32020D1102
Commission Implementing Decision (EU) 2020/1102 of 24 July 2020 on the approval of the technology used in a 48 Volt efficient motor-generator combined with a 48 Volt/12 Volt DC/DC converter for use in conventional combustion engine and certain hybrid electric passenger cars and light commercial vehicles as an innovative technology pursuant to Regulation (EU) 2019/631 of the European Parliament and of the Council and by reference to the New European Driving Cycle (NEDC)
Verði gerð tekin upp í EES-samninginn birtist hún hér á íslensku eftir birtingu í EES-viðbæti
Gerð ekki til á íslensku
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
Staða tillögu/gerðar | ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn en er ekki lengur í gildi |
---|---|
Svið (EES-samningur, viðauki) | 20 Umhverfismál, 20.03 Loft |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) | 077/2021 |
Samþykktardagur ákvörðunar sameiginlegu nefndarinnar | |
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu | |
Staðfestur gildistökudagur | |
Í gildi á EES-svæðinu | Nei |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Verið er að breyta útreikningum á því hve mikill orkusparnaður verður af notkun á tiltekinni tækni. Tæknina á að meta sem orku sparandi í samræmi við reglur sambandsins og vera skráð sem slík. Engin áhrif. Kostnaður óverulegur.
Nánari efnisumfjöllun
Markmið sem að er stefnt: Samþykkt nýrrar tækni sem taka á tillit til í mælingum á CO2 losun ökutækja.
Aðdragandi: Þann 24. október 2019 sendu nokkrir bifreiðaframleiðendur inn sameiginlega umsókn um samþykki á því að tækni sem notuð er í 48 volta skilvirkum hreyfirafölum í bland við 48 volta/12 volta DC/DC umbreyti/spennubreyti sem nýsköpunartækni í fólksbifreiðum og léttum ökutækjum. Viðurkenningin átti við ofangreinda tækni í bifreiðum með brunahreyfil sem gengur fyrir bensíni eða dísilolíu og í ákveðnum tvinnbifreiðum (NOVC-HEV). Þann 8. nóvember 2019 sendi einn birgi inn umsókn um samþykki á sömu tækni sem nýsköpunartækni í sams konar ökutækjum.
Efnisútdráttur: Báðar umsóknirnar voru metnar í samræmi við 11. gr. reglugerðar (ESB) 2019/631, reglugerð (ESB) nr. 725/2011, reglugerð (ESB) nr. 427/2014 sem og í samræmi við tæknilegar leiðbeiningar sem nota á til að undirbúa umsókn um samþykki á nýsköpunartækni í samræmi við reglugerð (EB) nr. 443/2009 og (ESB) nr. 510/2011.
Einnig fylgdi sannprófunarskýrsla óháðs aðila með umsóknunum í samræmi við 3. mgr. 11. gr. reglugerðar (ESB) nr. 2019/631.
Báðar umsóknirnar eru um að koltvísýringssparnaður sem ekki finnst með þeim aðferðum sem heimilar eru í samræmi við NEDC verði tekinn til greina. Þær aðferðir sem heimilar eru koma fram í reglugerð (ESB) nr. 692/2008. Þar sem báðar umsóknirnar eiga við um sömu nýsköpunartækni er viðeigandi að fjalla um þær báðar í einni ákvörðun. Búið er að sýna fram á fullnægjandi notkun á sambærilegum búnaði í öðrum umsóknum. Í umsóknunum er lögð til prófunaraðferð sem er ólík þeirri aðferð sem fram kemur í viðauka við ákvörðun (ESB) 2019/313 og ákvörðun (ESB) 2019/314. Umsækjendur segja að sú prófunaraðferð sem þeir leggja til leiði til raunsærri niðurstöðu þar sem þetta sýni fram á raunverulegri akstursaðstæður en gögn sem styðja það eins og er eru ekki metin fullnægjandi.
Lögð er til ný aðferð þar sem tekið er tillit til spennustigs sem nota á við skilvirkni mælingar á 48 V hreyfirafalnum. lagt er til að rafallinn verði stilltur á 48 V í staðinn fyrir 52 V. Að auki er lagt til að breyta framleiðslustraumnum fyrir skilvirkni mælingu 48 Volt / 12 Volt DC / DC breytirinn. Það verði gert þannig að framleiðslustraumurinn verði skilgreindur sem helmingur nafnstyrks DC / DC breytisins deilt með 14,3 V í stað nafnafls DC / DC breytisins deilt með 14,3 V. Þar að auki er lagt til að innleiða ferli fyrir 48 V hreyfirafal.
Umsögn: helstu breytingar, mati á umfangi, og áhrif hér á landi:
Gerðin hefur þýðingu fyrir framleiðendur ökutækja og gerðarviðurkenningaryfirvöld. Hvorki er starfandi framleiðandi ökutækis á Íslandi né gerðarviðurkenningaryfirvald og því hefur gerðin ekki áhrif í dag hér á landi. Það þarf að tryggja það að í ökutækjaskrá sé skráður CO2 sparnaður (e. CO2 savings) á hvert ökutæki skv. skráningargögnum frá framleiðanda ökutækisins.
Lagastoð fyrir innleiðingu gerðar: 69. gr. umferðarlaga nr. 77/2019. Rétt væri að reglugerðin yrði innleidd með breytingu á reglugerð nr. 822/2004 um gerð og búnað ökutækja.
Mat eða tilgreining á kostnaði hins opinbera, sveitar-félaga og atvinnulífs og almennings, ef einhver er: Óverulegur
Skörun við starfssvið annarra ráðuneyta: Gæti tengst útreikningnum á gjöldum ökutækja sem byggjast á CO2 losun. Einnig er spurning um bifreiðagjöldin sem byggja á CO2 losun.
Tilgreining á hagsmunaaðilum: Almenningur, Skatturinn, ökutækjaumboð og ökutækjainnflytjendur.
Horizontal issues: sektir, aðrar refsingar, stofnanir, lönd utan EES: Nei.
Þörf fyrir EFTA-komment – aðlaganir sem þegar eru í gildi vegna undanfarandi gerða: Nei.

Staða innan stjórnsýslunnar
Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
---|---|
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Já |
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Já |
Innleiðing
Innleiðing | Reglugerð - breyting eða ný |
---|---|
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta | Lagastoðin er 69. gr. umferðarlaga nr. 77/2019. Rétt væri að reglugerðin yrði innleidd með breytingu á reglugerð nr. 822/2004 um gerð og búnað ökutækja. |
Staða innleiðingarvinnu | Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar |
Samráð
Hvaða hagsmunaaðilar | Samgöngustofa |
---|
Áhrif
Áætlaður kostnaður hins opinbera | Innan fjárhagsáætlunar |
---|
Ábyrgðaraðilar
Ábyrgt ráðuneyti | Innviðaráðuneytið |
---|---|
Ábyrg stofnun | Samgöngustofa |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
CELEX-númer | 32020D1102 |
---|---|
Samþykktardagur hjá ESB | |
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L 241, 27.7.2020, p. 38 |
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
Samþykktardagur i ESB |
---|
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar | |
---|---|
Samþykktardagur | |
Staðfestur gildistökudagur | |
Tilvísun í EES-viðbæti | EEA Supplement No 3, 11.1.2024, p. 128 |
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2024/78, 11.1.2024 |