32018R1011

Commission Implementing Regulation (EU) 2018/1011 of 17 July 2018 authorising an extension of use levels of UV-treated mushrooms as a novel food under Regulation (EU) 2015/2283 of the European Parliament and of the Council, and amending Commission Implementing Regulation (EU) 2017/2470


iceland-flag
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1011 frá 17. júlí 2018 um leyfi fyrir rýmkun á notkun á sveppum, meðhöndluðum með útfjólubláu ljósi, sem nýfæði samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2283 og um breytingu á framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/2470
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.12 Matvæli
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 233/2018
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Framkvæmdagerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1011 um framlengingu á leyfi til meðhöndlunar á sveppum með útfjólubláu ljósi í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2283 um nýfæði og um breytingu á framkvæmdagerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/2470

Nánari efnisumfjöllun

Gerðin varðar reglugerð (ESB) nr. 2015/2283 um markaðssetningu og notkun á nýfæði innan Evrópusambandsins. Í samræmi við 8. gr. þeirrar reglugerðar og með framkvæmdareglugerð 2017/2470 var komið á fót lista sambandsins yfir leyfilegt nýfæði.

Fyrirtækin Banken Champignons Groep B.V. og J.K. Holding B.V. sóttu um leyfi til Matvælaöryggisstofnunar Hollands þann 23. Júlí 2014 til markaðssetningar á sveppum (Agaricus bisporus) meðhöndluðum með útfjólubláu ljósi og með aukið innihald af D2 vítamíni sem nýfæði á markaði í Evrópusambandinu. Umsóknin er byggð á reglugerð (EB) nr. 258/97.

Þegar framkvæmdareglugerð (ESB) 2017/2470 tók gildi, 1. janúar 2018, varð þetta leyfi almennt og ekki bundið við fyrrgreinda umsækjendur.

Samkvæmt 35. gr. reglugerðar (ESB) 2015/2283 skulu umsóknir um leyfi fyrir nýfæði sem eru byggðar á 4. gr. reglugerðar (ESB) 258/97 og ekki hefur verið tekin ákvörðun um fyrir 1. janúar 2018 meðhöndlaðar í samræmi við reglugerð 2015/2283.

Mat Hollensku matvælaöryggisstofnunarinnar var að sveppir meðhöndlaðir með útfjólubláu ljósi til að auka innihald D2 vítamíns uppfyllti kröfur sem gerðar eru til nýfæðis í grein 3(1) í reglugerð (ESB) nr. 258/97.

Samkvæmt viðauka VI við reglugerð (ESB) nr. 1169/2011, um miðlun upplýsinga um matvæli til neytenda, skal heiti matvælanna innihalda eða því skulu fylgja upplýsingar um ástand matvælanna eða þá meðhöndlun sem þau hafa hlotið, þegar það að sleppa slíkum upplýsingum getur villt um fyrir neytendum. Þar sem neytendur myndu, að öllu jöfnu, ekki gera ráð fyrir að sveppir hafi verið meðhöndlaðir með útfjólubláu ljósi, skulu þessar upplýsingar koma fram í nafni vörunnar.

Færslu, um sveppi sem eru meðhöndlaðir með útfjólubláu ljósi, á lista sambandsins yfir leyfilegt nýfæði, skal breytt í samræmi við viðauka við þessa reglugerð og með þeim skilyrðum sem þar koma fram.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Reglugerðin verður innleidd sem breyting á framkvæmdareglugerð 2017/2470 um lista sambandsins yfir leyfilegt nýfæði og með stoð í lögum um matvæli nr. 93/1995.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Innan fjárhagsáætlunar

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Matvælaráðuneytið
Ábyrg stofnun Matvælastofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32018R1011
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 181, 18.7.2018, p. 4
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
C/D numer D056017/03
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 62, 23.9.2021, p. 20
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L 337, 23.9.2021, p. 22