32020R0217

Commission Delegated Regulation (EU) 2020/217 of 4 October 2019 amending, for the purposes of its adaptation to technical and scientific progress, Regulation (EC) No 1272/2008 of the European Parliament and of the Council on classification, labelling and packaging of substances and mixtures and correcting that Regulation


iceland-flag
Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/217 frá 4. október 2019 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1272/2008 um flokkun, merkingu og pökkun efna og blandna í því skyni að laga hana að framförum í tækni og vísindum og um leiðréttingu á þeirri reglugerð
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.15 Hættuleg efni
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 199/2020
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) …/… um breytingu og leiðréttingar á reglugerð (EB) Evrópuþingsins og ráðsins nr. 1272/2008 um flokkun, merkingu og umbúðir efna og efnablandna í því skyni að aðlaga hana að framförum í vísindum og tækni.

Nánari efnisumfjöllun

Að gefnu áliti sem gefið er út af áhættumatsnefnd (RAC) hjá Efnastofnun Evrópu (ECHA) og athugasemdum sem berast frá hlutaðeigandi aðilum hvað það varðar, er samræmd flokkun og merking tiltekinna efna sett fram, uppfærð, breytt, eða eytt í töflu 3 í 3. hluta VI. viðauka við reglugerð (EB) nr. 1272/2008. Að auki þarf að setja inn samræmd gildi bráðra eiturhrifa (ATE) fyrir tiltekin efni í töfluna. Leiðrétta þarf ennfremur ranga samræmda flokkun og merkingu á biki úr háhitakoltjöru í reglugerð Framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 2018/669, áður en sú reglugerð tekur gildi þann 1. desember 2019.

Tekið var tillit til athugasemda sem lagðar voru fram innan ramma almenningsráðgjafar hlutaðeigandi aðila um drög að reglugerð framkvæmdastjórnarinnar varðandi efnin, í samræmi við 4. mgr. 37. gr. í reglugerð (EB) nr. 1272/2008. Athugasemdirnar sem bárust, aðallega frá ýmsum samtökum úr atvinnulífinu, snerust um þrjú af 28 efnum reglugerðarinnar, þ.e. títanoxíð (TiO2), kóbalt og DTPA.

Framkvæmdastjórnin komst að þeirri niðurstöðu að athugasemdir varðandi efnin TiO2 og kóbalt réttlættu ekki breytingu á drögum að reglugerð framkvæmdastjórnarinnar, þar sem engar nýjar, veigamiklar upplýsingar komu þar fram sem kynnu að fara í bága við vísindaálit áhættumatsnefndarinnar.

Að því er varðar athugasemdir um DTPA komst framkvæmdastjórnin að þeirri niðurstöðu að þær gæfu tilefni til að breyta drögum að reglugerðinni varðandi það efni, einkum hvað varðar flokkun þess sem eiturefnis gagnvart æxlun í flokki 1B, en færslunni um það hefur verið eytt um sinn, í ljósi nýrra vísindalegra upplýsinga sem lagðar voru fram.

Með reglugerðinni er reglugerð (EB) nr. 1272/2008 breytt og leiðrétt í samræmi við viðauka þessarar reglugerðar.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Breyta þarf reglugerð nr. 415/2014 um flokkun, merkingu og umbúðir efna og efnablandna. Reglugerðin verður innleidd með tilvísunaraðferð. Lagastoð er í 7. tölul. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Innan fjárhagsáætlunar

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Ábyrg stofnun Umhverfisstofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32020R0217
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 44, 18.2.2020, p. 1
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
C/D numer C(2019)7227
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 70, 28.9.2023, p. 48
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L 240, 28.9.2023, p. 49