32021L1717
Commission Delegated Directive (EU) 2021/1717 of 9 July 2021 amending Directive 2014/45/EU of the European Parliament and of the Council as regards the updating of certain vehicle category designations and the addition of eCall to the list of test items, methods, reasons for failure and assessment of deficiencies in Annex I and Annex III to that Directive
Framseld tilskipun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1717 frá 9. júlí 2021 um breytingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2014/45/ESB að því er varðar uppfærslu tiltekinna tilvísana í ökutækjaflokka og viðbót eCall-kerfis við skrána yfir prófunaratriði, prófunaraðferðir, ástæður fyrir bilun og mat á annmörkum í I. og III. viðauka við þá tilskipun
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
Staða tillögu/gerðar | ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi |
---|---|
Svið (EES-samningur, viðauki) | 13 Flutningar, 13.02 Flutningar á vegum |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) | 112/2023 |
Samþykktardagur ákvörðunar sameiginlegu nefndarinnar | |
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu | |
Staðfestur gildistökudagur | |
Í gildi á EES-svæðinu | Já |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Um er að ræða gerð um breytingu á tilskipun 2014/45/ESB. Markmiðið með gerðinni er að uppfæra ökutækjaflokka sem prófa skal í reglubundnum prófunum á aksturshæfni ökutækja og tæknilegu eftirliti á vegum. Breytingarnar tengjast nýlegum breytingum á reglum um gerðarviðurkenningar ökutækja. Þá er neyðasímkerfi í ökutæki, eCall in-vehicle system,bætt á lista yfir þau atriði sem athuguð eru við reglubundið eftirlit með ökutækjum. Neyðarsímkerfi (e. e-call in vehicle system),er kerfi sem sendir sjálfkrafa skilaboð til neyðarþjónustu er umferðaróhapp verður og sendir m.a. nákvæma staðsetningu slyss. Það var tekið upp með reglugerð (ESB) 2015/758/ESB. Lítill kostnaður fyrir hið opinbera en gæti orðið kostnaður fyrir skoðunarstofur.
Nánari efnisumfjöllun
Markmið sem að er stefnt: Um er að ræða gerð um breytingu á tilskipun 2014/45/ESB. Markmiðið með gerðinni er að uppfæra ökutækjaflokka sem prófa skal í reglubundnum prófunum á aksturshæfni ökutækja og tæknilegu eftirliti á vegum. Breytingarnar tengjast nýlegum breytingum á reglum um gerðarviðurkenningar ökutækja. Þá er neyðasímkerfi í ökutæki, eCall in-vehicle system, bætt á lista yfir þau atriði sem athuguð eru við reglubundið eftirlit með ökutækjum. Neyðarsímkerfi (e. e-call in vehicle system),er kerfi sem sendir sjálfkrafa skilaboð til neyðarþjónustu er umferðaróhapp verður og sendir m.a. nákvæma staðsetningu slyss. Það var tekið upp með reglugerð (ESB) 2015/758/ESB. Efnisútdráttur: Tilskipun 2014/45/ESB gildir um ökutæki með hönnunarhraða yfir 25 km/klst. í flokkum sem taldir eru upp í 1. mgr. 2. gr. tilskipunarinnar. Breyta þarf tilskipuninni til að samræma hana við breytingar á öðrum gerðum þar sem ökutækjaflokkar eru skilgreindir. Breytingarnar hafa ekki áhrif á umfang og tíðni prófana.Í reglugerð (ESB) 2015/758 er kveðið á um skyldu til að setja innbyggt neyðarsímakerfi, e-Call, í tilteknar gerðir nýrra ökutækja sem framleidd eru eftir 31. mars 2018. Með þessari gerð er kveðið á um að reglubundin prófun fari fram á innbyggðu neyðarsímakerfi þessara ökutækja í samræmi við ákvæði tilskipunar 2014/45/ESB. Umsögn: helstu breytingar, mati á umfangi, og áhrif hér á landi: Reglugerðin hefur helst áhrif á skoðunarstofur sem skoða ökutæki hér á landi. Þær þurfa að hafa búnað til að skoða innbyggt neyðarsímakerfi. Þá hefur gerðin einnig áhrif á Samgöngustofu. Uppfæra þarf skoðunarhandbók sem og finna bestu leiðina til að skoða búnaðinn. Lagastoð fyrir innleiðingu gerðar: Lagastoðin er 74. gr. umferðarlaga nr. 77/2019. Rétt væri að reglugerðin yrði innleidd með breytingu á reglugerð nr. 414/2021 um skoðun ökutækja. Mat eða tilgreining á kostnaði hins opinbera, sveitarfélaga og atvinnulífs og almennings, ef einhver er: Kostnaður við innleiðingu þessarar reglugerðar er óverulegur fyrir Samgöngustofu þar sem er að ræða verkefni sem stöðugt er sinnt hjá stofnuninni og snúa aðallega að uppfærslu skoðunarhandbókar. Gera má ráð fyrir að gerðin hafi töluverð kostnaðaráhrif á skoðunarstofur við kaup á búnaði.
Staða innan stjórnsýslunnar
Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
---|---|
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Já |
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Já |
Innleiðing
Innleiðing | Reglugerð - breyting eða ný |
---|---|
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta | Lagastoð fyrir innleiðingu gerðar: Lagastoðin er 74. gr. umferðarlaga nr. 77/2019. Rétt væri að reglugerðin yrði innleidd með breytingu á reglugerð nr. 414/2021 um skoðun ökutækja. |
Staða innleiðingarvinnu | Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar |
Áhrif
Áætlaður kostnaður hins opinbera | Ekki vitað |
---|
Ábyrgðaraðilar
Ábyrgt ráðuneyti | Innviðaráðuneytið |
---|---|
Ábyrg stofnun | Samgöngustofa |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
CELEX-númer | 32021L1717 |
---|---|
Samþykktardagur hjá ESB | |
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L 342, 27.9.2021, p. 48 |
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
Dagsetning tillögu ESB | |
---|---|
C/D numer | C(2021)4992 |
Dagsetning tillögu | |
Samþykktardagur i ESB |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar | |
---|---|
Samþykktardagur | |
Staðfestur gildistökudagur | |
Tilvísun í EES-viðbæti | EEA Supplement No 81, 9.11.2023, p. 64 |
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2023/02292, 9.11.2023 |