32018R1991

Commission Implementing Regulation (EU) 2018/1991of 13 December 2018authorising the placing on the market of berries of Lonicera caerulea L. as a traditional food froma third country under Regulation (EU) 2015/2283 of the European Parliament and of the Counciland amending Commission Implementing Regulation (EU) 2017/2470


iceland-flag
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1991 frá 13. desember 2018 um leyfi til að setja á markað ber Lonicera caerulea L. sem hefðbundin matvæli frá þriðja landi samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2283 og um breytingu á framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/2470
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.12 Matvæli
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 114/2019
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1991 um leyfi til markaðssetningar á berjum af Lonicera caerulea L. sem hefðbundið fæði frá þriðja landi í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2283 og um breytingu á framkvæmdareglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/2470.

Nánari efnisumfjöllun

Gerðin varðar reglugerð (ESB) nr. 2015/2283 um markaðssetningu og notkun á nýfæði innan Evrópusambandsins. Í 3. gr. er kveðið á um hefðbundið fæði frá þriðja landi. Í 8. gr. reglugerðarinnar og með framkvæmdareglugerð 2017/2470 var komið á fót lista sambandsins yfir leyfilegt nýfæði.

Þann 26. janúar tilkynnti fyrirtækið Soloberry Ltd til framkvæmdastjórnarinnar um áætlun þess efnis að setja ber af plöntunni Lonicera caerulea L. á markað í sambandinu sem hefðbundið fæði frá þriðja landi í samræmi við 14. gr. reglugerðar 2283/2015.

Umsækjandi sendi gögn til staðfestingar þar sem fram kemur að ber af Lonicera caerulea L hafi sögu um örugga notkun sem matvæli í Japan.

Framkvæmdastjórnin vísaði tilkynningunni til aðildarríkjanna og til Matvælaöryggisstofnunarinnar í samræmi við reglugerð 2015/2283.

Engar athugasemdir voru gerðar af aðildarríkjunum eða Matvælaöryggisstofnuninni við markaðssetningu berjanna.

Framkvæmdastjórnin gaf leyfi fyrir markaðssetningu á berjum af Lonicera caerulea L og framkvæmdareglugerð (ESB) nr. 2017/2470 er uppfærð í samræmi við það með þeim skilyrðum sem fram koma í viðauka við þessa reglugerð.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Reglugerðin verður innleidd sem breyting á reglugerð nr. 900/2018 um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/2470 um að koma á fót skrá Sambandsins yfir nýfæði í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2283 um nýfæði, og með stoð í lögum um matvæli nr. 93/1995, með síðari breytingum.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Innan fjárhagsáætlunar

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Matvælaráðuneytið
Ábyrg stofnun Matvælastofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32018R1991
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 320, 17.12.2018, p. 22
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 69, 27.10.2022, p. 11
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L 279, 27.10.2022, p. 11