32021R0849

Commission Delegated Regulation (EU) 2021/849 of 11 March 2021 amending, for the purposes of its adaptation to technical and scientific progress, Part 3 of Annex VI to Regulation (EC) No 1272/2008 of the European Parliament and of the Council on classification, labelling and packaging of substances and mixtures


iceland-flag
Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/849 frá 11. mars 2021 um breytingu á 3. hluta VI. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1272/2008 um flokkun, merkingu og pökkun efna og blandna í því skyni að laga hana að tæknilegum og vísindalegum framförum
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.15 Hættuleg efni
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 064/2022
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Með reglugerðinni er verið að breyta reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1272/2008 um flokkun og merkingu og umbúðir efna og efnablandna. Breytingarnar fela í sér, eftir atvikum, að lögð er fram ný samræmd flokkun og merking fyrir hættuleg efni, henni breytt eða efni tekið af lista yfir hættuleg efni.

Nánari efnisumfjöllun

Skrá yfir samræmda flokkun og merkingu hættulegra efna í viðauka VI, 3 hluta, töflu 3, reglugerð nr. 415/2014 er breytt í samræmi við viðauka þessarar reglugerðar, þar sem flokkun og merkingu 39 efna er breytt og ný samræmd flokkun og merking 22 efna er bætt inn á viðeigandi staði í töflu. Einnig er eitt efni sem áður var hættuflokkað, fjarlægt úr töflu 3 eftir endurmat.
Reglugerðin tekur gildi á 20. degi eftir birtingu reglugerðarinnar í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins og kemur til framkvæmda 17.desember 2022. Þó er heimilt að merkja efni og efnablöndur með nýrri samræmdri flokkun og merkingu eftir að reglugerðin tekur gildi.
Nýjum færslum er bætt í VI. viðauka við reglugerð (ESB) nr. 1272/2008 í samræmi við framangreint.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Breyta þarf reglugerð nr. 415/2014 um flokkun, merkingu og umbúðir efna og efnablandna sem innleiðir reglugerð Evrópusambandsins nr. 1272/2008 (CLP) hér á landi. Reglugerðin er innleidd með tilvísunaraðferð.
Lagastoð er að finna í 2. tölul. 1. mgr. 11. gr efnalaga nr. 61/2013.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Innan fjárhagsáætlunar

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Ábyrg stofnun Umhverfisstofnun
Aðrar stofnanir sem hafa aðkomu Embætti landlæknis

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32021R0849
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 188, 28.5.2021, p. 27
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 45, 7.7.2022, p. 30
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L 182, 7.7.2022, p. 42