32018R1032

Commission Implementing Regulation (EU) 2018/1032 of 20 July 2018 authorising the extension of use of oil from the micro algae Schizochytrium sp. as a novel food under Regulation (EU) 2015/2283 of the European Parliament and of the Council, and amending Commission Implementing Regulation (EU) 2017/2470


iceland-flag
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1032 frá 20. júlí 2018 um leyfi fyrir rýmkun á notkun olíu úr smásæju þörungunum Schizochytrium sp. sem nýfæði samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2283 og um breytingu á framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/2470
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.12 Matvæli
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 234/2018
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Framkvæmdagerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1032 um breytingu á leyfi fyrir notkun á olíu úr örþörungnum Schizochytrium sp. sem nýfæði í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2283 um nýfæði og um breytingu á framkvæmdagerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/2470.

Nánari efnisumfjöllun

Gerðin varðar reglugerð (ESB) nr. 2015/2283 um markaðssetningu og notkun á nýfæði innan Evrópusambandsins og framkvæmdareglugerð 2017/2470 sem kveður á um lista Sambandsins yfir leyfilegt nýfæði.

Framkvæmdastjórnin gaf út framkvæmdarákvörðun 2014/463, í samræmi við reglugerð (EB) nr. 258/97 um leyfi fyrir markaðssetningu olíu með dokósahexanóik fitusýru(DHA) unnin úr örþörungum af tegundinni (Schizochytrium sp.) sem nýfæði. Olíuna má nota í tiltekin matvæli, megrunarfæði og annað sérfæði, sem skilgreint er í tilskipun 2009/39/EB.

Framkvæmdastjórnin gaf einnig út framkvæmdarákvörðun 2015/545, í samræmi við reglugerð (EB) nr. 258/97 um leyfi fyrir markaðssetningu olíu með dokósahexanóik fitusýru(DHA) unnin úr annarri undirtegund af Schizochytrium sp. (ATCC PTA 9695), sem nýfæði. Olíuna má nota í tiltekin matvæli, þ.á.m. ungbarnafæði.

Sótt hefur verið um leyfi fyrir markaðssetningu á olíu með DHA sem unnin úr annarri undirtegund af Schizochytrium sp. (T18) sem nýfæði í samræmi við reglugerð (EB) nr. 258/97. Sótt var um leyfir til að nota olíuna í allar gerðir matvæla sem leyfðar eru í framkvæmdarákvörðun 2014/463 og 2015/545.

Þrjú fyrirtæki hafa tilkynnt um markaðssetningu á olíu með DHA úr Schizochytrium af undirtegund T18 til notkunar í matvæli sem leyfð eru skv. framkvæmdarákvörðunum 2014/463 og 2015/545.
Samkvæmt 35. gr. reglugerðar (ESB) 2015/2283 skulu umsóknir um leyfi fyrir nýfæði sem eru byggðar á 4. gr. reglugerðar (ESB) 258/97 og ekki hefur verið tekin ákvörðun um fyrir 1. janúar 2018 meðhöndlaðar í samræmi við reglugerð 2015/2283.

Framkvæmdastjórnin samþykkti umsókn fyrir aukinni og breyttri notkun og ályktaði að hún uppfyllti kröfur sem gerðar eru til nýfæðis í grein 3(1) í reglugerð (ESB) nr. 2015/2283.

Færslu á lista sambandsins yfir leyfilegt nýfæði sem varðar markaðssetningu á olíu unninni úr örþörungum af tegundinni Schizochytrium sp. T18, sem nýfæði skal breytt í samræmi við viðauka við þessa reglugerð og með þeim skilyrðum sem þar koma fram.

Viðauka við framkvæmdareglugerð (ESB) 2017/2470 er breytt í samræmi við viðauka við þessa reglugerð.

Framkvæmdin skal vera í samræmi við reglugerð 609/2013 um matvæli sem eru ætluð ungbörnum og smábörnum, matvæli sem eru notuð í sérstökum læknisfræðilegum tilgangi og þyngdar-stjórnunar-fæði, tilskipun 2002/46/EC um fæðubótarefni og tilskipun 2009/39/EB frá 6. maí 2009 um matvæli sem eru ætluð til sérstakra, næringarlegra nota.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Reglugerðin verður innleidd sem breyting á framkvæmdarreglugerð 2017/2470 um lista sambandsins yfir leyfilegt nýfæði og með stoð í lögum um matvæli nr. 93/1995.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Innan fjárhagsáætlunar

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Matvælaráðuneytið
Ábyrg stofnun Matvælastofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32018R1032
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 185, 23.7.2018, p. 9
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
C/D numer D056018/04
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 62, 23.9.2021, p. 22
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L 337, 23.9.2021, p. 24