32019R0037
Commission Regulation (EU) 2019/37 of 10 January 2019 amending and correcting Regulation (EU) No 10/2011 on plastic materials and articles intended to come into contact with food
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/37 frá 10. janúar 2019 um breytingu og leiðréttingu á reglugerð (ESB) nr. 10/2011 um efnivið og hluti úr plasti sem ætlað er að komast í snertingu við matvæli
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
| Staða tillögu/gerðar | ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi |
|---|---|
| Svið (EES-samningur, viðauki) | 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.12 Matvæli |
| Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) | 059/2019 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu | |
| Staðfestur gildistökudagur | |
| Í gildi á EES-svæðinu | Já |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/37 um breytingu og leiðréttingu á reglugerð (ESB) 10/2011 um efnivið og hluti úr plasti sem ætlað er að komast í snertingu við matvæli.
Nánari efnisumfjöllun
Frá því reglugerð 10/2011 var síðast breytt hefur Matvælaöryggisstofnun Evrópu (EFSA) birt ný álit um tiltekin efni sem má nota í matvælasnertiefni úr plasti ásamt notkunarskilyrðum fyrir efni sem þegar eru í notkun. Einnig eru í reglugerðinni leiðréttingar á villum í texta. Til þess að tryggja að reglugerð (ESB) nr. 10/2011 endurspegli nýjustu niðurstöður stofnunarinnar hafa eftirfarandi breytingar verið samþykktar:
Nafn efnisins 1,2,3,4-tetrahýdrónaftalen-2,6-díkarboxýlsýra dímetýlester (EMS númer 1066 CAS númer 23985-75-3) í töflu 1 í viðauka I við reglugerð (ESB) nr. 10/2011 misritaðist í Enskri útgáfu reglugerðarinnar og þarf að leiðrétta.
EFSA gaf jákvætt álit um notkun á efninu [3-(2,3-epoxýprópoxý)propýl] trímethoxýsílan (EMS númer 1068, CAS númer 2530-83-8) við framleiðslu á trefjaglerstyrktu plasti s.s. pólyethýlentereftalat (PET), pólýkarbónat (PC), pólýbútýltereftalat (PBTP), pólýester harðplast og epoxýbisfenólvínýlester. Efnið er leyft sem aukefni og hjálparefni og skráð í töflu 1 í viðauka I við reglugerð 10/2011. Þar sem efninu er ætlað að hvarfast við plastefnið er réttara að flokka það sem upphafsefni eða einliðu við framleiðslu á trefjaglerstyrktu plasti. Því þarf að leiðrétta þess færslu í töflu 1 í viðauka I við reglugerð 10/2011 og bæta efninu við í dálk 6 í viðauka I til að skýra betur notkun þess.
EFSA gaf jákvætt álit um notkun á efninu polý((R)-3-hýdroxýbútýrat-co-(R)-3-hýdroxýhexanóat) (EMS nr. 1059, CAS nr. 147398-31-0), sem er niðurbrjótanleg samfjölliða framleidd með gerjun og notuð í umbúðir fyrir heila ávexti og grænmeti. Í álitinu ályktaði EFSA að efnið væri hættulaust ef það er notað eitt sér eða með öðrum efnum í snertingu við þurr matvæli. EFSA ályktaði einnig að sértækt flæði niðurbrotsefnisins krótóniksýru (crotonic acid) megi ekki vera meira en 0,05 mg/kg matvæla. Krótóniksýra ætti því að fara inn á lista sambandsins yfir leyfileg efni með þessum takmörkunum.
Krótóniksýra (ESM nr. 467 and CAS nr. 3724-65-0) er leyft sem aukefni og einliða við framleiðslu á plasti sem ætlað er að komast í snertingu við matvæli. Sértæk flæðimörk 0,05 mg/kg matvæli voru sett fyrir efnið í töflu 1, lið 1 í viðauka I við reglugerð 10/2011 með reglugerð 2017/752.
Fyrir efnið 3-hýdroxýbútansýru-3-hýdroxýpentansýru samfjölliðu (ESM nr. 744, CAS nr. 80181-31-3) er í töflu 4 í viðauka I við reglugerð (ESB) nr. 10/2011 takmörkun á flæði = 0,05 mg/dm2. Þessu gildi ætti að breyta og miða við sértækt flæði eins og gert er fyrir ESM nr. 467.
Þar sem sömu sértæku mörk gilda fyrir flæði krótóniksýru fyrir efni með ESM nr. 467, 744, og 1059, er rétt að setja flokkatakmörkun fyrir krótoniksýru í töflu 2 í viðauka I við reglugerð 10/2011 og leiðrétta jafnframt viðeigandi gildi í töflum 1 og 4 í þeim viðauka.
EFSA gaf jákvætt álit um notkun á efninu dímetýlkarbónat (ESM nr. 1067 og CAS nr. 616-38-6) sem einliðu við framleiðslu á plastefnum sem ætlað er að komast í snertingu við matvæli. Efnið er hættulaust ef það er notað til framleiðslu á pólýkarbónati og áfram til framleiðslu á pólýúreþan. Nota má allt að 30% af polýkarbónati. Efnið má einungis nota við framleiðslu á margnota efni fyrir skammtíma snertingu (≤ 30 min) við stofuhita fyrir matvæli sem ætlað er að nota matvælaherma A og B samkvæmt töflu 2 í viðauka III við reglugerð 10/2011. Því skal bæta efninu á lista sambandsins yfir leyfileg efni með þessum takmörkunum.
EFSA ályktaði jafnframt að efni með ESM nr. 1067 megi einnig nota við framleiðslu á pólýkarbónati. Efnið er hættulaust fyrir neytendur ef flæði dímetýlkarbónats fer ekki yfir 0,05 mg/kg matvæla og heildarflæði polýkarbónat keðja með mólmassa undir 1000 Da er undir 0,05 mg/kg matvæla. Því ber að leyfa notkun á efninu með þessum skilyrðum.
Greiningaaðferðir til að mæla flæði þessara polýkarbónat keðja eru flóknar. Lýsing á aðferðunum er ekki endilega aðgengileg eftirlitsaðilum. Því ber ábyrgðaraðila sem setur á markað lokaafurð sem inniheldur efnið að upplýsa um greiningaraðferðir og útvega viðmiðunarsýni til greiningar ef þess þarf.
EFSA gaf jákvætt álit um notkun á efninu ísóbútan (CAS nr 75-28-5, ESM nr. 1069) sem freyðiefni í plastefni sem ætlað er að snerta matvæli. EFSA ályktaði að efnið væri hættulaust fyrir neytendur til notkunar sem freyðiefnis fyrir plast og því beri að leyfa notkun þess. Flokkur efna sem kallast freyðiefni tekur einnig til yfirborðsvirkra efna. Til að forðast hugsanlegan rugling og í samræmi við virkni þessa efnis, ætti að nota nafnið þanefni („blowing agent“) í tengslum við skráningu efnisins í töflu 1 í viðauka I við reglugerð 10/2011.
Tafla 3 í viðauka III við reglugerð 10/2011 tiltekur matvælaherma sem nota skal til að mæla heildarflæði frá plastefnum sem hafa ekki enn komist í snertingu við matvæli. Ákveðins ruglings gætir varðandi notkun á matvælahermum, einkum er varðar súr vatnsrík matvæli. Því ber að skýra þessi atriði betur með því að tiltaka sýrustig matvælanna í töflunni.
Viðaukum I og III við reglugerð (ESB) nr. 10/2011 skal því breytt í samræmi við ofangreindar athugasemdir.

Staða innan stjórnsýslunnar
| Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
|---|---|
| Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
| Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Já |
| Alþingi hefur lokið mati sínu | Á ekki við |
| Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Já |
Innleiðing
| Innleiðing | Reglugerð - breyting eða ný |
|---|---|
| Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta | Reglugerðin verður innleidd sem breyting á reglugerð 374/2012 og með stoð í lögum um matvæli nr. 93/1995, með síðari breytingum. |
| Staða innleiðingarvinnu | Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar |
Samráð
| Samráð | Nei |
|---|
Áhrif
| Áætlaður kostnaður hins opinbera | Innan fjárhagsáætlunar |
|---|
Ábyrgðaraðilar
| Ábyrgt ráðuneyti | Atvinnuvegaráðuneyti |
|---|---|
| Ábyrg stofnun | Matvælastofnun |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
| CELEX-númer | 32019R0037 |
|---|---|
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
| Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L 9, 11.1.2019, p. 88 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
| Dagsetning tillögu ESB | |
|---|---|
| C/D numer | D058297/02 |
| Dagsetning tillögu | |
| Samþykktardagur i ESB |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
| Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar | |
|---|---|
| Staðfestur gildistökudagur | |
| Tilvísun í EES-viðbæti | EEA Supplement No 44, 2.7.2020, p. 27 |
| Tilvísun í stjórnartíðindi ESB | OJ L 210, 2.7.2020, p. 25 |
Breytir (Modifies)
| 32011R0010 | amends, does insertion of, does replacement of | Commission Regulation (EU) No 10/2011 of 14 January 2011 on plastic materials and articles intended to come into contact with food | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
| 32004R1935 | based on | Regulation (EC) No 1935/2004 of the European Parliament and of the Council of 27 October 2004 on materials and articles intended to come into contact with food and repealing Directives 80/590/EEC and 89/109/EEC | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
Flokkun (Classifications)
| EUROVOC | plastics, health control, foodstuff, chemical product, health risk, market approval, food safety, packaging product |
|---|---|
| Subject matter | Foodstuffs, Consumer protection |