32018R1132

Commission Implementing Regulation (EU) 2018/1132 of 13 August 2018 authorising the change of the designation and specific labelling requirement of the novel food synthetic zeaxanthin under Regulation (EU) 2015/2283 of the European Parliament and of the Council and amending Commission Implementing Regulation (EU) 2017/2470


iceland-flag
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1132 frá 13. ágúst 2018 um leyfi til að breyta heiti nýfæðisins tilbúins seaxantíns og sértækum kröfum um merkingu þess samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2283 og um breytingu á framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/2470
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.12 Matvæli
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 235/2018
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Framkvæmdagerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) 2018/1132 um leyfi til breytingar á heiti og merkingarkröfum fyrir tilbúið zeaxantín sem nýfæði samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2283 og um breytingu á framkvæmdareglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/2470.

Nánari efnisumfjöllun

Gerðin varðar reglugerð (ESB) nr. 2015/2283 um markaðssetningu og notkun á nýfæði innan Evrópusambandsins og framkvæmdareglugerð 2017/2470 sem kveður á um lista Sambandsins yfir leyfilegt nýfæði.
Náttúrulegt zeaxantín er hluti af almennri fæðu og er að finna í ýmsum ávöxtum og grænmeti og einnig í eggjarauðu. Efnið er einnig notað í fæðubótarefni.

Ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2013/49 veitir leyfi, í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) 258/97, fyrir markaðssetningar á tilbúnu zeaxantíni sem nýfæði til notkunar í fæðubótarefni, með hámarks neyslugildi 2 mg/dag. Heiti efnisins samkvæmt þeirri reglugerð er „ tilbúið zeaxantín“.

Í fyrirspurn sem fyrirtækið DSM Nutritional Products Europe sendi framkvæmdastjórninni 23. febrúar 2013 er óskað eftir að heiti og merkingarreglum fyrir tilbúið zeaxantín verði breytt. Umsækjandinn fer fram á að orðið „tilbúið“ verði fellt niður úr heiti efnisins. Umsækjandinn telur að nauðsynlegt sé að breyta heiti og merkingarreglum fyrir zeaxantín til að koma í veg fyrir hugsanleg neikvæð áhrif sem orðið „tilbúið“ kunni að hafa við merkingu á fæðubótarefnum sem innihalda tilbúið zeaxantín, vegna neikvæðar merkingar hugtaksins "tilbúið" í þessu samhengi. Umsækjandi bendir á að ýmsar aðrar tegundir nýfæðis, sem eru á lista Bandalagsins og notuð séu í fæðubótarefni fyrirfinnist bæði á náttúrulegu og tilbúnu formi en þurfi ekki að bera heitið „tilbúið“ og þurfi ekki að merkja þannig. Breyting á heiti og merkingarreglum fyrir zeaxantín muni tryggja samræmi í merkingum þessara tilbúnu efna.

Ekki er gerðar breytingar að því magni sem leyft er að nota í fæðubótarefni og því eru engar breytingar á forsendum þess áhættumats sem gert var þegar tilbúið zeaxantín var leyft með ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar 2013/49 og ákvörðunin hefur því ekki áhrif á matvælaöryggi.

Framkvæmdastjórnin hefur fallist á beiðnina. Færslu á lista Bandalagsins yfir leyfilegt nýfæði er varðar efnið zeaxantín er því breytt í samræmi við viðauka við þessa reglugerð.

Viðauka við framkvæmdareglugerð (ESB) 2017/2470 er breytt í samræmi við viðauka við þessa reglugerð og með þeim skilyrðum sem þar koma fram.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Reglugerðin verður innleidd sem breyting á framkvæmdareglugerð 2017/2470 um lista sambandsins yfir leyfilegt nýfæði og með stoð í lögum um matvæli nr. 93/1995, með síðari breytingum.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Innan fjárhagsáætlunar

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Matvælaráðuneytið
Ábyrg stofnun Matvælastofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32018R1132
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 205, 14.8.2018, p. 15
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
C/D numer D056873/04
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 62, 23.9.2021, p. 24
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L 337, 23.9.2021, p. 26