32021R0364

Commission Implementing Regulation (EU) 2021/364 of 26 February 2021 approving active chlorine generated from sodium chloride by electrolysis as an active substance for use in biocidal products of product-type 1


iceland-flag
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/364 frá 26. febrúar 2021 um að samþykkja virkan klór, sem er búinn til úr natríumklóríði með rafgreiningu, sem virkt efni til notkunar í sæfivörur í vöruflokki 1
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.15 Hættuleg efni
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 290/2021
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Reglugerðin felur í sér að samþykkja virkt klór myndað úr natríumklóríði með rafgreiningu sem virkt efni til notkunar í sæfivörur í vöruflokki 1 að uppfylltum þeim forskriftum og skilyrðum sem koma fram í viðauka við reglugerðina. Hún tekur gildi á 20. degi eftir birtingu hennar í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins.

Nánari efnisumfjöllun

Sótt var um þann 31. júlí 2007 að bæta virka efninu, virkt klór myndað úr natríumklóríði með rafgreiningu, á lista í I. viðauka tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 98/8/EB sem virkt efni til notkunar í sæfivörur í vöruflokki 1, í samræmi við 1. mgr. 11. gr. sömu tilskipunar. Vöruflokkur 1 eins og hann er skilgreindur í V. viðauka við tilskipunina samsvarar vöruflokki 1 í V. viðauka reglugerðar (ESB) nr. 528/2012.

Þann 19. nóvember 2010 skilaði Slóvakía, sem lögbært matsyfirvald, matsskýrslu til framkvæmdastjórnarinnar ásamt niðurstöðu í samræmi við 2. mgr. 11. gr. tilskipunar 98/8/EB. Að teknu tilliti til niðurstöðu lögbæra matsyfirvaldsins samþykkti sæfivörunefndin álit Efnastofnunar Evrópu þann 16. júní 2020.

Samkvæmt álitinu má vænta þess að sæfivörur í vöruflokki 1, sem nota virkt klór myndað úr natríumklóríði með rafgreiningu, uppfylli kröfurnar sem mælt er fyrir um í 5. gr. tilskipunar 98/8/EB, að því tilskildu að farið sé að tilteknum forskriftum og skilyrðum varðandi notkun þeirra.

Að teknu tilliti til álits Efnastofnunarinnar er viðeigandi að samþykkja virkt klór myndað úr natríumklóríði með rafgreiningu sem virkt efni til notkunar í sæfivörur í vöruflokki 1. Þær forskriftir og skilyrði sem koma fram í viðauka við reglugerðina eru:
- Við mat á vörunni skal huga sérstaklega að váhrifum, áhættu og virkni tengdri hverri notkun sem er sótt um og er til yfirferðar í mati á markaðsleyfi, en ekki fjallað um í áhættumati virka efnisins á vettvangi Sambandsins.
- Forskriftir fyrir virka efnið er háð forefninu natríumklóríði, sem þarf að uppfylla kröfur um hreinleika skv. einum af eftirfarandi stöðlum: NF Brand, EN 973 A, EN 973 B, EN 14805 Type 1, EN 14805 Type 2, EN 16370 Type 1, EN 16370 Type 2, EN 16401 Type 1, EN 16401 Type 2, CODEX STAN 150-1985 eða European Pharmacopoeia 9.0.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Innleiða þarf reglugerðina með tilvísunaraðferð í reglugerð nr. 878/2014 um sæfivörur.

Lagaheimild er í 3. tl. 1. mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Innan fjárhagsáætlunar

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Ábyrg stofnun Umhverfisstofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32021R0364
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 70, 1.3.2021, p. 6
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 19, 29.2.2024, p. 19
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L, 2024/540, 29.2.2024