Breyting á CRR 2021/558 - tengd STS - 32021R0558

Regulation (EU) 2021/558 of the European Parliament and of the Council of 31 March 2021 amending Regulation (EU) No 575/2013 as regards adjustments to the securitisation framework to support the economic recovery in response to the COVID-19 crisis


iceland-flag
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar Tillaga ESB sem gæti verið EES-tæk
Svið (EES-samningur, viðauki) 09 Fjármálaþjónusta
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 096/2024

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Reglugerð (ESB) 2021/558 breytir reglugerð (ESB) nr. 575/2013 (CRR-reglugerðinni) að því er varðar aðlögun að almennum ramma fyrir verðbréfun og var samþykkt í því skyni að stuðla að efnahagsbata í kjölfar Covid-19 heimsfaraldursins. Hún var samþykkt samhliða breytingum á verðbréfunar-reglugerð (ESB) 2017/2402, gjarnan nefnd STS-reglugerðin.

Nánari efnisumfjöllun

Reglugerð (ESB) 2021/558 breytir reglugerð (ESB) nr. 575/2013 (CRR-reglugerðinni) að því er varðar aðlögun að almennum ramma fyrir verðbréfun og var samþykkt í því skyni að stuðla að efnahagsbata í kjölfar  Covid-19 heimsfaraldursins. Hún var samþykkt samhliða breytingum á verðbréfunar-reglugerð (ESB) 2017/2402, gjarnan nefnd STS-reglugerðin.   Upphafleg STS-reglugerð (ESB) 2017/2402 heimilaði eingöngu að verðbréfanir með raunverulegu framsali væru merktar sem “STS” (einföld, gagnsæ og stöðluð verðbréfun), en með reglugerð (ESB) 2021/557 um breytingu á STS-reglugerðinni var m.a. opnað á verðbréfun á efnahagsreikningi upphafsaðila, að uppfylltum nánari skilyrðum. Hún, ásamt reglugerð (ESB) 2021/558, sem hér um ræðir, miðaði sérstaklega að því að styrkja frekar getu stofnana til að veita nauðsynlegt fjármögnunarflæði til raunhagkerfisins í kjölfar COVID-19 heimsfaraldurs, á sama tíma og tryggt er að fullnægjandi varfærnisráðstafanir séu til staðar er varðveita fjármálastöðugleika.Gildissvið STS-reglugerðarinnar (2017/2402) var breytt með reglugerð (ESB) 2021/557 þannig að nái yfir svonefnda gerviverðbréfun. Þess háttar verðbréfun, á efnahagsreikningi upphafsaðila, skal uppfylla kröfur 26. gr. a.-26. gr. a. í STS-reglugerðinni m.áo.br. og tilkynna ber um gerviverðbréfun til Evrópsku verðbréfamarkaðseftirlitsstofnunarinnar (ESMA).Reglugerð (ESB) 2021/558 felur í sér markvissar breytingar á CRR vegna umræddra breytinga á STS-reglugerðinni. Hún kveður m.a. á um gerviaukaáhættuálag í tengslum við verðbréfun, þ.e. fyrirkomulag sem almennt er notað í verðbréfun tiltekinna eignaflokka af upphafsaðilum og fjárfestum til að draga annars vegar úr kostnaði við útlánavörn og hins vegar áhættu fyrir áhættuskuldbindinguna. Í stuttu máli varðar gerðin eiginfjárkröfur til fjármálafyrirtækja vegna tiltekinnar tegundar verðbréfunar og byggir á Basel III. 

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB

Innleiðing

Innleiðing Lagasetning/lagabreyting
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Fyrirhugað er frumvarp til nýrra heildarlaga um verðbréfun, vegna innleiðingar STS-pakkans. Gert er ráð fyrir tillögugerð um breytingu á lögum um fjármálafyrirtæki vegna innleiðingar breytingagerða á CRR (2017/2401 og 2021/558).
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing í vinnslu

Samráð

Samráðsgátt https://island.is/samradsgatt/mal/3497
Niðurstöður samráðs Birt voru áform um lagasetningu vegna STS-pakkans, sumarið 2023. Engar umsagnir/athugasemdir bárust. Framlagning frumvarp er áformuð á haustþingi 2024.

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Enginn
Mat á áhrifum og sérstökum hagsmunum Íslands Markmið STS-pakkans, sem þessi gerð tilheyrir, er að draga úr áhættunni sem felst í verðbréfun og tryggja aðgreiningu einfaldra, gagnsærra og staðlaðra verðbréfunarafurða frá flóknum, ógagnsæjum og áhættusamari afurðum. Ekki er gert ráð fyrir breytingum á tekjum eða útgjöldum ríkisins vegna þessarar breytingar á CRR. Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands er í stakk búið til að takast á við eftirlit með framkvæmd fyrirhugaðra laga.

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Ábyrg stofnun Seðlabanki Íslands

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32021R0558
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 116, 6.4.2021, p. 25
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

COM numer COM(2020) 283
Dagsetning tillögu ESB
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar