32021D0327
Commission Implementing Decision (EU) 2021/327 of 23 February 2021 postponing the expiry date of approval of metofluthrin for use in biocidal products of product-type 18
Framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/327 frá 23. febrúar 2021 um frestun að því er varðar lokadag samþykkis fyrir metóflútríni til notkunar í sæfivörur í vöruflokki 18
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
Staða tillögu/gerðar | ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi |
---|---|
Svið (EES-samningur, viðauki) | 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.15 Hættuleg efni |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) | 289/2021 |
Samþykktardagur ákvörðunar sameiginlegu nefndarinnar | |
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu | |
Staðfestur gildistökudagur | |
Í gildi á EES-svæðinu | Já |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Ákvörðunin felur í sér að fresta lokadegi samþykkis fyrir metóflútrín til notkunar í sæfivörur í vöruflokki 18 til 31. október 2023.
Ákvörðunin tekur gildi á 20. degi eftir birtingu hennar í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins.
Ákvörðunin tekur gildi á 20. degi eftir birtingu hennar í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins.
Nánari efnisumfjöllun
Lokadagur samþykkis fyrir virka efninu metóflútrín til notkunar í sæfivörur í vöruflokki 18 er 30. apríl 2021. Umsókn um endurnýjun á samþykki fyrir metóflútrín var skilað inn þann 25. október 2019 í samræmi við 1. mgr. 13. gr. reglugerðar (ESB) nr. 528/2012.
Írland, sem lögbært matsyfirvald, upplýsti framkvæmdastjórnina þann 15. október 2020 að framkvæma þyrfti heildarmat á umsókninni. Það er því líklegt að lokadagur samþykkis fyrir metóflútríni til notkunar í sæfivörur í vöruflokki 18 renni upp áður en ákvörðun hefur verið tekin um endurnýjun og því er viðeigandi að fresta honum um hæfilegan tíma svo að mat á umsókninni geti farið fram.
Að teknu tilliti til þess tímafrests sem matsyfirvaldið hefur til að vinna umsóknina skv. ákvæðum í reglugerð (ESB) nr. 528/2012 og tímafrests sem Efnastofnun Evrópu hefur til að undirbúa og skila áliti sínu er viðeigandi að fresta lokadegi samþykkisins til 31. október 2023. Metóflútrín verður þannig áfram samþykkt til notkunar í sæfivörur í vöruflokki 18 að uppfylltum þeim forskriftum og skilyrðum sem koma fram í I. viðauka við tilskipun 98/8/EB.

Staða innan stjórnsýslunnar
Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
---|---|
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Já |
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Já |
Innleiðing
Innleiðing | Reglugerð - breyting eða ný |
---|---|
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta |
Innleiða þarf ákvörðunina með tilvísunaraðferð í reglugerð nr. 878/2014 um sæfivörur. Lagaheimild er í 3. tl. 1. mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013. |
Staða innleiðingarvinnu | Innleiðing ekki hafin |
Áhrif
Áætlaður kostnaður hins opinbera | Innan fjárhagsáætlunar |
---|
Ábyrgðaraðilar
Ábyrgt ráðuneyti | Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið |
---|---|
Ábyrg stofnun | Umhverfisstofnun |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
CELEX-númer | 32021D0327 |
---|---|
Samþykktardagur hjá ESB | |
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L 64, 24.2.2021, p. 10 |
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
Dagsetning tillögu ESB | |
---|---|
C/D numer | D070551/03 |
Dagsetning tillögu | |
Samþykktardagur i ESB |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar | |
---|---|
Samþykktardagur | |
Staðfestur gildistökudagur | |
Tilvísun í EES-viðbæti | EEA Supplement No 19, 29.2.2024, p. 17 |
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2024/537, 29.2.2024 |