Ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar um framlengdan gildistíma vistfræðilegra viðmiða. - 32022D1229

Commission Decision (EU) 2022/1229 of 11 July 2022 amending Decisions 2014/312/EU, 2014/391/EU, 2014/763/EU, (EU) 2016/1332 and (EU) 2017/176 as regards the period of validity of the EU Ecolabel criteria and of the related assessment and verification requirements


iceland-flag
Ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/1229 frá 11. júlí 2022 um breytingu á ákvörðunum 2014/312/ESB, 2014/391/ESB, 2014/763/ESB, (ESB) 2016/1332 og (ESB) 2017/176 að því er varðar gildistíma viðmiðananna við veitingu umhverfismerkis ESB og tilheyrandi krafna um mat og sannprófun
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 20 Umhverfismál, 20.01 Almenn atriði
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 264/2022
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar .../... frá XXX (dags.) um breytingar á ákvörðunum 2014/312/ESB, 2014/391/ESB, 2014/763/ESB, 2016/1332/ESB og 2017/176/ESB í þeim tilgangi að framlengja gildistíma vistfræðilegra viðmiða vegna umhverfismerkis bandalagsins.

Nánari efnisumfjöllun

Samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins nr. 66/2010 fer fram regluleg endurskoðun vistfræðilegra viðmiða vegna umhverfismerkis bandalagsins (Evrópublómsins) er falla undir ofannefndar ákvarðanir. Gildistími viðmiða fyrir málningu og lökk til nota innan- og utanhúss (2014/312), fyrir rýmdýnur (2014/319), fyrir ídrægar hreinlætisvörur (2014/763), fyrir húsgögn (2016/1332) og fyrir gólfklæðninga að meginhluta úr viði, korki og bambus renna út á árunum 2022 og 2023 (sjá dagsetningar að neðan). Með að framlengja gildistíma viðmiðanna er búið til svigrúm til að taka tillit til annarra verkefna á vegum ESB í endurskoðun þeirra vistfræðilegu viðmiða sem umræðir, svo sem Circular Economy Action Plan ásamt Product Environmental Footprint.Með ákvörðuninni er nýr gildistími settur fyrir þessa fjóra viðmiðaflokka og eru breytingarnar eftirfarandi:Viðmið fyrir málningu og lökk til nota innan- og utanhúss (2014/312). Gildistími framlengdur frá 31. desember 2022 til 31. desember 2025Viðmið fyrir rúmdýnur (2014/319). Gildistími framlengdur frá 28. júlí 2022 til 31. desember 2026Viðmið fyrir ídrægar hreinlætisvörur (2014/763). Gildistími framlengdur frá 31. desember 2022 til 31.desember 2023Viðmið fyrir húsgögn (2016/1332). Gildistími framlengdur frá 28. júlí 2022 til 31.desember 2026Viðmið fyrir gólfklæðninga að meginhluta úr viði, korki og bambus (2017/176). Gildistími framlengdur frá 26. janúar 2023 til 31.desember 2026

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB

Innleiðing

Innleiðing Engar laga- eða reglugerðabreytingar
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing í vinnslu

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Enginn

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Ábyrg stofnun Umhverfisstofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32022D1229
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 189, 18.7.2022, p. 20
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
C/D numer D080007/01
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 31, 20.4.2023, p. 61
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L 106, 20.4.2023, p. 65