32019L1832
Commission Directive 2019/1832 of 24 October 2019 amending Annexes I, II and III to Council Directive 89/656/EEC as regards purely technical adjustments
Tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2019/1832 frá 24. október 2019 um breytingu á I., II. og III. viðauka við tilskipun ráðsins 89/656/EBE að því er varðar hreinar tæknilegar breytingar
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
Staða tillögu/gerðar | ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi |
---|---|
Svið (EES-samningur, viðauki) | 18 Öryggi og hollustuhættir á vinnustöðum, vinnuréttur og jafnrétti kynjanna |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) | 223/2022 |
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu | |
Staðfestur gildistökudagur | |
Í gildi á EES-svæðinu | Já |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Tilskipunin felur í sér breytingar á viðaukum I-III við tilskipun ráðsins nr. 89/656 um lágmarkskröfur varðandi öryggi og hollustu er starfsmenn nota persónuhlífar á vinnustöðum, hvað varðar hreinar tæknilegar aðlaganir.
Nánari efnisumfjöllun
Tilskipunin felur í sér breytingar á viðaukum I-III við tilskipun ráðsins nr. 89/656 um lágmarkskröfur varðandi öryggi og hollustu er starfsmenn nota persónuhlífar á vinnustöðum.Þessi tilskipun hefur verið innleidd hér á landi með reglum nr. 497/1994 um notkun persónuhlífa. Var tilskipunin saminn af sérfræðinefnd aðildarríkja ESB í samræmi við tilskylda málsmeðferð í 17. gr. tilskipunar 89/391 um lögleiðingu ráðstafana er stuðla að bættu öryggi og heilsu starfsmanna á vinnustöðum (Rammatilskipun ESB um vinnuvernd). Markmið þessar tilskipunarinnar er að stuðla að því að þrír viðaukar við hana verði uppfærðir til samræmis við nýjar kröfur skv. reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/425 um persónuhlífar sem innleidd var hér á landi með reglugerð nr. 728/2018 um persónuhlífar. Um er að ræða þrjá viðauka sem kveða á í fyrsta lagi á um dæmi um áhættumat á grundvelli tilskipunar 89/626/EBE, í öðru lagi á um leiðbeinandi skrá yfir persónuhlífar og í þriðja lagi á um leiðbeinandi skrá yfir störf og starfssvið þar sem nauðsynlegt getur reynst að nota persónuhlífar.
Staða innan stjórnsýslunnar
Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
---|---|
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Já |
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Já |
Innleiðing
Innleiðing | Reglugerð - breyting eða ný |
---|---|
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta | Hægt er að innleiða ESB gerðina með reglugerð sem sett yrði á grundvelli laga nr. 46/1980 um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum að fenginni umsögn stjórnar Vinnueftirlitsins. Er mælt með því að sett verði ný reglugerð til innleiðingar tilskipunarinnar í stað þess að breyta núverandi reglum nr. 497/1994 um notkun persónuhlífa þar sem þær eru komnar til ára sinna auk þess sem þær voru á sínum tíma settar af stjórn Vinnueftirlitsins í samræmi við þáverandi lög, en með dómi Hæstaréttar frá 18. nóvember 2004 (nr. 236/2004) var talið að slíkar reglur væru ekki að öllu leyti stjórnskipunarlega rétt settar. |
Staða innleiðingarvinnu | Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar |
Áhrif
Áætlaður kostnaður hins opinbera | Ekki vitað |
---|
Ábyrgðaraðilar
Ábyrgt ráðuneyti | Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið |
---|---|
Ábyrg stofnun | Vinnueftirlit ríkisins |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
CELEX-númer | 32019L1832 |
---|---|
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L 279, 31.10.2019, p. 35 |
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
Samþykktardagur i ESB |
---|
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar | |
---|---|
Staðfestur gildistökudagur | |
Tilvísun í EES-viðbæti | EEA Supplement No 24, 23.3.2023, p. 40 |
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB | OJ L 85, 23.3.2023, p. 41 |