32021D2148

Commission Implementing Decision (EU) 2021/2148 of 3 December 2021 on the unresolved objections regarding terms and conditions of the authorisation of the biocidal product family Oxybio in accordance with Article 36 of Regulation (EU) No 528/2012 of the European Parliament and of the Council


iceland-flag
Framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/2148 frá 3. desember 2021 um óleyst andmæli varðandi skilmála og skilyrði leyfis fyrir flokki skyldu sæfivaranna Oxybio í samræmi við 36. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 528/2012
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.15 Hættuleg efni
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 124/2022
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Ákvörðunin nær til sæfivara sem skilgreindar eru í meta SPC 1 í samantekt á eiginleikum flokks skyldra sæfivara, þ.e. Oxybio L12, og auðkennt undir málsnúmerinu BC-SK041671-32 í sæfivöruskránni. Ákvörðunin felst í því að hættuflokkun varanna m.t.t. eiginleika þeirra sem oxandi vökva skuli vera oxandi vökvi í pökkunarflokki III, í samræmi við tilmæli Sameinuðu þjóðanna um flutning á hættulegum farmi, sem samsvarar hættuflokkuninni oxandi vökvi í undirflokki 3 í reglugerð (EB) nr. 1272/2008. Með þessari hættuflokkun uppfylla vörurnar skilyrði sem mælt er fyrir um í d)-lið, 1. mgr. 19. gr. reglugerðar (ESB) nr. 528/2012.

Nánari efnisumfjöllun

Belgía er tilvísunaraðildarríkið sem metur umsókn um landsbundið leyfi fyrir flokki skyldra sæfivara undir heitinu Oxybio. Einnig var sótt um samhliða gagnkvæma viðurkenningu í fleiri aðildarríkjum, þ.á.m. Frakklandi. Ákvörðunin kemur í kjölfar andmæla Frakklands til samræmingarhóps vegna atriðis í matsskýrslu Belgíu sem snýr að eðlisrænni hættu varanna m.t.t. eiginleika oxandi vökva, þar sem Frakkland vill meina að vörurnar uppfylli ekki skilyrði d)-liðs, 1. mgr. 19. gr. reglugerðar (ESB) nr. 528/2012 þar sem ekki hefði verið tekið tillit til flokkunar skv. tilmælum Sameinuðu þjóðanna (SÞ) um flutning á hættulegum farmi.Engin niðurstaða náðist í samræmingarhópnum svo Belgía vísaði andmælunum til framkvæmdastjórnarinnar þann 10. desember 2020 í samræmi við 1. mgr. 36. gr. reglugerðar (ESB) nr. 528/2012.Með ákvörðuninni hefur framkvæmdastjórnin ákvarðað að rétt sé að það komi fram í drögum að samantekt á eiginleikum flokks skyldra sæfivara að vörur sem innihalda vetnisperoxíð í 12% styrkleika eigi að flokka sem oxandi vökva í pökkunarflokki III í samræmi við tilmæli SÞ, sem samsvari hættuflokkuninni oxandi vökvi í undirflokki 3 í reglugerð (EB) nr. 1272/2008. 

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Innleiða á ákvörðunina með tilvísunaraðferð í reglugerð nr. 878/2014 um sæfivörur.

Lagaheimild er í 3. tl. 1. mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Innan fjárhagsáætlunar

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Ábyrg stofnun Umhverfisstofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32021D2148
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 434, 6.12.2021, p. 1
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
C/D numer D075699/03
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 61, 22.9.2022, p. 66
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L 246, 22.9.2022, p. 67