32021R2204

Commission Regulation (EU) 2021/2204 of 13 December 2021 amending Annex XVII to Regulation (EC) No 1907/2006 of the European Parliament and of the Council concerning the Registration, Evaluation, Authorisation and Restriction of Chemicals (REACH), as regards carcinogenic, mutagenic or reproductive toxicant (CMR) substances


iceland-flag
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/2204 frá 13. desember 2021 um breytingu á XVII. viðauka (viðvíkjandi efnum sem eru krabbameinsvaldandi, stökkbreytandi eða hafa eiturhrif á æxlun (CMR-efni)) við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir að því er varðar efni (efnareglurnar (REACH))
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.15 Hættuleg efni
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 170/2022
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Reglugerðin snýr að uppfærslu á XVII. viðauka við reglugerð (EB) nr. 1907/2006 (REACH) til að hún endurspegli nýflokkuð CMR-efni, þ.e. efni sem eru krabbameinsvaldandi, stökkbreytandi eða hafa eiturhrif á æxlun, samkvæmt reglugerð (EB) nr. 1272/2008. Viðauka XVII er því breytt í samræmi við viðauka við þessa reglugerð.

Nánari efnisumfjöllun

Gerðar voru breytingar á XVII. viðauka við reglugerð (EB) nr. 1907/2006 með reglugerð framkvæmdarstjórnarinnar (ESB) 2020/2096 þar sem viðbætur 1 til 6 við viðaukann voru uppfærðar til að endurspegla breytingar á 3. hluta VI. viðauka við reglugerð (EB) nr. 1272/2008.

Sú breyting hefur ekki enn endurspeglað efni sem eru nýflokkuð sem krabbameinsvaldandi, stökkbreytandi eða hafa eiturhrif á æxlun (CMR-efni) og var bætt við 3. hluta VI. viðauka við reglugerð (EB) nr. 1272/2008 með framseldum reglugerðum framkvæmdarstjórnarinnar (ESB) nr. 2020/1182 og (ESB) nr. 2021/849. Það er því viðeigandi að bæta við þeim nýflokkuðu CMR-efnum, sem eru í flokki 1A eða 1B, eins og þau er skráð í framseldum reglugerðum ESB við viðbætur 2, 4 og 6 við XVII. viðauka REACH reglugerðarinnar.

Flokkun efnanna mun taka gildi á mismunandi tímum eftir því hvorri framseldri reglugerðinni efnið tilheyrir. Efnin sem skráð eru í framseldri reglugerð (ESB) 2020/1182 munu því ekki vera takmörkuð vegna flokkunar þeirra sem CMR-efni í flokki 1A eða 1B fyrr en frá 1. mars 2022. Fyrir efnin í framseldri reglugerð (ESB) 2021/849 mun takmörkunin taka gildi þann 17. desember 2022. Það er þó ekkert því til fyrirstöðu fyrir rekstraraðila að beita þessum takmörkunum fyrir þær dagsetningar sem þær taka gildi.

Reglugerðin tekur gildi á tuttugasta degi eftir birtingu hennar í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Breyta þarf reglugerð nr. 888/2015 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir að því er varðar efni (REACH).
Lagastoð er í 1. tölul. 1. mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Innan fjárhagsáætlunar

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Ábyrg stofnun Umhverfisstofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32021R2204
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 446, 14.12.2021, p. 34
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
C/D numer D074017/02
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 66, 13.10.2022, p. 11
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L 267, 13.10.2022, p. 11