32018R1293

Commission Implementing Regulation (EU) 2018/1293 of 26 September 2018 amending Implementing Regulation (EU) 2017/2470 as regards the conditions of use of the novel food lactitol


iceland-flag
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1293 frá 26. september 2018 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) nr. 2017/2470 að því er varðar skilyrði fyrir notkun á nýfæðinu laktítóli
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.12 Matvæli
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 234/2018
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Framkvæmdagerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1293 um breytingu á framkvæmdagerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/2470, hvað varðar skilyrði fyrir notkun á laktítóli sem nýfæði.

Nánari efnisumfjöllun

Gerðin varðar reglugerð (ESB) nr. 2015/2283 um markaðssetningu og notkun á nýfæði innan Evrópusambandsins og framkvæmdareglugerð 2017/2470 sem kveður á um lista Sambandsins yfir leyfilegt nýfæði.

Framkvæmdastjórn ESB veitti með framkvæmdareglugerð (ESB) 2017/450, leyfi fyrir markaðssetningu á laktítóli sem nýfæði í samræmi við reglugerð (ESB) 258/97. Leyfið nær til notkunar í töflu- eða hylkjaformi í fæðubótarefni ætlað fullorðnum.

Leyfishafi sendi framkvæmdastjórninni ósk um að fá að breyta notkunarskilyrðum sem fram koma í reglugerð 2017/450 á þann hátt að einnig yrði leyfilegt að nota laktítól í duftformi í fæðubótarefni. Hámarksneysluskammtur verður óbreyttur 20 g/dag.

Mat framkvæmdastjórnarinnar var að slík breyting á notkunarskilyrðum væri ólíkleg til að hafa áhrif á heilsu neytenda og hefur heimilað breytinguna.

Færslu á lista sambandsins yfir leyfilegt nýfæði sem varðar markaðssetningu á laktítóli, sem nýfæði skal breytt í samræmi við viðauka við þessa reglugerð og með þeim skilyrðum sem þar koma fram.

Viðauka við framkvæmdareglugerð (ESB) 2017/2470 er breytt í samræmi við viðauka við þessa reglugerð.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Reglugerðin verður innleidd sem breyting á innleiðingarreglugerð EB 2017/2470 um lista sambandsins yfir leyfilegt nýfæði og með stoð í lögum um matvæli nr. 93/1995, með síðari breyingum.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Innan fjárhagsáætlunar

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Matvælaráðuneytið
Ábyrg stofnun Matvælastofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32018R1293
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 243, 27.9.2018, p. 2
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
C/D numer D056859/02
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 62, 23.9.2021, p. 22
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L 337, 23.9.2021, p. 24