Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/807 frá 13. mars 2019 um viðbót við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/2001. - 32019R0807

Commission Delegated Regulation (EU) 2019/807 of 13 March 2019 supplementing Directive (EU) 2018/2001 of the European Parliament and of the Council as regards the determination of high indirect land-use change-risk feedstock for which a significant expansion of the production area into land with high carbon stock is observed and the certification of low indirect land-use change-risk biofuels, bioliquids and biomass fuels


iceland-flag
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð í skoðun hjá Íslandi, Liechtenstein og Noregi til upptöku í EES-samninginn
Svið (EES-samningur, viðauki) 04 Orka

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/807 (hér eftir „reglugerðin”) miðar að því að taka á umhverfisáhrifum lífmassaeldsneytis þar sem óbein breyting á landnotkun er áhættulítil, fljótandi lífeldsneyti og lífmassaeldsneytis sem stafar af stækkun landbúnaðarlands inn á svæði með háa kolefnisbirgði, þ.e. óbein breyting á landnotkun. Um er að ræða ráðstöfun til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og stuðla að sjálfbærum framleiðsluháttum í orkugeiranum. Í reglugerðinni eru tilgreind viðmið fyrir ákveðin hráefni sem geta haft í för með sér talsverða hættu á óbeinni breytingu á landnotkun (e. indirect land-use-change (ILUC)) og verulegri stækkun framleiðslusvæða inn á land með hátt hlutfall kolefnisbirgða. Jafnframt mun reglugerðin innleiða vottunarkerfi fyrir lífeldsneyti, fljótandi lífeldsneyti og lífmassaeldsneyti með lítilli ILUC áhættu. Þar eru settar fram kröfur og verklagsreglur fyrir vottun, þ.á.m. sjálfbærniviðmið sem eiga við allt framleiðsluferlið.

Nánari efnisumfjöllun

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/807 (hér eftir „reglugerðin”) miðar að því að taka á umhverfisáhrifum lífmassaeldsneytis þar sem óbein breyting á landnotkun er áhættulítil, fljótandi lífeldsneyti og lífmassaeldsneytis sem stafar af stækkun landbúnaðarlands inn á svæði með miklar kolefnisbirgðir, þ.e. óbein breyting á landnotkun. Um er að ræða ráðstöfun til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og stuðla að sjálfbærum framleiðsluháttum í orkugeiranum.   Í reglugerðinni eru tilgreind viðmið fyrir ákveðin hráefni sem geta haft í för með sér talsverða hættu á óbeinni breytingu á landnotkun  (e. indirect land-use-change (ILUC)) og verulegri stækkun framleiðslusvæða inn á land með hátt hlutfall kolefnisbirgða. Reglugerðin setur á laggirnar vísireglur og viðmiðunarmörk svo hægt sé að meta áhrif landnotkunarbreytinga sem tengjast ákveðnum hráefnum.   Jafnframt mun reglugerðin innleiða vottunarkerfi fyrir lífeldsneyti, fljótandi lífeldsneyti og lífmassaeldsneyti með lítilli ILUC áhættu. Þar eru settar fram kröfur og verklagsreglur fyrir vottun, þ.á.m. sjálfbærniviðmið sem eiga við allt framleiðsluferlið.   Samkvæmt 3. gr. reglugerðarinnar skulu eftirfarandi viðmið gilda til ákvörðunar á hvaða hráefni eru í mikilli hættu á að valda óbeinum breytingum á landnotkun vegna verulegrar stækkunar á vinnslusvæði inn á land með ríkar kolefnisbirgðar:  1. Meðalstækkun á ársgrundvelli á alþjóðlegu framleiðslusvæði hráefnis síðan 2008 er meiri en 1% og hefur áhrif á meiri en 100.000 hektara.  2. Hlutfall slíkrar stækkunar inn á land með ríkar kolefnisbirgðar er hærri en 10% skv. formúlu sem gefin er upp í reglugerðinni.   Samkvæmt 4. og 5. gr. reglugerðarinnar getur vottun á lág-áhættu (ILUC) fyrir lífeldsneyti, fljótandi lífeldsneyti og lífmassaeldsneyti einungis átt sér stað ef eftirfarandi á viðmið eru uppfyllt:  1. Að eldsneytið uppfylli þau sjálfbærniviðmið og viðmið um sparnað í losun gróðurhúsalofttegunda sem lögð eru fram í reglugerð ESB 2018/2001.  2. Að eldsneytið hafi verið framleitt úr viðbótarhráefni sem fást með viðbótarráðstöfunum sem uppfylla a.m.k. eitt af eftirfarandi skilyrðum:  að vera fjárhagslega aðlaðandi eða standa ekki frammi fyrir neinum hindrunum sem hindrar það að það lífeldsneyti sem framleitt er úr viðbótarhráefninu megi telja til markmiða fyrir endurnýjanlega orku (skv. tilskipun 2009/28/EB eða tilskipun (ESB) 2018/2001); að gera ráð fyrir ræktun matvæla-og fóðurræktunar á yfirgefnu landi eða á mjög rýrðu landi; eða sótt um af litlum vottunar handhöfum. 3. Að sönnun liggi fyrir sem staðfesti að viðbótar hráefni og rökstuddar fullyrðingar um framleiðslu á viðbótar hráefni sé rétt safnað og vandlega skjalfest af viðkomandi rekstraraðilum.  Í 6. gr. er fjallað um endurskoðun og vottunarskilyrði. Þar kemur fram að mikilvægt sé að endurskoðunaraðilar votti sjálfir að þær upplýsingar sem lagðar eru fram af rekstraraðila séu nákvæmar, áræðanlegar og varðar gegn svikum (e. protected against fraud).  Það er því ljóst að reglugerðin skilgreini skilyrði um uppboðs og vottunarkröfur á vottorðum á lág áhættu ILUC lífeldsneyti, fljótandi lífeldsneyti og lífmassaeldsneyti. Þá munu rekstraraðilar þurfa að leggja fram áræðanlegar og rökstuddar upplýsingar til að tryggja að allar kröfur séu uppfylltar. Einnig þurfa þeir að sjá til þess að fullnægjandi staðlar óháðrar endurskoðunar á þeim upplýsingum sem lagðar séu fram séu til staðar sem og gagnsæi sem endurspegli opinbera athugun á endurskoðunaraðferðinni og að lokum þarf að leggja fram sönnun þess að úttektir hafi átt sér stað.  Vakin er athygli á því að þegar þetta er skrifað hefur tilskipun (ESB) 2018/2001 ekki verið tekin upp inn í EES-samninginn. Reglugerðin er sett með stoð í 2. mgr. 26. gr., tilskipunar (ESB) 2018/2001, um sérstakar reglur um lífmassaeldsneyti, fljótandi lífeldsneyti og lífmassaeldsneyti unnið úr matvæla- og fóðurræktun, sbr. 35. gr. tilskipunar (ESB) 2018/2001. Hvað sem því líður er talið að reglugerðin hafi óveruleg áhrif á Ísland að svo stöddu nema í tilfelli skógarbænda sem selja við í þeim tilgangi að nota sem lífmassaeldsneyti.   

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Já
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Tæknilegri aðlögun, Efnislegri aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Já
Alþingi hefur lokið mati sínu Nei
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Nei

Innleiðing

Innleiðing Á ekki við um Ísland
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Reglugerðin er sett með stoð í 2. mgr. 26. gr., tilskipunar (ESB) 2018/2001, sem hefur ekki verið innleidd þegar þetta er skrifað. Líklega þyrfti að breyta lögum nr. 40/2013 um endurnýjanlegt eldsneyti í samgöngu á landi og tilheyrandi reglugerðum.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Ekki vitað
Mat á áhrifum og sérstökum hagsmunum Íslands Reglugerðin er sett með stoð í 2. mgr. 26. gr., tilskipunar (ESB) 2018/2001, sem hefur ekki verið innleidd þegar þetta er skrifað. Lagabreytingar eru því óljósar að svo stöddu.

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Ábyrg stofnun Umhverfis- og orkustofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32019R0807
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 133, 21.5.2019, p. 1
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
C/D numer C(2019)2055
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Breytt af (Modified by)

Breytir (Modifies)

32018L2001 based on, completes Directive (EU) 2018/2001 of the European Parliament and of the Council of 11 December 2018 on the promotion of the use of energy from renewable sources Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

Flokkun (Classifications)