32018R0401
Commission Regulation (EU) 2018/401 of 14 March 2018 amending Regulation (EU) No 139/2014 as regards the classification of runways
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/401 frá 14. mars 2018 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 139/2014 að því er varðar flokkun flugbrauta
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
| Staða tillögu/gerðar | ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi |
|---|---|
| Svið (EES-samningur, viðauki) | 13 Flutningar, 13.06 Almenningsflug |
| Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) | 117/2018 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu | |
| Staðfestur gildistökudagur | |
| Í gildi á EES-svæðinu | Já |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Í reglugerð (ESB) nr. 139/2014 er kveðið á um kröfur og stjórnsýslumeðferð að því er varðar flugvelli samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 216/2008.
Í þeim drögum sem hér eru til umræðu eru lagðar til breytingar á ákvæðum reglugerðar (ESB) nr. 139/2014 m.a. í því skyni að ákvæði hennar endurspegli nýjustu tækni og bestu starfsvenjur á hverjum tíma og þannig að þau taki tillit til viðeigandi alþjóðaviðmiða Alþjóðaflugmálastofnunarinar (ICAO).

Nánari efnisumfjöllun
Í viðauka I við reglugerð (ESB) nr. 139/2014 er sett fram skilgreining á blindflugsbraut (instrument runway).
Með breytingu 11-B á viðauka 14 Alþjóðaflugmálastjórnarinnar (ICAO) sem fjallar um flugvelli hefur skilgreining á flugbraut verið sett fram á einfaldari og hnitmiðaðri hátt þar sem vísað er til aðflugs þar sem notuð er hæfisbundin leiðsaga.
Hæfisbundin leiðsaga er flugleiðsöguþjónusta sem byggir á kröfum um hæfni fyrir loftför á flugleið, í blindaðflugi eða í tilteknu loftrými. Með öðrum orðum eru gerðar sérstakar reglur um hvernig beri að fljúga til og frá tilteknum flugvöllum og eftir tilteknum flugleiðum með hliðsjón af aðstæðum. Við hæfisbundna leiðsögu er notuð gervihnattaleiðsaga og flugþjónustuleiðir sem hannaðar eru með slíka leiðsögu í huga og birtar í flugmálahandbók.
Drögin byggjast á áliti EASA nefndarinnar Nr. 3/2016.
Tilgangur þeirrar breytingar sem hér um ræðir er að aðlaga reglugerðarumhverfið að þeirri tækniþróun sem orðið hefur með tilkomu hæfisbundinnar leiðsögu.
Þannig er nú ekki lengur fjallað um beint aðflug (straight in approach) í skilgreiningu á grunnaðflugsbraut (non-precision approach runway) heldur snýr skilgreiningin einungis að lágmarksákvörðunarhæð.
Samgöngustofa telur að þessi breyting á skilgreiningu geti haft í för með sér minni kostnað fyrir rekstraraðila flugvallar (Isavia) en Samgöngustofa hefur ekki haft samráð við Isavia sérstaklega.
Mat á kostnaði: Uppfæra þarf þjálfunarhandbækur og verkferla hjá Samgöngustofu í tengslum við eftirlit.
Mat á kostnaði Isavia liggur ekki fyrir.

Staða innan stjórnsýslunnar
| Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
|---|---|
| Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
| Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Já |
| Alþingi hefur lokið mati sínu | Á ekki við |
| Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Já |
Innleiðing
| Innleiðing | Reglugerð - breyting eða ný |
|---|---|
| Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta | Laastoð er í lofterðalögum 60/1998 síðari breytingum. Breyta þarf reglugerð 75/2016 um kröfur og stjórnsýslumeðferð er varða flugvelli ksv... |
| Staða innleiðingarvinnu | Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar |
Samráð
| Samráð | Nei |
|---|
Áhrif
| Áætlaður kostnaður hins opinbera | Ekki vitað |
|---|
Ábyrgðaraðilar
| Ábyrgt ráðuneyti | Innviðaráðuneytið |
|---|---|
| Ábyrg stofnun | Samgöngustofa |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
| CELEX-númer | 32018R0401 |
|---|---|
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
| Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L 72, 15.3.2018, p. 17 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
| Dagsetning tillögu ESB | |
|---|---|
| C/D numer | D049657/04 |
| Dagsetning tillögu | |
| Samþykktardagur i ESB |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
| Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar | |
|---|---|
| Staðfestur gildistökudagur | |
| Tilvísun í EES-viðbæti | EEA Supplement No 71, 5.11.2020, p. 21 |
| Tilvísun í stjórnartíðindi ESB | OJ L 368, 5.11.2020, p. 18 |
Staða innleiðingar samkvæmt ESA
| Staða innleiðingar á Íslandi samkvæmt ESA | Græn: Innleitt |
|---|---|
| Viðeigandi lög/reglugerði |
|
Breytir (Modifies)
| 32014R0139 | amends | Commission Regulation (EU) No 139/2014 of 12 February 2014 laying down requirements and administrative procedures related to aerodromes pursuant to Regulation (EC) No 216/2008 of the European Parliament and of the Council | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
| 32008R0216 | based on | Regulation (EC) No 216/2008 of the European Parliament and of the Council of 20 February 2008 on common rules in the field of civil aviation and establishing a European Aviation Safety Agency, and repealing Council Directive 91/670/EEC, Regulation (EC) No 1592/2002 and Directive 2004/36/EC | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
Flokkun (Classifications)
| EUROVOC | airport, technical standard, air traffic |
|---|---|
| Subject matter | Transport |