32021R0345

Commission Implementing Regulation (EU) 2021/345 of 25 February 2021 approving active chlorine generated from sodium chloride by electrolysis as an active substance for use in biocidal products of product types 2, 3, 4 and 5


iceland-flag
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/345 frá 25. febrúar 2021 um að samþykkja virkan klór, sem er búinn til úr natríumklóríði með rafgreiningu, sem virkt efni til notkunar í sæfivörur í vöruflokkum 2, 3, 4 og 5
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.15 Hættuleg efni
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 289/2021
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Reglugerðin felur í sér að samþykkja virkt klór myndað úr natríumklóríði með rafgreiningu sem virkt efni til notkunar í sæfivörur í vöruflokkum 2, 3, 4 og 5 að uppfylltum þeim forskriftum og skilyrðum sem koma fram í viðauka við reglugerðina. Hún tekur gildi á 20. degi eftir birtingu hennar í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins.

Nánari efnisumfjöllun

Virkt klór myndað úr natríumklóríði með rafgreiningu hefur verið metið til notkunar í sæfivörur í vöruflokkum 2, 3, 4 og 5 eins og þeir eru skilgreindir í V. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 98/8/EB, sem samsvarar vöruflokkum 2, 3, 4 og 5 eins og þeir eru skilgreindir í V. viðauka við reglugerð (ESB) nr. 528/2012.

Slóvakía sem lögbært matsyfirvald skilaði matsskýrslum til framkvæmdastjórnarinnar ásamt niðurstöðum þann 19. nóvember 2010. Sæfivörunefndin samþykkti álit Efnastofnunar Evrópu þann 16. júní 2020 sem byggði sitt álit á matsskýrslum lögbæra matsyfirvaldsins.

Samkvæmt áliti Efnastofnunarinnar má ætla að sæfivörur í vöruflokkum 2, 3, 4 og 5 sem nota virkt klór myndað úr natríumklóríði með rafgreiningu uppfylli kröfurnar eins og mælt er fyrir um í 5. gr. tilskipunar 98/8/EB, að því gefnu að ákveðnum forskriftum og skilyrðum varðandi notkun þeirra sé fylgt. Því er við hæfi að samþykkja efnið til notkunar í sæfivörur í þessum tilteknu vöruflokkum að uppfylltum þeim forskriftum og skilyrðum sem koma fram í viðauka við reglugerðina.

Þau skilyrði sem sett eru í viðauka við reglugerðina ná m.a. til atriða sem sérstaklega skuli huga að við mat á sæfivörunni, s.s. atriði tengd notkun hennar og verndun þess sem notar vöruna í atvinnuskyni og einnig þörfina á að setja ný eða breyta hámarksgildum leifa vöru, sem gæti skilið eftir sig leifar í matvælum eða fóðri.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Innleiða þarf reglugerðina með tilvísunaraðferð í reglugerð nr. 878/2014 um sæfivörur.

Lagaheimild er í 3. tl. 1. mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Innan fjárhagsáætlunar

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Ábyrg stofnun Umhverfisstofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32021R0345
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 68, 26.2.2021, p. 163
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
C/D numer D069101/03
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 19, 29.2.2024, p. 17
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L, 2024/537, 29.2.2024