32022D0986

Commission Implementing Decision (EU) 2022/986 of 23 June 2022 not approving N-(3-aminopropyl)-N-dodecylpropane-1,3-diamine as an existing active substance for use in biocidal products of product-type 8


iceland-flag
Framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/986 frá 23. júní 2022 um að samþykkja ekki N-(3-amínóprópýl)-N-dódekýlprópan-1,3-díamín sem fyrirliggjandi virkt efni til notkunar í sæfivörur í vöruflokki 8
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.15 Hættuleg efni
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 279/2022
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Ákvörðunin nær yfir virka efnið N-(3-amínóprópýl)-N-dódekýlprópan-1,3-díamín (EB-nr. 219-145-8; CAS nr. 2372-82-9). Virka efnið er ekki samþykkt sem virkt efni til notkunar í sæfivörur í vöruflokk 8 (viðarvarnarefni) þar sem virka efnið uppfyllir ekki kröfur um hættu gagnvart heilsu manna og raunhæfar leiðir til að draga úr hættu voru ekki fundnar.

Nánari efnisumfjöllun

N-(3-amínóprópýl)-N-dódekýlprópan-1,3-díamín (EB-nr. 219-145-8; CAS nr. 2372-82-9) er á lista í framseldri reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1062/2014 yfir fyrirliggjandi virk efni sem skal meta með tilliti til hvort samþykkja eigi til notkunar í sæfivörur.Efnið hefur verið metið til notkunar í sæfivörur í vöruflokk 8, viðarvarnarefni. Portúgal er lögbært matsyfirvald og skilaði matsskýrslu sinni til framkvæmdarstjórnarinnar ásamt niðurstöðu þann 9. nóvember 2005.Ástæða fyrir höfnun virka efnisins er að ekki er búist við að sæfivörur með virka efnininu geti uppfyllt skilyrði fyrir veitingu leyfa sbr. b-lið 1. mgr. 19. gr. reglugerðar (ESB) 528/2012, þar sem kennsl voru borin á óæskilegar hættur gagnvart heilsu manna við notkun efnisins og ekki voru fundnar raunhæfar leiðir til að draga úr hættu.Að teknu tilliti til álits Efnastofnunar Evrópu (ECHA) og umræðna við fastanefnd um sæfivörur telur framkvæmdastjórnin ekki viðeigandi að samþykkja virka efnið til notkunar í sæfivörur í vöruflokki 8.Ákvörðunin tekur gildi á 20. degi eftir birtingu hennar í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins. 

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Innleiða þarf ákvörðunina með tilvísunaraðferð í reglugerð nr. 878/2014 um sæfivörur.
Lagaheimild er í 3. tl. 1. mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Innan fjárhagsáætlunar

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Ábyrg stofnun Umhverfisstofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32022D0986
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 167, 24.6.2022, p. 111
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 35, 4.5.2023, p. 4
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L 117, 4.5.2023, p. 4