32021R1962

Commission Delegated Regulation (EU) 2021/1962 of 12 August 2021 correcting Annex VI to Regulation (EC) No 1272/2008 of the European Parliament and of the Council on classification, labelling and packaging of substances and mixtures


iceland-flag
Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1962 frá 12. ágúst 2021 um leiðréttingu á VI. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1272/2008 um flokkun, merkingu og pökkun efna og blandna
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.15 Hættuleg efni
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 122/2022
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Með reglugerðinni er verið að breyta reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1272/2008 um flokkun, merkingu og umbúðir efna og efnablandna. Breytingarnar fela í sér að leiðrétting er gerð á viðvörunarorðum samkvæmt samræmdri flokkun og merkingu fyrir þrjú hættuleg efni sem koma fram í VI. viðauka við reglugerðina.

Nánari efnisumfjöllun

Með reglugerðinni eru gerðar leiðréttingar á VI. viðauka reglugerðar (EB) nr. 1272/2008 um flokkun, merkingu og umbúðir efna og efnablandna.Þær fela í sér:1) að skipta viðvörunarorðinu Hætta yfir í Varúð fyrir efnin pentakalíum 2,2’,2’’,2’’’,2’’’’-(etan-1,2-díýlnítríl)pentaasetat, N-karboxýmetýlimínóbis(etýlennítríl)tetra (edikssýra) og pentanatríum (karboxýlatmetýl)imínóbis(etýlennítríl)tetraasetat í töflu 3 í 3. hluta VI. viðauka..  Efnin eru flokkuð sem efni sem hafa sértæk eiturhrif á marklíffæri- endurtekin váhrif (2.undirflokkur) og eiga því að vera merkt með viðvörunarorðinu Varúð.2) að birgjum verði ekki skylt að breyta merkingum á miðum og umbúðum efna og efnablandna sem innihalda þessi tilteknu efni sem þegar hafa verið sett á markað í samræmi við reglugerð (EB) nr. 1272/2008 fyrir 15. nóvember 2021 til að takmarka óþarfa kostnað þar sem ranga viðvörunarorðið lækkar ekki verndandi áhrif á heilsu manna.Þó er birgjum heimilt að beita 1. gr. þessarar reglugerðar er varðar flokkun, merkingu og pökkun samkvæmt samræmdri flokkun og merkingu að eigin frumkvæði fyrir 1. október 2021.Reglugerðin tekur gildi á þriðja degi eftir birtingu reglugerðarinnar í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins.  Þar sem reglugerð (EC) 2021/217, sem inniheldur villuna sem er leiðrétt,  kom til framkvæmda 1. Október 2021 kemur reglugerðin sem inniheldur leiðréttinguna einnig til framkvæmda á þeirri sömu dagsetningu.Færslum er breytt í VI. viðauka við reglugerð (ESB) nr. 1272/2008 í samræmi við framangreint.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Breyta þarf reglugerð nr. 415/2014 um flokkun, merkingu og umbúðir efna og efnablandna sem innleiðir reglugerð Evrópusambandsins nr. 1272/2008 (CLP) hér á landi. Reglugerðin er innleidd með tilvísunaraðferð.
Lagastoð er að finna í 2. tölul. 1. mgr. 11. gr efnalaga nr. 61/2013.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Innan fjárhagsáætlunar

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Ábyrg stofnun Umhverfisstofnun
Aðrar stofnanir sem hafa aðkomu Vinnueftirlit ríkisins

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32021R1962
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 400, 12.11.2021, p. 16
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 61, 22.9.2022, p. 63
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L 246, 22.9.2022, p. 64