32020R0570

Commission Delegated Regulation (EU) 2020/570 of 28 January 2020 amending and correcting Regulation (EU) No 748/2012 as regards the alignment of rules for continuing airworthiness of aircraft and aeronautical products, parts and appliances with Regulation (EU) No 1321/2014


iceland-flag
Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/570 frá 28. janúar 2020 um breytingu og leiðréttingu á reglugerð (ESB) nr. 748/2012 að því er varðar samræmingu á reglum um áframhaldandi lofthæfi loftfara og annarra framleiðsluvara, hluta og búnaðar til flugs við reglugerð (ESB) nr. 1321/2014
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð hefur ekki öðlast gildi þar sem hún er háð gildistöku annarra ákvarðanna sameiginlegu nefndarinnar
Svið (EES-samningur, viðauki) 13 Flutningar, 13.06 Almenningsflug
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 115/2023

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Meginmarkmið með gerðinni er að breyta og samræma ákvæði reglugerðar (ESB) nr. 748/2012 við nýja skipan viðaukanna við reglugerð (ESB) nr. 1321/2014. Reglugerð (ESB) nr. 1321/2014 hefur verið breytt til að koma á fót sveigjanlegri reglum um viðhald léttra loftfara og til að bæta öryggisáhættustjórnun fyrir fyrirtæki sem annast stjórnun á áframhaldandi lofthæfi loftfara sem eru rekin af handhöfum flugrekandaskírteina. Þá eru kröfur um koltvísýringslosun flugvéla í reglugerðin einnig leiðréttar, þær samræmdar og gerðar skýrari. Reglugerðin hefur ekki mikil áhrif í för með sér fyrir starfsemi Samgöngustofu þar sem hún á að mestu við hönnunar- og framleiðslufyrirtæki.

Nánari efnisumfjöllun

Markmið sem að er stefnt: Um er að ræða framselda gerð framkvæmdastjórnarinnar um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 748/2012 að því er varðar samræmingu reglna um áframhaldandi lofthæfi loftfara og framleiðsluvara, hluta og búnaðar til flugs skv. reglugerð (ESB) nr. 1321/2014. Meginmarkmið með gerðinni er að breyta og samræma ákvæði reglugerðar (ESB) nr. 748/2012 við nýja skipan viðaukanna við reglugerð (ESB) nr. 1321/2014.
Efnisútdráttur: Reglugerð (ESB) nr. 1321/2014 hefur verið breytt til að koma á fót sveigjanlegri reglum um viðhald léttra loftfara og til að bæta öryggisáhættustjórnun fyrir fyrirtæki sem annast stjórnun á áframhaldandi lofthæfi loftfara sem eru rekin af handhöfum flugrekandaskírteina.
Með tilliti til framangreindra breytinga er nú mælt fyrir um ráðstafanir sem tryggja áframhaldandi lofthæfi, sem áður voru í 1. viðauka (Part-M) við reglugerð (ESB) nr. 1321/2014, í 1. viðauka (Part-M), viðauka Vb (ML-hluta), viðauka Vc (Part-CAMO) og viðauka Vd (Part-CAO) við reglugerðina, í samræmi við tegund og notkun loftfars eins og við á.
Þar sem ákvæði um lofthæfiskírteini, samþykki fyrir hönnun viðgerða og flugleyfi sem mælt er fyrir um í 1. viðauka (Part 21) við reglugerð (ESB) nr. 748/2012 vísa aðeins til 1. viðauka (Part-M) við reglugerð (ESB) nr. 1321/2014, þarf að breyta reglugerð (ESB) nr. 748/2012 til samræmis við framangreint, þ.e. lagfæra tilvísanir.
Þá eru kröfur um koltvísýringslosun flugvéla í reglugerðin einnig leiðréttar, þær samræmdar og gerðar skýrari.
Umsögn: helstu breytingar, mati á umfangi, og áhrif hér á landi: Reglugerðin hefur ekki mikil áhrif í för með sér fyrir starfsemi Samgöngustofu þar sem hún á að mestu við hönnunar- og framleiðslufyrirtæki.
Lagastoð fyrir innleiðingar gerðar: Lagastoðin er 7. mgr. 28. gr., sbr. 145. gr laga um loftferðir nr. 60/1998, með síðari breytingum.
Rétt væri að reglugerðin yrði innleidd með breytingu á reglugerð nr. 380/2013 um lofthæfi- og umhverfisvottun loftfara og tilheyrandi framleiðsluvara, hluta og búnaðar og vottun hönnunar- og framleiðslufyrirtækja.
Mat eða tilgreining á kostnaði hins opinbera, sveitar-félaga og atvinnulífs og almennings, ef einhver er: Kostnaður við innleiðingu þessarar reglugerðar er metinn óverulegur sem enginn.
Skörun við starfssvið annarra ráðuneyta: Nei
Tilgreining á hagsmunaaðilum: Fyrst og fremst hönnunar- og framleiðslufyrirtæki.
Horizontal issues: sektir, aðrar refsingar, stofnanir, lönd utan EES: Nei.
Þörf fyrir EFTA-komment – aðlaganir sem þegar eru í gildi vegna undanfarandi gerða: Nei.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Lagast: 7. mgr. 28. gr., sbr. 145. gr laga um loftferðir nr. 60/1998. Innleiðing með br á reglugerð nr. 380/2013 um lofthæfi- og umhverfisvottun loftfara og tilheyrandi framleiðsluvara, hluta og búnaðar og vottun hönnunar- og framleiðslufyrirtækja
Staða innleiðingarvinnu Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Ekki vitað

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Innviðaráðuneytið
Ábyrg stofnun Samgöngustofa

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32020R0570
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 132, 27.4.2020, p. 1
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 81, 9.11.2023, p. 75
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L, 2023/02264, 9.11.2023