Listi yfir flugrekendur sem heyra undir umsjá Íslands í viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir - 32021R0662

Commission Regulation (EU) 2021/662 of 22 April 2021 amending Regulation (EC) No 748/2009 on the list of aircraft operators which performed an aviation activity listed in Annex I to Directive 2003/87/EC on or after 1 January 2006 specifying the administering Member State for each aircraft operator


iceland-flag
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/662 frá 22. apríl 2021 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 748/2009 um skrána yfir umráðendur loftfara sem stunduðu flugstarfsemi sem tilgreind er í I. viðauka við tilskipun 2003/87/EB 1. janúar 2006 eða eftir þann dag þar sem ábyrgðarríki hvers umráðanda loftfars er tilgreint
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 20 Umhverfismál, 20.03 Loft
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 312/2021
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Með reglugerð þessari er viðauki við reglugerð (ESB) nr. 748/2009 um lista yfir flugrekendur, sem stunduðu flugstarfsemi sem getið er í viðauka I við tilskipun 2003/87/EB 1. janúar 2006 eða síðar, þar sem tilgreint er hvaða ríki telst umsjónarríki gagnvart hverjum flugrekanda, uppfærður, líkt og gert er á ári hverju.

Nánari efnisumfjöllun

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 748/2009 var sett til að uppfylla skyldur framkvæmdastjórnarinnar skv. 3. tl. 18. gr. a tilskipunar 2003/87/EB, eins og henni var breytt með 4. tl. 1. gr. tilskipunar 2008/101/EB. Með reglugerðinni var lögfestur listi yfir flugrekendur sem heyra undir viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir auk þess sem tilgreint er hvaða aðildarríki telst umsjónarríki hvers flugrekanda í skilningi tilskipunar 2003/87/EB.

Listinn í viðauka við reglugerðina er miðlægur upplýsingagrunnur um alla flugrekendur sem falla undir gildissvið viðskiptakerfisins. Hann hefur jafnframt það hlutverk að flokka flugrekendur niður á umsjónarríki eftir þeim reglum sem fram koma í fyrrnefndri tilskipun. Reglur um umsjónarríki eru í grófum dráttum þessar: Flugrekendur sem skráðir eru innan EES falla undir það ríki sem gaf flugrekstrarleyfi þeirra út. Flugrekendur frá ríkjum utan EES raðast hins vegar niður á umsjónarríki eftir því hvert má rekja meirihluta af losun þeirra innan viðskiptakerfisins árið 2006.

Í aðfaraorðum reglugerðarinnar kemur fram að lista þessum sé ætlað að draga úr stjórnsýslubyrði flugrekstraraðila og veita upplýsingar til flugrekstraraðila um hvaða aðildarríki muni framfylgja kröfum viðskiptakerfisins gagnvart sér og að hverju aðildarríki sé ljóst hvaða flugrekendum því beri að hafa umsjón með. Tekið er fram í aðfaraorðunum að listanum sé þó ekki ætlað að skera úr um það hvort flugrekandi falli undir gildissvið viðskiptakerfisins, heldur ráðist það eingöngu af gildissviði tilskipunar 2003/87/EB. Ef flugrekandi stundar starfsemi sem fellur undir gildissvið tilskipunarinnar heyrir hann því undir viðskiptakerfið hvort sem hans er getið á listanum eða ekki. Að sama skapi eru flugrekendur sem hafa hætt flugstarfsemi sem heyrir undir gildissvið tilskipunar 2003/87/EB ekki hluti viðskiptakerfisins þótt þeirra sé getið á listanum.
Við þetta bætist síðan að þar sem að aðlögunartímabilinu sem mælt er fyrir um útgöngusamningi um brotthvarf Stóra-Bretlands og Norður- Írlands úr ESB er lokið er Bretland ekki lengur stjórnandi aðilarríkis fyrir flugrekendur innan ETS – kerfisins, og því eru þeir flugrekendur sem áður voru undir umsjá Bretlands færðir yfir í umsjá annarra aðildarríkja, þmt Íslands.

Með reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/662 er lögfestur nýr viðauki yfir flugrekendur og þeim eldri samkvæmt reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/535 skipt út fyrir hann.
Samkvæmt þessum nýja viðauka verða 367 flugrekendur í umsjón Íslands, og fjölgar því flugrekendum um 128 talsins á því tímabili en fjöldi þessara flugrekenda var 239 talsins skv. viðauka við reglugerð (ESB) nr. 2020/535. Miðlægi stjórnandi skráningarkerfis ETS hefur þegar sent lista yfir virka flugrekendur sem hafa opin reikning í skráningarkerfinu og eru þeir 26 talsins sem munu bætast við, svo 102 af þessum flugrekendum falla eins og er ekki undir gildissvið tilskipunar 2003/87/EB.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Breyta þarf reglugerð nr. 606/2021 um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir, sbr. reglugerðarheimild í 4. mgr. 16. gr. laga nr. 70/2021.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Innan fjárhagsáætlunar

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Ábyrg stofnun Umhverfisstofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32021R0662
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 139, 23.4.2021, p. 1
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 19, 29.2.2024, p. 52
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L, 2024/524, 29.2.2024