32018R0461

Commission Implementing Regulation (EU) 2018/461 of 20 March 2018 authorising an extension of use of taxifolin-rich extract as a novel food under Regulation (EU) 2015/2283 of the European Parliament and of the Council, and amending Commission Implementing Regulation (EU) 2017/2470


iceland-flag
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/461 frá 20. mars 2018 um leyfi fyrir rýmkun á notkun á taxifólínauðugum útdrætti sem nýfæði samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2283 og um breytingu á framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/2470
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.12 Matvæli
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 140/2018
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Framkvæmdagerð framkvæmdastjórnarinnar 2018/461 um áframhaldandi leyfi til notkunar á taxifolinríkum útdrætti sem nýfæði í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2283 um nýfæði og um breytingu á framkvæmdagerð framkvæmda-stjórnarinnar (ESB) 2017/2470

Nánari efnisumfjöllun

Gerðin varðar reglugerð (ESB) nr. 2015/2283 um markaðssetningu og notkun á nýfæði innan Evrópu-sambandsins. Í samræmi við 8. gr. þeirrar reglugerðar og með framkvæmdareglugerð 2017/2470 var komið á fót lista sambandsins yfir leyfilegt nýfæði.

Fyrirtækið Ametis JSC sótti um leyfi fyrir nýfæði til Matvælaöryggisstofnunar Bretlands í ágúst 2010. Sótt var um leyfi til að nota taxifolinríkan útdrátt úr dáríulerki (Larix gmelinii) sem nýfæði í fæðubótarefni fyrir fólk 14 ára og eldra og í óáfenga drykki, jógúrt og súkkulaði til almennrar notkunar, en þó ekki fyrir ungbörn og smábörn og börn að 8 ára aldri. Matvælaöryggisstofnunin óskaði umsagnar Matvælaöryggis-stofnunar Evrópu (EFSA) um fyrirhugaða notkun.

Þann 13. desember 2016 gaf EFSA álit um öryggi notkunar á taxifolinríkum útdrætti sem nýfæði til notkunar í fæðubótarefni í samræmi við reglugerð (ESB) nr. 258/97. EFSA ályktaði að notkun í fæðubótarefni í því magni sem sótt var um væri öruggt.
Framkvæmdastjórnin gaf leyfi fyrir notkuninni, byggt á áliti EFSA, með framkvæmdareglugerð (ESB) 2017/2079, í samræmi við reglugerð 258/97. Framkvæmdastjórnin óskaði hins vegar frekara öryggismats áður en tekin yrði ákvörðun um notkun á efninu í önnur matvæli en fæðubótarefni.

Umsækjandi féllst á rök framkvæmdastjórnarinnar um frekara mat og óskaði jafnframt eftir að fá að auka við umsóknina og sótti um leyfi til að nota taxifólinríkan útdrátt sem nýfæði í mjólkurvörur til almennrar notkunar og veitti EFSA jafnfram frekari upplýsingar sem óskað var eftir. Framkvæmdastjórnin óskaði umsagnar EFSA um fyrirhugaða notkun.

Samkvæmt 35. gr. reglugerðar (ESB) 2015/2283 skulu umsóknir um leyfi fyrir nýfæði sem eru byggðar á 4. gr. reglugerðar (ESB) 258/97 og ekki hefur verið tekin ákvörðun um fyrir 1. janúar 2018 meðhöndlaðar í samræmi við reglugerð 2015/2283.

EFSA gaf jákvætt álit um fyrirhugaða notkun í áliti sýnu í október 2017. Álitið er í samræmi við 11. gr. reglugerðar 2015/2283.

Taxifolin-ríkum útdrætti skal því bætt á lista yfir leyfilegt nýfæði til markaðssetningar í Evrópusambandinu með þeim skilyrðum

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Reglugerðin verður innleidd sem viðbót við framkvæmdarreglugerð 2017/2470 um lista sambandsins yfir leyfilegt nýfæði og með stoð í lögum um matvæli nr. 93/1995, með síðari breytingum.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Innan fjárhagsáætlunar

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Matvælaráðuneytið
Ábyrg stofnun Matvælastofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32018R0461
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 78, 21.3.2018, p. 7
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
C/D numer D055390/03
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 13, 25.2.2021, p. 30
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L 67, 25.2.2021, p. 30