32018R0213

Commission Regulation (EU) 2018/213 of 12 February 2018 on the use of bisphenol A in varnishes and coatings intended to come into contact with food and amending Regulation (EU) No 10/2011 as regards the use of that substance in plastic food contact materials


iceland-flag
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/213 frá 12. febrúar 2018 um notkun á bisfenóli A í lökk og yfirborðsmeðferðarefni sem ætlað er að komast í snertingu við matvæli og um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 10/2011 að því er varðar notkunina á því efni í efnivið úr plasti sem kemst í snertingu við matvæli
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.12 Matvæli
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 136/2018
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/213 um breytingu og leiðréttingu á reglugerð (ESB) nr. 10/2011 um efnivið og hluti úr plasti sem ætlað er að komast í snertingu við matvæli.

Nánari efnisumfjöllun

Gerðin varðar breytingar á reglugerð (ESB) nr. 10/2011 um efnivið og hluti úr plasti sem ætlað er að komast í snertingu við matvæli.
Reglugerð 10/2011 setur sérstakar reglur um plast sem ætlað er til snertingar við matvæli. Reglugerðinni fylgir skrá Evrópusambandsins yfir efni sem leyfilegt er að nota við framleiðslu á plasti.

Í reglugerð 2018/213 er kveðið á um eftirfarandi breytingar á rg. 10/2011:

1. Breyting á sértækum flæðimörkum (SML) fyrir bisfenól A (BPA) í plasti. Flæðimörk fyrir BFA eru lækkuð úr 0,6 mg/kg matvæli í 0,05 mg/kg matvæla.
2. Nýtt ákvæði - sett eru flæðimörk fyrir BPA úr lökkum og yfirborðsmeðhöndlunarefnum sem ætlað er að komast í snertingu við matvæli, t.d. lakk á niðursuðudósum. Sértæk flæðimörk eru 0,05 mg/kg matvæla.
3. Nýtt ákvæði - BPA skal ekki flæða frá lakki og yfirborðsmeðhöndlunarefnum matvælasnertiefna sem ætlað er börnum og ungbörnum, eins og skilgreint er í reglugerð (ESB) nr. 609/2013.
BPA er notað sem einliða í framleiðslu á polycarbonat plasti og í lökk og yfirborðsmeðhöndlunarefni sem notuð eru m.a. inni í niðursuðudósir. EFSA hefur nokkrum sinnum gert áhættumat á BPA. EFSA hefur nú endurskoðað áhættumatið og gefið út nýtt viðmiðunargildi fyrir þolanlega daglega inntöku (TDI) á bisfenol A.
Ný sértæk flæðimörk (SML) eru sett í samræmi við þetta gildi og einnig er tekið tillit til að BPA getur borist eftir öðrum leiðum en frá matvælasnertiefnum, s.s. hitanæmum pappír (kassastrimlum). Því hefur verið ákveðið að einungis 20% af TDI megi koma frá matvælasnertiefnum.
Bisfenol A er í dag bannað að nota í pela sem gerðir eru úr polycarbonat plasti. Þetta er gert í samræmi við varrúðarregluna.
Af sömu ástæðu hefur nú verið ákveðið að þetta bann gildi einnig um flæði á BPA frá lökkum og yfirborðsmeðhöndlunarefnum sem notuð eru í matvælasnertiefni sem er ætlað börnum.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Reglugerðin verður innleidd sem breytingarreglugerð við reglugerð nr. 374/2012 og með stoð í lögum nr. 93/1995 um matvæli.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Enginn

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Matvælaráðuneytið
Ábyrg stofnun Matvælastofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32018R0213
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 41, 14.2.2018, p. 6
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
C/D numer D052935/03
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 13, 25.2.2021, p. 24
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L 67, 25.2.2021, p. 24