32021R1889

Commission Delegated Regulation (EU) 2021/1889 of 23 July 2021 amending Council Regulation (EEC) No 95/93 as regards the extension of measures for temporary relief from the slot utilisation rules due to the COVID-19 crisis


iceland-flag
Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1889 frá 23. júlí 2021 um breytingu á reglugerð ráðsins (EBE) nr. 95/93 að því er varðar rýmkun ráðstafana með tilliti til tímabundinnar tilslökunar á reglum um nýtingu afgreiðslutíma vegna COVID-19-hættuástandsins
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 13 Flutningar, 13.06 Almenningsflug
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 016/2022
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Um er að ræða tillögu að reglugerð um breytingu á reglugerð (EBE) nr. 95/93 um úthlutun afgreiðslutíma á flugvöllum. Markmið með gerðinni er að koma til móts við flugrekendur sem geta ekki nýtt úthlutunartíma sinn í 80% tilvika eins og áskilið er samkvæmt reglugerð (EBE) nr. 95/93 skv. svokallaðri use-it-or-lose-it reglu. Nokkrar breytingar hafa verið gerðar á reglugerð nr. 95/93 vegna áhrifa COVID-19 á getu flugrekenda til að nýta úthlutunartíma sinn á flugvöllum. Með þeim breytingum hefur verið veitt undanþága frá reglunni um 80% nýtingu á afgreiðslutíma. Undanþágan verði framlengd fram yfir komandi vetrartímabil frá 31. október 2021 til 26 mars 2022. Á því tímabili er gert ráð fyrir að flugrekandi nýti afgreiðslutíma sinn í 50% tilvika í stað 80%. Jákvæð áhrif. Kostnaður óverulegur.

Nánari efnisumfjöllun

Markmið sem að er stefnt: Um er að ræða tillögu að reglugerð um breytingu á reglugerð (EBE) nr. 95/93 um úthlutun afgreiðslutíma á flugvöllum. Markmið með gerðinni er að koma til móts við flugrekendur sem geta ekki nýtt úthlutunartíma sinn í 80% tilvika eins og áskilið er samkvæmt reglugerð (EBE) nr. 95/93 skv. svokallaðri use-it-or-lose-it reglu. Efnisútdráttur: Í reglugerð (EBE) nr. 95/93 er kveðið á um skyldu flugrekenda til að nýta úthlutaða afgreiðslutíma á flugvöllum í 80% tilvika innan úthlutunartímabils en að öðrum kosti missa þá.Nokkrar breytingar hafa verið gerðar á reglugerð nr. 95/93 vegna áhrifa COVID-19 á getu flugrekenda til að nýta úthlutunartíma sinn á flugvöllum. Með þeim breytingum hefur verið veitt undanþága frá reglunni um 80% nýtingu á afgreiðslutíma. Með þessari tillögu að reglugerð er lagt til að undanþága frá fullri nýtingu verði framlengd fram yfir komandi vetrartímabil frá 31. október 2021 til 26 mars 2022. Á því tímabili er gert ráð fyrir að flugrekandi nýti afgreiðslutíma sinn í 50% tilvika í stað 80%.Umsögn: helstu breytingar, mati á umfangi, og áhrif hér á landi: Reglugerðin hefur jákvæð áhrif á íslenska flugrekendur og möguleika þeirra á að halda óbreyttum úthlutuðum afgreiðslutíma á Keflavíkurflugvelli þrátt fyrir að uppfylla ekki nýtingartíma samkvæmt ákvæðum reglugerðar (EBE) nr. 95/93.Lagastoð fyrir innleiðingu gerðar: Lagastoðin er 1. mgr. 57. gr. c, sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998, með síðari breytingum. Rétt væri að reglugerðin yrði innleidd með breytingu á reglugerð nr. 858/2014 um úthlutun afgreiðslutíma flugvalla.Mat eða tilgreining á kostnaði hins opinbera, sveitar-félaga og atvinnulífs og almennings, ef einhver er: Kostnaður við innleiðingu þessarar reglugerðar er metinn enginn.Skörun við starfssvið annarra ráðuneyta: Nei. Horizontal issues: sektir, aðrar refsingar, stofnanir, lönd utan EES: Nei. 

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Lagastoðin er 1. mgr. 57. gr. c, sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998, með síðari breytingum. Rétt væri að reglugerðin yrði innleidd með breytingu á reglugerð nr. 858/2014 um úthlutun afgreiðslutíma flugvalla.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Innan fjárhagsáætlunar

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Innviðaráðuneytið
Ábyrg stofnun Samgöngustofa

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32021R1889
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 384, 29.10.2021, p. 20
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
C/D numer C(2021)5402
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 42, 30.6.2022, p. 27
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L 175, 30.6.2022, p. 29