32018R0991

Commission Implementing Regulation (EU) 2018/991 of 12 July 2018 authorising the placing on the market of hen egg white lysozyme hydrolysate as a novel food under Regulation (EU) 2015/2283 of the European Parliament and of the Council, and amending Commission Implementing Regulation (EU) 2017/2470


iceland-flag
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/991 frá 12. júlí 2018 um leyfi til að setja á markað vatnsrofsefni lýsósíms úr hænueggjahvítum sem nýfæði samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2283 og um breytingu á framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/2470
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.12 Matvæli
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 233/2018
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Framkvæmdagerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/991 um leyfi fyrir markaðssetningu á vatnsrofnu hænueggjalýsósími, sem nýfæði í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2283 um nýfæði og um breytingu á framkvæmdagerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/2470

Nánari efnisumfjöllun

Gerðin varðar reglugerð (ESB) nr. 2015/2283 um markaðssetningu og notkun á nýfæði innan Evrópusambandsins og framkvæmdareglugerð 2017/2470 sem kveður á um lista Sambandsins yfir leyfilegt nýfæði.

Sótt var um leyfi fyrir markaðssetningu á vatnsrofnu lýsósími úr hænueggjahvítu, sem nýfæði innan sambandsins. Í umsókninni var óskað eftir að fá að nota efnið í fæðubótarefni og óáfenga drykki. Umsóknin var í samræmi við reglugerð (EB) nr. 258/97.
Samkvæmt 35. gr. reglugerðar (ESB) 2015/2283 skulu umsóknir um leyfi fyrir nýfæði, sem eru byggðar á 4. gr. reglugerðar (ESB) 258/97 og ekki hefur verið tekin ákvörðun um fyrir 1. janúar 2018 meðhöndlaðar í samræmi við reglugerð 2015/2283.

Athugasemdir voru gerðar við umfang fyrirætlaðrar notkunar. Umsækjandi breytti þá umsókninni og takmarkast hún við notkun í fæðubótarefni eingöngu.

Framkvæmdastjórnin féllst á umsóknina með breytingum og telur að hún samræmist gr. 12(1) í reglugerð 2015/2283. Notkunin skal einnig vera í samræmi við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2002/46/EB.

Vatnsrofið hænu eggja lýsósím, eins og skilgreint er í viðauka við þessa reglugerð, skal fært lista sambandsins yfir leyfilegt nýfæði og með þeim skilyrðum sem þar koma fram.

Viðauka við framkvæmdareglugerð (ESB) 2017/2470 er breytt í samræmi við viðauka við þessa reglugerð.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Reglugerðin verður innleidd sem breyting á framkvæmdareglugerð 2017/2470 um lista sambandsins yfir leyfilegt nýfæði og með stoð í lögum um matvæli nr. 93/1995.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Innan fjárhagsáætlunar

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Matvælaráðuneytið
Ábyrg stofnun Matvælastofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32018R0991
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 177, 13.7.2018, p. 9
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
C/D numer D056015/02
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 62, 23.9.2021, p. 20
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L 337, 23.9.2021, p. 22