Framkvæmdaákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/2427 frá 6. Desember 2022 um að fastsetja niðurstöður um bestu aðgengilegu tækni fyrir sameiginlega stjórnun og meðhöndlun á úrgangslofti í íðefnageiranum. - 32022D2427
Commission Implementing Decision (EU) 2022/2427 of 6 December 2022 establishing the best available techniques (BAT) conclusions, under Directive 2010/75/EU of the European Parliament and of the Council on industrial emissions, for common waste gas management and treatment systems in the chemical sector


Framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/2427 frá 6. desember 2022 um að fastsetja niðurstöður um bestu aðgengilegu tækni (BAT), samkvæmt tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2010/75/ESB um losun í iðnaði, varðandi kerfi til sameiginlegrar úrgangsloftsstjórnunar og -hreinsunar í íðefnageiranum
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
Staða tillögu/gerðar | ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi |
---|---|
Svið (EES-samningur, viðauki) | 20 Umhverfismál, 20.01 Almenn atriði |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) | 166/2023 |
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu | |
Staðfestur gildistökudagur | |
Í gildi á EES-svæðinu | Já |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Um er að ræða ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar sem skilgreinir niðurstöður fyrir bestu aðgengilegu tækni (BAT-niðurstöður) fyrir sameiginlega stjórnun og meðhöndlun á úrgangslofti í íðefnageiranum.
Nánari efnisumfjöllun
BAT-niðurstöðurnar (e. BAT Conclusions; BATC) eiga við um losun í loft frá atvinnurekstur sem er tilgreindur í liðum 4.1 til 4.6 í viðauka I laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir (tilskipun 2010/75/ESB) að undanskildu því sem talið er upp í gildisviði BAT-niðurstaðanna og fellur undir aðrar BAT niðurstöður. BAT- niðurstöður eru gefnar út af Evrópusambandinu og ráðinu og eru mikilvægur liður í verklagi sem tilskipun 2010/75/EB um losun í iðnaði kveður á um. Gefnar eru út nýjar BAT niðurstöður með reglubundnum hætti og þær birtar í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins. Í ferlinu sem ákvarðar BAT niðurstöður er jafnhliða gert ítarlegt BAT-tilvísunarskjal (e. BAT reference document; BREF) þar sem mengun frá umræddri starfsemi er greind og niðurstöðum þessara greininga er ætlað að stuðla að gagnsæi og fyrirsjáanleika um með hvaða hætti BAT-niðurstöður eru ákvarðaðar.
Staða innan stjórnsýslunnar
Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
---|---|
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Já |
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Já |
Innleiðing
Innleiðing | Reglugerð - breyting eða ný |
---|---|
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta | Reglugerð nr. 935/2018 um BAT (bestu aðgengilegu tækni) o.fl. á sviði atvinnurekstrar sem haft getur í för með sér mengun. Breyta reglugerðinni með því að bæta við nýjum tölulið við 5. gr með tilvísun í ákvörðunina. |
Staða innleiðingarvinnu | Innleiðing ekki hafin |
Áhrif
Áætlaður kostnaður hins opinbera | Ekki vitað |
---|---|
Mat á áhrifum og sérstökum hagsmunum Íslands | Ólíklegt er að mati Umhverfisstofnunar að sérstakir hagsmunir Íslands tengist þessari gerð |
Ábyrgðaraðilar
Ábyrgt ráðuneyti | Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið |
---|---|
Ábyrg stofnun | Umhverfis- og orkustofnun |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
CELEX-númer | 32022D2427 |
---|---|
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L 318, 12.12.2022, p. 157 |
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
Samþykktardagur i ESB |
---|
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar | |
---|---|
Staðfestur gildistökudagur | |
Tilvísun í EES-viðbæti | EEA Supplement No 87, 30.11.2023, p. 38 |
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2023/02563, 30.11.2023 |
Staða innleiðingar samkvæmt ESA
Staða innleiðingar á Íslandi samkvæmt ESA | Hvít: Ekki þörf á laga- eða reglugerðabreytingum til að innleiða gerðina |
---|