32020R2034

Commission Delegated Regulation (EU) 2020/2034 of 6 October 2020 supplementing Regulation (EU) No 376/2014 of the European Parliament and of the Council as regards the common European risk classification scheme


iceland-flag
Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/2034 frá 6. október 2020 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 376/2014 að því er varðar sameiginlega evrópska áhættuflokkunarkerfið
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 13 Flutningar, 13.06 Almenningsflug
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 068/2023
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Evrópska áhættuflokkunarkerfinu, sem innleitt verður með þessari gerð, er ætlað að aðstoða aðildarríkin og Flugöryggisstofnunina við mat þeirra á atvikum í flugi. Meginmarkmið með kerfinu er að auðkenna og flokka á samræmdan hátt öryggisáhættu sem verður við hvert atvik fyrir sig og áhrif þess á flugöryggi. Í reglugerð (ESB) nr. 376/2014 eru sett fram ákvæði um tilkynningar atvika í almenningsflugi sem og greiningu á og eftirfylgni með þeim. Í samræmi við þá reglugerð þróaði framkvæmdastjórn Evrópusambandsins í samvinnu við aðildarríkin og Flugöryggisstofnun Evrópu, evrópskt áhættuflokkunarkerfi (ERCS) til að tryggja að þegar verið er að rannsaka einstök öryggisatvik sem mikil áhætta fylgir sé hægt að grípa fljótt til viðeigandi aðgerða. Samgöngustofa þarf að ganga eftir að farið verði eftir þeim ferlum sem hér eru kynntir. Kostnaður óverulegur.

Nánari efnisumfjöllun

Markmið sem að er stefnt: Evrópska áhættuflokkunarkerfinu, sem innleitt verður með þessari gerð, er ætlað að aðstoða aðildarríkin og Flugöryggisstofnunina við mat þeirra á atvikum í flugi. Meginmarkmið með kerfinu er að auðkenna og flokka á samræmdan hátt öryggisáhættu sem verður við hvert atvik fyrir sig og áhrif þess á flugöryggi.Aðdragandi: Í reglugerð (ESB) nr. 376/2014 eru sett fram ákvæði um tilkynningar atvika í almenningsflugi sem og greiningu á og eftirfylgni með þeim.Í samræmi við þá reglugerð þróaði framkvæmdastjórn Evrópusambandsins í samvinnu við aðildarríkin og Flugöryggisstofnun Evrópu, evrópskt áhættuflokkunarkerfi (ERCS) til að tryggja að þegar verið er að rannsaka einstök öryggisatvik sem mikil áhætta fylgir sé hægt að grípa fljótt til viðeigandi aðgerða.Þróun kerfisins var í samræmi við ákvæði reglugerðar (ESB) nr. 376/2014 og lauk þann 15. maí 2017. Kerfið er nú innleitt með þessari gerð.Efnisútdráttur: Áhættuflokkunarkerfið er sett fram í viðauka við reglugerðina.Með kerfinu á að greina öryggisáhættu vegna atviks en ekki útkomu þess.Mat á hverju atviki skal miða að verstu mögulegu niðurstöðu sem mögulegt er að geti orðið og hversu nálægt þeirri niðurstöðu atvikið var. Kerfið á að byggja á eftirfarandi aðferðarfræði:a.    alvarleiki: greining á verstu mögulegu niðurstöðu vegna slyss sem hefði orðið ef til þess hefði komið.b.    líkindi: greining á líkindum þess að atvikið geti orðið alvarlegra og leitt til verstu mögulegu niðurstöðu sbr. a. lið.Umsögn: helstu breytingar,  mati á umfangi, og áhrif hér á landi: Gerðin hefur einhverjar breytingar í för með sér fyrir Samgöngustofu. Breyta þarf verklagi þegar kemur að áhættuflokkun á atvikum. Með reglugerðinni er tekið tillit til þess að nýja kerfið samræmist fyrirliggjandi áhættuflokkunarkerfum sem þegar eru í notkun hjá leyfishöfum. Í dag er búið að útbúa vörpun úr RAT og ARMS. Vörpunin fyrir ARMS tekur þó ekki tillit til hindrana, e. barriers. Einhverjir leyfishafar nota aðra aðferðafræði en RAT og ARMS og mun Samgöngustofa þurfa að óska eftir því við þá að þeirra aðferðafræði verði breytt. Þá verður skoða hvort mögulegt verði að gera kröfu um að leyfishafar noti alla jafna ERCS aðferðafræðina.EASA er að undirbúa þjálfunargögn fyrir ERCS sem munu verða útgefin á allra næstu vikum. Þá mun leiðbeiningarefni (GM) verða gefið út um miðjan nóvember.Lagastoð fyrir innleiðingu gerðar: Lagastoðin er  4. mgr. 47. gr. og 2. mgr. 47. gr. a, sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998, með síðari breytingum.Rétt væri að reglugerðin yrði innleidd með breytingu á reglugerð nr. 900/2017 um tilkynningu atvika í almenningsflugi sem og greiningu á og eftirfylgni með þeim.Mat eða tilgreining á kostnaði hins opinbera, sveitar-félaga og atvinnulífs og almennings, ef einhver er: Kostnaður við innleiðingu þessarar reglugerðar er metinn óverulegur.Horizontal issues: sektir, aðrar refsingar, stofnanir, lönd utan EES: Nei.Þörf fyrir EFTA-komment – aðlaganir sem þegar eru í gildi vegna undanfarandi gerða: Um er að ræða breytingu á framkvæmdareglugerð (ESB) 376/2014 sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn með aðlögunum. 

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Lagastoðin er 4. mgr. 47. gr. og 2. mgr. 47. gr. a, sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998. Innleiðing með breytingu á reglugerð nr. 900/2017 um tilkynningu atvika í almenningsflugi sem og greiningu á og eftirfylgni með þeim.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Innan fjárhagsáætlunar

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Innviðaráðuneytið
Ábyrg stofnun Samgöngustofa

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32020R2034
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 416, 11.12.2020, p. 1
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
C/D numer C(2020)6763
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 77, 26.10.2023, p. 65
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L, 2023/2357, 26.10.2023