32018R0469

Commission Implementing Regulation (EU) 2018/469 of 21 March 2018 authorising the placing on the market of an extract of three herbal roots (Cynanchum wilfordii Hemsley, Phlomis umbrosa Turcz. and Angelica gigas Nakai) as a novel food under Regulation (EU) 2015/2283 of the European Parliament and of the Council, and amending Commission Implementing Regulation (EU) 2017/2470


iceland-flag
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/469 frá 21. mars 2018 um leyfi til að setja á markað útdrátt þriggja plönturóta (Cynanchum wilfordii Hemsley, Phlomis umbrosa Turcz. og Angelica gigas Nakai) sem nýfæði samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2283 og um breytingu á framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/2470
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.12 Matvæli
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 140/2018
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Framkvæmdagerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) frá 2018/469 um leyfi til markaðssetningar á útdrætti úr þremur jurtarótum (Cynanchum wilfordii Hemsley, Phlomis umbrosa Turcz. og Angelica gigas Nakai) sem nýfæði í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2283 um nýfæði og um breytingu á framkvæmdagerð framkvæmda-stjórnarinnar (ESB) 2017/2470.

Nánari efnisumfjöllun

Gerðin varðar reglugerð (ESB) nr. 2015/2283 um markaðssetningu og notkun á nýfæði innan Evrópusambandsins. Í samræmi við 8. gr. þeirrar reglugerðar og með framkvæmdareglugerð 2017/2470 var komið á fót lista sambandsins yfir leyfilegt nýfæði.

Fyrirtækið Naturalendo Tech Co., Ltd sótti um leyfi til Matvælaöryggisstofnunar Írlands þann 13. mars 2014 fyrir markaðssetningu á útdrætti úr þremur jurtarótum (Cynanchum wilfordii Hemsley, Phlomis umbrosa Turcz. og Angelica gigas Nakai) sem nýfæði. Sótt var um leyfi til að nota efnið í fæðubótarefni ætlað konum eftir tíðahvörf.

Frummat Írsku matvælaöryggisstofnunarinnar var að útdráttur úr blöndu þessara þriggja jurtaróta uppfyllti kröfur sem gerðar eru til nýfæðis í grein 3(1) í reglugerð (ESB) nr. 258/97. Framkvæmdastjórnin sendi álit Írsku matvælaöryggisstofnunarinnar til ríkja sambandsins í september 2015. Gerðar voru rökstuddar athugasemdir við álitið, sbr. grein 6(4) í reglugerð 258/97.

Í ljósi rökstuddra athugasemda sem gerðar voru, óskaði framkvæmdastjórnin álits Evrópsku matvælaöryggisstofnunarinnar (EFSA) um öryggi efnisins til notkunar í fæðubótarefni. EFSA skilaði áliti sýnu í september 2016 og ályktaði að notkun í fæðubótarefni væri örugg miðað við hámarks daglega inntöku á 175 mg. EFSA benti jafnframt á að hætta væri á ofnæmisviðbrögðum vegna Angelica gigas Nakai, en jurtin er af sveipjurtaætt (Apiaceae) eins og sellerý. Þar sem sellerý er þekktur ofnæmis og óþolsvaldur og merkingarskyld skv. reglugerð 1169/2011, er nauðsynlegt að merkja þetta nýfæði í samræmi við það.

Samkvæmt 35. gr. reglugerðar (ESB) 2015/2283 skulu umsóknir um leyfi fyrir nýfæði sem eru byggðar á 4. gr. reglugerðar (ESB) 258/97 og ekki hefur verið tekin ákvörðun um fyrir 1. janúar 2018 meðhöndlaðar í samræmi við reglugerð 2015/2283.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Reglugerðin verður innleidd sem viðbót við framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2017/2470 um lista sambandsins yfir leyfilegt nýfæði og með stoð í lögum um matvæli nr. 93/1995, með síðari breytingum.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Innan fjárhagsáætlunar

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Matvælaráðuneytið
Ábyrg stofnun Matvælastofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32018R0469
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 79, 22.3.2018, p. 11
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
C/D numer D055374/04
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 13, 25.2.2021, p. 30
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L 67, 25.2.2021, p. 30