32021R1902

Commission Regulation (EU) 2021/1902 of 29 October 2021 amending Annexes II, III and V to Regulation (EC) No 1223/2009 of the European Parliament and of the Council as regards the use in cosmetic products of certain substances classified as carcinogenic, mutagenic or toxic for reproduction


iceland-flag
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1902 frá 29. október 2021 um breytingu á II., III. og V. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 að því er varðar notkun á tilteknum efnum, sem eru flokkuð sem krabbameinsvaldandi, stökkbreytandi eða sem efni sem hafa eiturhrif á æxlun, í snyrtivörur
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.16 Snyrtivörur
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 068/2022
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Með reglugerðinni er verið að breyta reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 um snyrtivörur varðandi CMR-efni (krabbameinsvaldandi, stökkbreytandi eða hafa eiturhrif á æxlun). Breytingar fela í sér að uppfæra skrá í II. viðauka yfir innihaldsefni sem eru ekki leyfileg í snyrtivörum og skrá í III. viðauka yfir innihaldsefni sem falla undir skilyrði varðandi notkun í snyrtivörum og skrá í V. viðauka yfir rotvarnarefni sem eru leyfileg í snyrtivörum að uppfylltum ákveðnum skilyrðum.

Nánari efnisumfjöllun

Með reglugerðinni er verið að breyta reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 um snyrtivörur.
Samkvæmt 1. mgr. 15. gr. reglugerðar (EB) nr. 1223/2009 um snyrtivörur skulu efni sem eru flokkuð sem krabbameinsvaldandi, stökkbreytandi eða hafa eiturhrif á æxlun (CMR) í undirflokki 1A, 1B eða flokki 2 vera bönnuð í snyrtivörum nema að þau falli undir undantekningar sem eru tilgreindar í seinni setningu 1.mgr. 15. gr.eða í annarri undirmálsgrein 2. mgr. 15. gr. í áðurnefndri reglugerð.
Í samræmi við framselda reglugerð (ESB) 2020/1182, sem kemur til framkvæmda þann 1. mars 2022, þá er efnum sem flokkuð eru sem CMR efni samkvæmt hættuflokkun í samræmi við reglugerð (EB) no. 1272/2008 um flokkun, merkingu og umbúðir efna og efnablandna einnig bætt við eða fjarlægð af listum um efni sem eru bönnuð eða háð takmörkunum í viðaukum II. til VI. í reglugerð (EB) nr. 1223/2009 um snyrtivörur.

Breytingar:

a.) Ekki var fallist á umsókn um undanþágu sem leyfir notkun Sink pýriþíon í hárvöru gegn flösu þar sem ekki þótti sýnt fram á að það væru ekki til staðgengilsefni. Sink pýriþíón er því fjarlægt af listum um innihaldsefni og rotvarnarefni sem falla undir skilyrði varðandi notkun í snyrtivörum í III, og V. viðaukum við reglugerð (EB) nr. 1223/2009 um snyrtivörur. Einnig er Sink pýriþíón bætt við lista yfir efni sem eru ekki leyfileg í snyrtivörum í II. viðauka reglugerðarinnar. Í lista yfir efni sem falla undir skilyrði varðandi notkun í snyrtivörum í III. viðauka er 2 færslum eytt og einni færslu er breytt/skipt út, og í lista yfir rotvarnarefni í V. viðauka er einni færslu eytt.

b.) Efnum sem flokkuð voru sem CMR efni, alls 23, er bætt við lista yfir efni sem eru ekki leyfileg í snyrtivörum í II. viðauka reglugerðar (EB) nr. 1223/2009 um snyrtivörur.

c.) Í lista yfir rotvarnarefni í V. viðauka við reglugerð (EB) nr.1223/2009 um snyrtivörur í 51. línu um Natríum Hýdroxymetýlglýsínat er bætt við skilyrði að ekki megi nota efnið ef fræðilegur hámarksstyrkur formaldehýðs sem getur losnað úr efnablöndunni eins og hún er sett á markað, án tillits til upphafsefnis er ≥ 0,1 % w/w.

Nýjum færslum er bætt við eða felldar út í II., III. og V. viðauka við reglugerð (ESB) nr. 1223/2009 í eins og fram kemur í viðauka við þessa reglugerð. .
Reglugerðin tekur gildi á 20. degi eftir birtingu hennar í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins og kemur til framkvæmda 1. mars 2022.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Breyta þarf reglugerð nr. 577/2031 um snyrtivörur sem innleiðir reglugerð um breytingu á II, III. og V. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 um snyrtivörur hér á landi. Reglugerðin er innleidd með tilvísunaraðferð.
Lagastoð er að finna í 7. tölul. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Innan fjárhagsáætlunar

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Ábyrg stofnun Umhverfisstofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32021R1902
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 387, 3.11.2021, p. 120
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
C/D numer D073715/01
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 45, 7.7.2022, p. 36
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L 182, 7.7.2022, p. 48