32018R0336
Commission Regulation (EU) 2018/336 of 8 March 2018 amending Regulation (EC) No 748/2009 on the list of aircraft operators which performed an aviation activity listed in Annex I to Directive 2003/87/EC on or after 1 January 2006 specifying the administering Member State for each aircraft operator
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/336 frá 8. mars 2018 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 748/2009 um skrána yfir umráðendur loftfara sem stunduðu flugstarfsemi sem tilgreind er í I. viðauka við tilskipun 2003/87/EB 1. janúar 2006 eða eftir þann dag þar sem ábyrgðarríki hvers umráðanda loftfars er tilgreint
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
Staða tillögu/gerðar | ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi |
---|---|
Svið (EES-samningur, viðauki) | 20 Umhverfismál, 20.03 Loft |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) | 166/2018 |
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu | |
Staðfestur gildistökudagur | |
Í gildi á EES-svæðinu | Já |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Reglugerð (EB) nr. 748/2009 var sett til að uppfylla skyldur framkvæmdastjórnarinnar skv. 3. tl. 18. gr. a tilskipunar 2003/87/EB, eins og henni var breytt með 4. tl. 1. gr. tilskipunar 2008/101/EB. Með reglugerðinni var lögfestur listi yfir flugrekendur sem heyra undir viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir auk þess sem tilgreint er hvaða aðildarríki telst umsjónarríki hvers flugrekanda í skilningi tilskipunar 2003/87/EB.
Nánari efnisumfjöllun
Listinn í viðauka við reglugerðina er miðlægur upplýsingagrunnur um alla flugrekendur sem falla undir gildissvið viðskiptakerfisins. Hann hefur jafnframt það hlutverk að flokka flugrekendur niður á umsjónarríki eftir þeim reglum sem fram koma í fyrrnefndri tilskipun. Reglur um umsjónarríki eru í grófum dráttum þessar: Flugrekendur sem skráðir eru innan EES falla undir það ríki sem gaf flugrekstrarleyfi þeirra út. Flugrekendur frá ríkjum utan EES raðast hins vegar niður á umsjónarríki eftir því hvert má rekja meirihluta af losun þeirra innan viðskiptakerfisins árið 2006.
Í aðfaraorðum reglugerðarinnar kemur fram að lista þessum sé ætlað að draga úr stjórnsýslu flugrekstraraðila og veita upplýsingar til flugrekstraraðila um hvaða aðildarríki muni framfylgja kröfum viðskiptakerfisins gagnvart sér og að hverju aðildarríki sé ljóst hvaða flugrekendum því beri að hafa umsjón með. Tekið er fram í aðfaraorðunum að listanum sé þó ekki ætlað að skera úr um það hvort flugrekandi falli undir gildissvið viðskiptakerfisins, heldur ráðist það eingöngu af gildissviði tilskipunar 2003/87/EB. Ef flugrekandi stundar starfsemi sem fellur undir gildissvið tilskipunarinnar heyrir hann því undir viðskiptakerfið hvort sem hans er getið á listanum eða ekki. Að sama skapi eru flugrekendur sem hafa hætt flugstarfsemi sem heyrir undir gildissvið tilskipunar 2003/87/EB ekki hluti viðskiptakerfisins þótt þeirra sé getið á listanum.
Með reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/336 er lögfestur nýr viðauki yfir flugrekendur og þeim eldri samkvæmt reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/294 skipt út fyrir hann.
Samkvæmt viðauka reglugerðar (ESB) 2018/336 verða 239 flugrekendur í umsjón Íslands (Umhverfisstofnunar), meðan viðaukinn er í gildi. Flugrekendum fækkar því um tvo á því tímabili en fjöldi þessara flugrekenda var 241 skv. viðauka við reglugerð (ESB) 2017/294.

Staða innan stjórnsýslunnar
Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
---|---|
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Já |
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Já |
Innleiðing
Innleiðing | Reglugerð - breyting eða ný |
---|---|
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta | Innleiða þarf reglug. með tilvís.aðferð með breyt. á reglug. nr. 896/2012 um hvaða flugrekendur heyra undir umsjón Íslands í viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir. Lagastoð er að finna í 4.mgr. 16.gr. laga nr. 70/2012 um loftslagsmál, með síðari breyt. |
Staða innleiðingarvinnu | Innleiðing ekki hafin |
Samráð
Samráð | Nei |
---|
Áhrif
Áætlaður kostnaður hins opinbera | Ekki vitað |
---|
Ábyrgðaraðilar
Ábyrgt ráðuneyti | Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið |
---|---|
Ábyrg stofnun | Umhverfisstofnun |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
CELEX-númer | 32018R0336 |
---|---|
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L 70, 13.3.2018, p. 1 |
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
Samþykktardagur i ESB |
---|
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar | |
---|---|
Staðfestur gildistökudagur | |
Tilvísun í EES-viðbæti | EEA Supplement No 13, 25.2.2021, p. 66 |
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB | OJ L 67, 25.2.2021, p. 61 |