32018R0462

Commission Implementing Regulation (EU) 2018/462 of 20 March 2018 authorising an extension of use of L-ergothioneine as a novel food under Regulation (EU) 2015/2283 of the European Parliament and of the Council, and amending Commission Implementing Regulation (EU) 2017/2470


iceland-flag
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/462 frá 20. mars 2018 um leyfi fyrir rýmkun á notkun á L-ergóþíóneíni sem nýfæði samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2283 og um breytingu á framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/2470
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.12 Matvæli
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 140/2018
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Framkvæmdagerð framkvæmdastjórnarinnar 2018/462 um áframhaldandi leyfi til notkunar á L-ergoþíonein sem nýfæði í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2283 um nýfæði og um breytingu á framkvæmdagerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/2470.

Nánari efnisumfjöllun

Gerðin varðar reglugerð (ESB) nr. 2015/2283 um markaðssetningu og notkun á nýfæði innan Evrópusambandsins. Í samræmi við 8. gr. þeirrar reglugerðar og með framkvæmdareglugerð 2017/2470 var komið á fót lista sambandsins yfir leyfilegt nýfæði.

Fyrirtækið Tetrahedron sótti um leyfi til Matvælaöryggisstofnunar Frakklands í júlí 2013 fyrir markaðssetningu á efnafræðilega framleiddri L-ergothioneine amínósýru, sem nýfæði. Sótt var um leyfi til að nota amínósýruna í fæðubótarefni fyrir neytendur eldri en þriggja ára, að undanskildum þunguðum konum og konum með börn á brjósti. Jafnframt var sótt um að fá að nota efnið í óáfenga drykki, mjólkurdrykki, kornstangir og súkkulaði fyrir almenna neytendur, aðra en ungbörn og smábörn.

Þann 26. október 2016 gaf EFSA álit um öryggi L-ergothioneine sem nýfæðis til notkunar í fæðubótarefni í samræmi við reglugerð (ESB) nr. 258/97. EFSA ályktaði að notkun í fæðubótarefni í því magni sem sótt var um væri öruggt.
Framkvæmdastjórnin gaf leyfi fyrir notkuninni, byggt á áliti EFSA, með framkvæmdareglugerð (ESB) 2017/1281.

Þessi reglugerð tekur á umsókn um aðra notkun á L-ergothioneine, sem sótt var um í upphaflegri umsókn Tetrahedron. Framkvæmdastjórnin óskaði frekari áhættumats áður en veitt væri leyfi fyrir notkun efnisins í önnur matvæli en fæðubótarefni.

Samkvæmt 35. gr. reglugerðar (ESB) 2015/2283 skulu umsóknir um leyfi fyrir nýfæði sem eru byggðar á reglugerð (ESB) 258/97, og ekki hefur verið tekin ákvörðun um fyrir 1. janúar 2018, meðhöndlaðar í samræmi við reglugerð 2015/2283.

EFSA gaf jákvætt álit um fyrirhugaða notkun í október 2017. Álitið er í samræmi við 11. gr. reglugerðar 2015/2283.

L-ergothioneine er því bætt á lista yfir leyfilegt nýfæði til markaðssetningar í Evrópusambandinu með þeim skilyrðum sem fram koma í þessari reglugerð og í viðauka með henni.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Reglugerðin verður innleidd sem viðbót við framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2017/2470 um lista sambandsins yfir leyfilegt nýfæði og með stoð í lögum um matvæli nr. 93/1995, með síðari breytingum.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Innan fjárhagsáætlunar

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Matvælaráðuneytið
Ábyrg stofnun Matvælastofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32018R0462
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 78, 21.3.2018, p. 11
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
C/D numer D055389/04
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 13, 25.2.2021, p. 30
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L 67, 25.2.2021, p. 30