB.

Með tilskipuninni er aðildarríkjunum gert að leggja bann við urðun úrgangs sem hefur verið safnað sérstaklega til undirbúnings fyrir endurnotkun (e. preparation for re-use) eða til endurvinnslu (e. recycling). Ríkin skulu ennfremur leitast við að tryggja að frá árinu 2030 verði ekki urðaður úrgangur sem hentar til endurvinnslu eða annarrar endurnýtingar. Er þessu ákvæði einkum beint að heimilisúrgangi.

Í tilskipuninni er sett nýtt markmið um að draga úr urðun heimilisúrgangs. Samkvæmt markmiðinu ber hverju aðildarríki að grípa til nauðsynlegra ráðstafana til að tryggja að fyrir árið 2035 verði urðuð að hámarki 10% af þeim heimilisúrgangi sem fellur til í viðkomandi ríki. Ríkjum þar sem urðun heimilisúrgangs var meiri en 60% árið 2013 er veitt svigrúm til að fresta gildistöku þessa markmiðs um allt að 5 ár. Til að svo megi verða ber viðkomandi ríki að tilkynna um það til framkvæmdastjórnar ESB í síðasta lagi tveimur árum áður en ber að ná markmiðinu samkvæmt tilskipuninni og leggja um leið fram sérstaka áætlun um hvernig ríkið hyggist innleiða ráðstafanir til að ná markmiðinu. Sú áætlun skal vera í samræmi við ákvæði viðauka IV, sem er nýr, við tilskipunina.

Í tilskipuninni eru tvær nýjar greinar þar sem kveðið er á um reglur sem aðildarríkjunum ber að fylgja við útreikninga á urðunarhlutfallinu og kveðið á um eftirlit framkvæmdastjórnarinnar með því að aðildarríkin nái settu markmiði. Skal framkvæmdastjórnin einnig setja sérstaka framkvæmdargerð sem mælir frekar fyrir um reglur við útreikningana og við skýrslugjöf aðildarríkjanna. Framkvæmdastjórnin fær jafnframt hlutverk við að koma á reglubundnum upplýsingaskiptum á milli aðildarríkjanna um framkvæmd gerðarinnar.

Ný grein um skýrslugjöf kemur í stað eldri greinar. Ekki er lengur skylda fyrir aðildarríkin að senda framkvæmdastjórninni skýrslur um innleiðingu gerðarinnar, eins og skylt hefur verið að gera á þriggja ára fresti. Á móti kemur að skýrslur yfir úrgangstölfræði eru gerðar ítarlegri og ætlar framkvæmdastjórnin að nýta þessar skýrslur ríkjanna til að hafa eftirlit með innleiðingu gerðarinnar. Er því ríkjunum nú gert að senda árlega skýrslu yfir hvernig gengur að ná því tölulega markmiði sem gerðin mælir fyrir um. Skal framkvæmdastjórnin setja sérstaka framkvæmdargerð sem mælir fyrir um það form sem ber að fylgja við skýrslugjöfina. Gerð er krafa um að gæðaskýrslur fylgi tölfræðiskýrslum til framkvæmdastjórnarinnar.

Í nýrri grein er aðildarríkjunum gert skylt að nota efnahagsleg stjórntæki og aðrar ráðstafanir til að ýta undir rétta meðhöndlun úrgangs, sbr. forgangsröðun við meðhöndlun úrgangs (e. waste hierarchy), í samræmi við markmið tilskipunarinnar. Dæmi um slík efnahagsleg stjórntæki og ráðstafanir eru í viðauka IVa við tilskipun 2008/98/EB.

Samkvæmt gerðinni er framkvæmdastjórninni gert að setja sérstakar framkvæmdargerðir til að mæla fyrir um aðferðafræði við ákvörðun lektarstuðuls fyrir urðunarstaði og til að mæla fyrir um staðal fyrir sýnatökur af úrgangi.

Viðaukum I, II og III við tilskipunina er breytt og bætt við nýjum viðauka, þ.e. viðauka IV.

Gildistaka gerðarinnar
Gerðin tók gildi 4. júlí 2018 og ber aðildarríkjunum að uppfylla ákvæði hennar eigi síðar en 5. júlí 2020.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB
Sent til Alþingis

Innleiðing

Innleiðing Lagasetning/lagabreyting
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Lagabreyting – lög nr. 55/2002 um meðhöndlun úrgangs.
Breyta þarf skilgreiningu á lífrænum úrgangi
Bann við urðun á endurnýtanlegum úrgangi

Reglugerðarbreyting – Reglugerð nr. 738/2003, um urðun úrgangs
-Breyting á 3. gr. reglugerðarinnar: Bæta við skilgreiningum og breyta eldri skilgreiningum. (2. mgr. 1. gr. tilskp.)
-Breyting á 2. gr. reglugerðarinnar: Setja takmörkun á gildissvið að því er varðar meðhöndlun úrgangs sem fellur til við námuiðnað á landi. (3. mgr. 1. gr. tilskp.)
-Breyting á 8. gr. reglugerðarinnar: Innleiða bann við urðun úrgangs sem hefur verið safnað sérstaklega til undirbúnings fyrir endurnotkun eða til endurvinnslu. (b-liður 4. mgr. 1. gr. tilskp.)

Reglugerðarbreyting – Reglugerð nr. 737/2003, um meðhöndlun úrgangs
-Breyting á 13. gr. reglugerðarinnar: Við bætist ný mgr., sem verður 4. mgr., sem innleiðir nýtt markmið um urðun heimilisúrgangs. Ekki er talin þörf á að nýta heimild til að fresta gildistöku markmiðsins. (d-liður 4. mgr. 1. gr. tilskp.)
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing í vinnslu

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Ekki vitað

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Ábyrg stofnun Umhverfisstofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32018L0850
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 150, 14.6.2018, p. 100
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

COM numer COM(2015) 594
Dagsetning tillögu ESB
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 45, 7.7.2022, p. 63
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L 182, 7.7.2022, p. 75