32021D1839

Commission Implementing Decision (EU) 2021/1839 of 15 October 2021 postponing the expiry date of approval of creosote for use in biocidal products of product-type 8

  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.15 Hættuleg efni
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 123/2022
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Ákvörðunin felur í sér frestun að því er varðar lokadag samþykkis fyrir kreósót til notkunar í sæfivörur í vöruflokki 8 til 31. október 2022.

Ákvörðunin tekur gildi á 20. degi eftir birtingu hennar í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins.

Nánari efnisumfjöllun

Virka efnið kreósót er samþykkt virkt efni til notkunar í sæfivörur í vöruflokki 8. Þann 27. október 2016 var sótt um endurnýjun á samþykkinu í samræmi við 1. mgr. 13. gr. reglugerðar (ESB) nr. 528/2012 (BPR). Bretland, sem var áður lögbært matsyfirvald, skilaði þann 16. september 2019 inn tilmælum til Efnastofnunar Evrópu (ECHA) um endurnýjun samþykkis. Pólland, sem lögbært yfirvald, tók yfir sem lögbært matsyfirvald þann 30. janúar 2020. Með framkvæmdarákvörðun (ESB) 2020/1038 hefur lokadegi samþykkis fyrir kreósót áður verið frestað til 31. október 2021.ECHA skilaði áliti sínu þann 4. desember 2020, byggt á niðurstöðum matsyfirvaldsins, í samræmi við 3. mgr. 14. gr. BPR. Kreósót er flokkað sem krabbameinsvaldur í undirflokki 1B og uppfyllir kröfur um að vera þrávirkt efni sem safnast fyrir í lífverum og eitrað (PBT-efni) og einnig kröfur um að vera mjög þrávirkt efni sem safnast fyrir í lífverum í miklum mæli (vPvB-efni). Það uppfyllir því viðmiðanir fyrir útilokun, sbr. a)- og e)-liði 1. mgr. 5. gr. BPR. Ekki hefur verið komist að niðurstöðu um hvort að kreósót uppfylli a.m.k. eitt af skilyrðunum í fyrsta undirlið 2. mgr. 5. gr. reglugerðarinnar og þar með hvort að hægt sé að endurnýja samþykki fyrir efninu. Lokadagur samþykkis fyrir virka efninu mun því renna upp áður en sú ákvörðun verður tekin.Auk þess gilda takmarkanir um kreósót, efnasambönd þess og við sem hefur verið meðhöndlaður með þeim, sbr. XVII. viðauka við reglugerð (EB) nr. 1907/2006 (REACH) og á Frakkland að skila inn málsskjölum til ECHA til að hefja málsmeðferð um takmarkanir á vettvangi ESB. Frekari athugun þarf að eiga sér stað til að tryggja samræmi á milli málsmeðferðarinnar við takmarkanir og matsins um endurnýjun samþykkis fyrir kreósót sem virku efni og til að gera ráðstafanir um skilvirkt eftirlit með kreósóti og meðhöndluðum við.Því er ljóst að ekki náist að taka ákvörðun um endurnýjun kreósóts til notkunar í sæfivörur í vöruflokki 8 áður en lokadagur samþykkis rennur upp og þess vegna þykir rétt að fresta honum til 31. október 2022.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Innleiða þarf þessa ákvörðun með tilvísunaraðferð í reglugerð nr. 878/2014 um sæfivörur.
Lagaheimild er í 3. tl. 1. mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Innan fjárhagsáætlunar

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Ábyrg stofnun Umhverfisstofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32021D1839
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 372, 20.10.2021, p. 27
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
C/D numer D075697/02
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 61, 22.9.2022, p. 65
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L 246, 22.9.2022, p. 66