32021R0806
Commission Delegated Regulation (EU) 2021/806 of 10 March 2021 amending Regulation (EU) No 528/2012 of the European Parliament and of the Council to include carbon dioxide generated from propane, butane or a mixture of both by combustion as an active substance in Annex I thereto
Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/806 frá 10. mars 2021 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 528/2012 í því skyni að bæta virka efninu koltvísýringi, sem er búinn til úr própani, bútani eða blöndu úr hvoru tveggja með bruna, við í I. viðauka við hana
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
Staða tillögu/gerðar | ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi |
---|---|
Svið (EES-samningur, viðauki) | 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.15 Hættuleg efni |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) | 283/2021 |
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu | |
Staðfestur gildistökudagur | |
Í gildi á EES-svæðinu | Já |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Reglugerðin felur í sér að bæta koltvísýringi myndað úr própani, bútani eða blöndu af hvoru tveggja með bruna, sem virku efni við I. viðauka við reglugerð (ESB) nr. 528/2012.
Vegna 3. mgr. 89. gr. reglugerðarinnar er dagsetning samþykkis fyrir koltvísýringi mynduðum úr própani, bútani eða blöndu af hvoru tveggja með bruna, sem virkt efni í vöruflokki 19, 1. júlí 2022.
Reglugerðin tekur gildi á 20. degi eftir birtingu hennar í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins, er bindandi í heild sinni og gildir án frekari lögfestingar í öllum aðildarríkjum.

Nánari efnisumfjöllun
Koltvísýringur, myndaður úr própani, bútani eða blöndu af hvoru tveggja með bruna, hefur verið metinn til notkunar í sæfivörur í vöruflokki 19, fæliefni og löðunarefni, eins og lýst er í V. viðauka við reglugerð (ESB) nr. 528/2012.
Sæfivörunefndin samþykkti álit Efnastofnunar Evrópu þann 16. júní 2020 sem var byggt á niðurstöðum Frakklands, sem lögbært matsyfirvald. Niðurstaða álitsins var að þess megi vænta að sæfivörur í vöruflokki 19, sem innihalda koltvísýring myndaðan úr própani, bútani eða blöndu af hvoru tveggja með bruna, uppfylli kröfur b)-liðs 1. mgr. 19. gr. reglugerðar (ESB) nr. 528/2012. Niðurstaða álits Efnastofnunarinnar var einnig að þetta tiltekna virka efni gæfi ekki tilefni til áhyggna og væri því ákjósanlegt virkt efni til að bæta við I. viðauka við reglugerð (ESB) nr. 528/2012.
Með tilliti til álits Efnastofnunarinnar er talið viðeigandi að bæta koltvísýringi, mynduðum úr própani, bútani eða blöndu af hvoru tveggja með bruna, við I. viðauka við reglugerð (ESB) nr. 528/2012. Þar sem virka efnið hefur verið metin á grundvelli málsskjala sem uppfylla skilyrði 1. mgr. 11. gr. tilskipunar 98/8/EB, er virka efninu bætt við 6. flokk I. viðauka reglugerðarinnar.
Til að tryggja að tímaramminn til að sækja um leyfi sé nægur í samræmi við aðra undirgrein 3. mgr. 89. gr. reglugerðar (ESB) nr. 528/2012 er dagsetning samþykkis fyrir koltvísýringi, mynduðum úr própani, bútani eða blöndu af hvoru tveggja með bruna, sem virku efni í vöruflokki 19, 1. júlí 2022.

Staða innan stjórnsýslunnar
Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
---|---|
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Já |
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Já |
Innleiðing
Innleiðing | Reglugerð - breyting eða ný |
---|---|
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta |
Innleiða þarf þessa reglugerð með tilvísunaraðferð í reglugerð nr. 878/2014 um sæfivörur. Lagaheimild er í 3. tl. 1. mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013. |
Staða innleiðingarvinnu | Innleiðing ekki hafin |
Áhrif
Áætlaður kostnaður hins opinbera | Innan fjárhagsáætlunar |
---|
Ábyrgðaraðilar
Ábyrgt ráðuneyti | Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið |
---|---|
Ábyrg stofnun | Umhverfisstofnun |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
CELEX-númer | 32021R0806 |
---|---|
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L 180, 21.5.2021, p. 78 |
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
Dagsetning tillögu ESB | |
---|---|
C/D numer | C(2021)1516 |
Dagsetning tillögu | |
Samþykktardagur i ESB |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar | |
---|---|
Staðfestur gildistökudagur | |
Tilvísun í EES-viðbæti | EEA Supplement No 19, 29.2.2024, p. 10 |
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2024/534, 29.2.2024 |