32022L0283

Commission Delegated Directive (EU) 2022/283 of 13 December 2021 amending, for the purposes of adapting to scientific and technical progress, Annex III to Directive 2011/65/EU of the European Parliament and of the Council as regards an exemption for the use of mercury in High Pressure Sodium (vapour) lamps with improved colour rendering index for general lighting purposes


iceland-flag
Framseld tilskipun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/283 frá 13. desember 2021 um breytingu á III. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2011/65/ESB, að því er varðar undanþágu fyrir notkun kvikasilfurs í háþrýstar natríumperur með bættum litendurgjafarstuðli til almennrar lýsingar, í því skyni að laga viðaukann að framförum á sviði vísinda og tækni
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.15 Hættuleg efni
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 169/2022
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Tilskipunin snýr að því að framlengja undanþágu fyrir notkun kvikasilfurs í tilteknum háþrýstum natríumperum til almennrar lýsingar með bættan litendurgjafarstuðul Ra > 80 og afl minna en eða jafnt og 105 W. Framlengingu undanþágunnar fyrir aðrar undirgerðir sama ákvæðis er synjað. Undanþágan er þannig framlengd til fimm ára fyrir tiltekna undirgerð pera en endanlegur gildistími settur 12 mánuðum eftir birtingu tilskipunarinnar fyrir aðrar gerðir pera sem heyra undir undanþáguna í samræmi við ákvæði tilskipunar 2011/65/ESB.

Nánari efnisumfjöllun

Í III. viðauka við tilskipun 2011/65/ESB (RoHS) eru listaðar undanþágur frá takmörkunum sem settar eru fram í 1. mgr. 4. gr. tilskipunarinnar. Meðal þeirra er undanþága (4(b), 4(b)-I, 4(b)-II og 4(b)-III) fyrir notkun kvikasilfurs í háþrýstum natríumperum til almennrar lýsingar með bættan litendurgjafarstuðul Ra > 60 með upprunalegan gildistíma til 21. júlí 2016. Innan tilskilins frests hafði verið sótt um framlengingu undanþágunnar og hún heldur gildi sínu þar til ákvörðun hefur verið tekin um framlengingu.Í ljósi þess að staðgöngukostir eru nú í boði fyrir flestar gerðir pera sem heyra undir þessa undanþágu er endurnýjun hennar synjað fyrir þær og endanlegur gildistími settur 12 mánuðum eftir birtingu tilskipunarinnar í samræmi við 6. mgr. 5. gr. RoHS. Undanþágan er hins vegar framlengd til 5 ára fyrir eina tiltekna undirgerð pera með bættan litendurgjafarstuðul Ra > 80 og afl minna en eða jafnt og 105 W.Tilskipunin tekur gildi á tuttugasta degi eftir birtingu hennar í Stjórnartíðindum ESB.Aðildarríkin skulu innleiða breytinguna eigi síðar en á síðasta degi sjötta mánaðar frá því að hún tekur gildi og hún skal koma til framkvæmda degi síðar.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Breyta þarf reglugerð nr. 630/2014 um takmarkanir á notkun tiltekinna, hættulegra efna í raf- og rafeindabúnaði.

Lagastoð er í 9. tölul. 1. mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Innan fjárhagsáætlunar

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Ábyrg stofnun Umhverfisstofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32022L0283
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 43, 24.2.2022, p. 54
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
C/D numer C(2021)8963
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 66, 13.10.2022, p. 8
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L 267, 13.10.2022, p. 8