32022D1487

Commission Implementing Decision (EU) 2022/1487 of 7 September 2022 postponing the expiry date of the approval of etofenprox for use in biocidal products of product-type 8 in accordance with Regulation (EU) No 528/2012 of the European Parliament and of the Council

  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.15 Hættuleg efni
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 084/2023
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Ákvörðunin varðar frestun á fyrningardagsetningu samþykkts Etofenprox sem virks efnis fyrir sæfivörur í vöruflokki 8. Ný fyrningardagsetningin er 31. júlí 2025.

Ákvörðunin tók gildi 20 dögum eftir birtingu í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins.

Nánari efnisumfjöllun

Etofenprox var skráð í I. viðauka við tilskipun (ESB) 98/8/EC sem virkt efni til notkunar í  sæfivörur í vöruflokki 8. Fyrningardagsetning virka efnisins var 31. janúar 2020. Sótt var um endurnýjun á samþykki virka efnisins þann 27. júlí 2018. Lögbæra matsyfirvaldið, Austurríki, tilkynnti framkvæmdarstjórninni  að fullt mat á virka efninu væri nauðsynlegt.Fyrir lág ákvörðun (ESB) 2019/994 um nýja fyrningardagsetningu sama virka efnis þann 31. október 2022.

Þann 11. apríl 2022 tilkynnti lögbæra matsyfirvaldið til framkvæmdarstjórnarinnar að matið á virka efninu tæki lengri tíma þar sem fleiri rannsóknir þyrfti til að meta áhrif á innkirtlatruflandi eiginleika virka efnisins Etefonprox.

Þar sem endurmatið er talið líklegt til að taka lengri tíma en sem nemur samþykktinni hefur framkvæmdarstjórnin tekið ákvörðun um að samþykkið skuli framlengt til 31. október 2026.Ákvörðunin tók gildi 20 dögum eftir birtingu í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Innleiða þarf ákvörðunina með tilvísunaraðferð í reglugerð nr. 878/2014 um sæfivörur.
Lagaheimild er í 3. tl. 1. mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Innan fjárhagsáætlunar

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Ábyrg stofnun Umhverfisstofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32022D1487
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 233, 8.9.2022, p. 85
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 81, 9.11.2023, p. 16
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L, 2023/02239, 9.11.2023