32020D1426
Commission Implementing Decision (EU) 2020/1426 of 7 October 2020 on the harmonised use of radio spectrum in the 5 875-5 935 MHz frequency band for safety-related applications of intelligent transport systems (ITS) and repealing Decision 2008/671/EC
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.
Gerð ekki til á íslensku
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
Staða tillögu/gerðar | ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi |
---|---|
Svið (EES-samningur, viðauki) | 11 Rafræn fjarskipti, hljóð- og myndmiðlun og upplýsingasamfélagið, 11.01 Fjarskiptaþjónusta |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) | 058/2021 |
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu | |
Staðfestur gildistökudagur | |
Í gildi á EES-svæðinu | Já |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Með hinni nýju ákvörðun er verið að stækka bil tíðnisviðsins sem notað er fyrir öryggistengd forrit ITS upp í 5 935 MHz. Það var gert í tengslum við áætlun ESB um gigabit væðingu og innleiðingu 5G í álfunni. Einnig var talið að með aukinni áherslu á umferðaröryggi talin þörf á að vernda umrætt 5.9 GHz tíðnibandið fyrir skaðlegum truflunum. Þá var ákveðið að útvíkka skilgreininguna á ITS þannig að hún tæki til fleiri farartækja en áður. Þar má nefna járnbrautalestir en snjallkerfi sem notuð voru fyrir ITS í járnbrautarsamgöngum nýttu þegar tíðnisviðið fyrir ofan 5 905 MHz. Jákvæð áhrif og enginn kostnaður.
Nánari efnisumfjöllun
Snjallkerfum í umferð - Intelligent transportation systems, ITS - er ætlað að vera upplýsingaflæði- og samskipti við samgöngumannvirki og farartæki og bæta umferðarflæði. Kerfunum er jafnframt ætlað að koma í veg fyrir að hættulegar umferðaraðstæður myndist og þannig fækka óhöppum. Með þessum hætti mynda kerfin samþætta nálgun í umferðaröryggismálum.
Með ákvörðun framkvæmdastjórnar ESB 2008/671/EC um að ITS yrði ráðstafað bili á tíðnisviðinu staðfesti ESB hlutverk kerfanna sem samþættrar nálgunar á umferðaröryggi. Þegar ákvörðunin var innleidd hér á landi skilgreindi Póst- og fjarskiptastofnun tíðnisviðið 5 875 - 5 905 MHz fyrir öryggistengd forrit ITS. Stofnunin tók þetta bil tíðnisviðsins frá í því tíðniskipulagi sem stofnunin gerir fyrir Ísland. Það tíðniskipulag er birt á heimasíðu stofnunarinnar.
Með hinni nýju ákvörðun er ætlunin að stækka bil tíðnisviðsins fyrir öryggistengd forrit ITS upp í 5 935 MHz. Það var gert í tengslum við áætlun ESB um gigabit væðingu og innleiðingu 5G í álfunni. Einnig var talið að með aukinni áherslu á umferðaröryggi talin þörf á að vernda umrætt 5.9 GHz tíðnibandið fyrir skaðlegum truflunum. Þá var ákveðið að útvíkka skilgreininguna á ITS þannig að hún tæki til fleiri farartækja en áður. Þar má nefna járnbrautalestir en snjallkerfi sem notuð voru fyrir ITS í járnbrautarsamgöngum nýttu þegar tíðnisviðið fyrir ofan 5 905 MHz.
Póst og fjarskiptastofnun hefur metið gerðina og sér ekkert því til fyrirstöðu að ákvörðunin verði innleidd hér á landi. Tíðnisvið sem stækkunin tekur til er ekki bundið í notkun hér. Stofnunin gerir því engar athugasemdir við þá breytingu sem þarna er lögð til.
Stofnunin telur engar fjárhagslegar skuldbindingar felast í innleiðingu þessarar breytingar.
Innleiðing verður gerð með því að opinbert tíðniskipulag sem stofnunin birtir á heimasíðu sinni verður uppfært þannig að vísað verður til hinnar nýju ákvörðunar þegar hún hefur verið tekin upp í EES-samninginn.
Lagastoð er að finna í 1. mgr. 14 gr. fjarskiptalaga, um skipulag og úthlutun tíðna.

Staða innan stjórnsýslunnar
Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
---|---|
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Já |
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Já |
Innleiðing
Innleiðing | Engar laga- eða reglugerðabreytingar |
---|---|
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta | Lagastoð er að finna í 1. mgr. 14 gr. fjarskiptalaga, um skipulag og úthlutun tíðna. Þarf ekki að innleiða. |
Staða innleiðingarvinnu | Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar |
Áhrif
Áætlaður kostnaður hins opinbera | Innan fjárhagsáætlunar |
---|
Ábyrgðaraðilar
Ábyrgt ráðuneyti | Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið |
---|---|
Ábyrg stofnun | Fjarskiptastofa |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
CELEX-númer | 32020D1426 |
---|---|
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L 328, 9.10.2020, p. 19 |
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
Dagsetning tillögu ESB | |
---|---|
C/D numer | D068310/02 |
Dagsetning tillögu | |
Samþykktardagur i ESB |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar | |
---|---|
Staðfestur gildistökudagur | |
Tilvísun í EES-viðbæti | EEA Supplement No 3, 11.1.2024, p. 103 |
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2024/39, 11.1.2024 |