Nýfæði - 32020R0917

Commission Implementing Regulation (EU) 2020/917 of 1 July 2020 authorising the placing on the market of infusion from coffee leaves of Coffea arabica L. and/or Coffea canephora Pierre ex A. Froehner as a traditional food from a third country under Regulation (EU) 2015/2283 of the European Parliament and of the Council and amending Implementing Regulation (EU) 2017/2470


iceland-flag
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/917 frá 1. júlí 2020 um leyfi til að setja á markað seyði úr kaffilaufum af Coffea arabica L. og/eða Coffea canephora Pierre ex A. Froehner sem hefðbundin matvæli frá þriðja landi samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2283 og um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2017/2470
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.12 Matvæli
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 197/2020
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Framkvæmdareglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/206 um leyfi til markaðssetningar á seyði af kaffilaufum af tegundunum Coffea arabica L. og/eða Coffea canephora Pierre ex A. Froehner, sem hefðbundið fæði frá þriðja ríki í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2283 og um breytingu á framkvæmdareglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/2470

Nánari efnisumfjöllun

Tilkynnt hefur verið um áætlaða markaðssetningu innan Sambandsins á seyði af kaffilaufum af tegundunum Coffea arabica L. og/eða Coffea canephora Pierre ex A. Froehner sem hefðbundnu fæði frá þriðja ríki í samræmi við 14. gr. reglugerðar (ESB) 2015/2283. Sótt var um leyfi til að nota afurðirnar sem slíkar og sem innihaldsefni í aðra drykki fyrir almenna neytendur. Samkvæmt meðfylgjandi gögnum umsækjenda var sýnt fram á að seyði fyrir af kaffilaufum af tegundunum Coffea arabica L. og/eða Coffea canephora Pierre ex A. Froehner er saga um örugga notkun í Afríku, Asíu og Norður Ameríku.

Framkvæmdastjórnin leitaði álits Matvælaöryggisstofnunarinnar (EFSA) varðandi öryggi þessara þessara matvæla sem skilaði áliti. Í áliti sýnu bendir Matvælaöryggisstofnunin á að kaffilauf Coffea arabica innihaldi Epigallocatechin gallate (EGCG) og að því geti seyði af laufunum einnig innihaldið EGCG. Því leggur EFSA til hámarksgildi fyrir EGCG sem er 700 mg of EGCG í lítra af seyði. Þetta hámarksgildi verður því hluti af hreinleikakröfum fyrir seyðið.

Umsækjandi sótti um leyfi til að nota seyðið einnig til íblöndunar í aðra drykki en hefur ekki getað sýnt framá með gildum gögnum að saga um örugga notkun fyrir slíkt sé staðfest. Framkvæmdastjórnin veitir því í reglugerð þessari eingöngu leyfi fyrir markaðssetningu seyðisins til notkunar sem slíks en ekki til íblöndunar í aðra drykki.

Framkvæmdastjórnin veitir því leyfi fyrir þessari notkun, með breytingu á lista Sambandsins yfir leyfilegt nýfæði.

Viðauka við framkvæmdareglugerð (ESB) 2017/2470 er breytt í samræmi við viðauka við þessa reglugerð og með þeim skilyrðum sem þar koma fram.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Gerðin verður innleidd sem breyting við reglugerð nr. 900/2018 og með stoð í lögum nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Innan fjárhagsáætlunar

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Matvælaráðuneytið
Ábyrg stofnun Matvælastofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32020R0917
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 209, 2.7.2020, p. 10
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 70, 28.9.2023, p. 44
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L 240, 28.9.2023, p. 45